Stúdentablaðið - 01.12.1994, Síða 5
STBL. • Desember 1994
HÁSKÓLINN
Bls. 5
Dagvistunarmál stúdenta
Nýr leikskóli á næsta leiti?
í Háskóla íslands stundar nám töluvert af
svokölluðu bamafólki. Sem gefur að skilja
er þessu fólki afar brýnt að fá barnaheimil-
ispláss í tíma. Sérstaklega er vandi þeirra
mikill sem eiga börn á aldrinum 0-2 ára en
sem kunnugt er er biðtími eftir plássi hjá
Dagvist bama u.þ.b. 2 ár. Að sögn Guðrún-
ar Hálfdánardóttur sem fer með dagvistun-
armál innan Stúdentaráðs hefur Dagvist
bama samþykkt að hefja viðræður við Fé-
lagsstofnun stúdenta um byggingu nýs leik-
skóla á Háskólasvæðinu fyrir 0-2 ára börn.
Aðspurð sagði Guðrún enga dagsetningu
vera komna á viðræðumar en kvað stúdenta
fylgjast grannt með málinu og vilja fylgja
því eftir. „Við emm líka að vinna í því að
stúdentar sem eru með böm hjá dagmæðr-
um eða einkareknum dagheimilum borgi
lægra gjald en útivinnandi fólk, líkt og hjá
Dagvist bama“, sagði Guðrún. Að sögn
Árna Þórs Sigurðssonar formanns stjómar
Dagvistar barna átti Reykjavíkurborg frum-
kvæði að þeim viðræðum sem em að heijast
eftir erindisbréf frá Stúdentaráði. „Það er
fullur pólitískur vilji fyrir því að heíjast
handa“, sagði Ámi í samtali við Stúdenta-
blaðið. „Mér skilst að það sér komið grænt
ljós bæði frá byggingamefnd Háskólans og
FS“. Og hvenær byrja svo viðrœðurnar?
„Vonandi fyrir jól“ sagði Ámi.
Fúll á móti
s k r i f a r
Ungir framsóknar-
menn eru til, á því leik-
ur enginn vafi og þeir í
þéttbýlinu eru í kosn-
ingaham þessi dægrin.
Stúdentar fóru ekki var-
hluta af boðskap ungra
framsóknarmanna fyrir
skemmstu, þar sem málgagninu Sýn var
dreift ókeypis um allan Háskólann. Þar kennir
margra ólíkra grasa og er óhætt að fullyrða
að efnistökin séu metnaðarfull, frumleg og
umfram allt flokksholl. T.d. er í blaðinu viðtal
við Halldór Ásgrímsson þar sem slegið er á
létta strengi og forystusauðurinn spurður:
„Segðu mér eitt Dóri, er það satt að þú keyrir
svona hratt?“ Þetta er alþýðleg, alvöru
blaðamennska, áleitin og djörf og sýnir okkur
lesendaflónunum að Halldór Ásgrímsson er
bara maður eins og við hin sem brýtur lög og
lofar upp í ermina á sér. Og kannski lætur
hann plata sig í þokkabót eins og Denni. Dóri
og Denni; bara menn - þess vegna kýstu þá-
strategían. Breyskir eins og við hin.
Annar formaður, Guðjón Ólafur Jónsson
formaður SUF, er í líka í viðtali þar sem margt
ber á góma. Þar kemur m.a. fram að formað-
urinn hefur afleit laun að eigin mati, tók við
embættinu af bróður sínum, vill glæsilegan
stórsigur Framsóknarflokksins í næstu kosn-
ingum og hefur ýmislegt á prjónunum enda
mikið í símanum eins og sjá má af myndinni
með viðtalinu. Þetta er allt saman afar upp-
lýsandi og hreinlega nauðsynleg skilaboð til
allra stúdenta.
Frumlegasta greinin í blaðinu er þó ekki
eftirformann eða stjórnarformann heldur
kvittar Sigurður nokkur Sigurðsson undir,
maður sem fúll á móti þekkir hvorki haus né
sporð né hala né klaufir á. Titill greinar Sig-
urðar er ábyggilegur og æsandi í senn: „Póli-
tísk áhrif ESB-umræðunnar hérlendis."
Greinin er óborganleg, engu lík, æðisgengin.
Þar úir og grúir að mannviti og visku og er
farið um víðan völl í skarpri stöðugreiningu í
íslenskum stjórnmálaheimi og er aðalinntakið
þetta: Menn skiptast í tvo hópa með og á
móti ESB. Þetta er uppgötvun út af fyrir sig
og ekki eru þessi ummæli úr greininni síðri
að speki: „Pólitísk áhrif ESB-umræðunnar eru
því mjög víðtæk, þrátt fyrir að breidd skorti í
hana.“ Vá. Svo er því Ijóstrað upp að formað-
ur Neytendasambandsins sé allaballi, að lög-
fræðingar eigi sér öfluga málsvara á þingi og
að ungt fólk, íslenskur iðnaður og neytendur
séu útundan, minnihlutaneytendur sem
stungnir hafi verið af, úr hópnum sem öllu
ráði á íslandi. Svo er eitthvað talað um
Falklandseyjastríðið og að því loknu vitnað í
Churchill sem lét þessi orð falla: „Aldrei hafa
jafnmargir karpað jafnmikið af jafnlítilli þekk-
ingu um jafnmikilvægan málaflokk", og snýr
greinarhöfundur því upp á ESB-umræðuna á
Islandi. Fúlum á móti fljúga þessi orð óneit-
anlega í hug þegar rennir augunum yfir þessu
orð á stangli.
Svo er eiginlega ekki neitt meira í þessu
blaði, utan efnis um samtökin, ritnefndina og
einnar auglýsingar frá Framsóknarflokknum.
Fúll á móti getur hreinlega ekki beðið eftir
næstu sendingu frá þessu frjálslynda fólki í
framfarahug undir framsóknarmerki, því
svona lestur hlýjar hjartarótum, léttir lund og
gefur hraustlegt og gott útlit. X-B.
Greinarhöfuniiur er ráðinn til þess að hafa allt á
hornum sér, bregðast ókvæða við, hafa upp ónot.fara
með dylgjur og skeyta skapi.