Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1994, Síða 6

Stúdentablaðið - 01.12.1994, Síða 6
Bls. 6 HÁSKÓLINN STBL. • Desember 1994 Lánasjóður íslenskra námsmanna Tryggir hann framtíð okkar eða stefnir hann henni í voða? Miðvikudaginn 23.11. síðastliðin var haldinn í Odda stutt ráðstefna um Lánasjóð íslenskra náms- manna. Tilgangur ráðstefnunnar má segja að hafi verið óhefðbundinn því ræddar voru grundvallar- spurningar varðandi námsaðstoðarkerfi í stað þess að karpa um prósentur og hlutföll. Framsögu- ræðumenn voru fimm: Sigríður Gunnarsdóttir fulltrúi stúdenta í stjórn LÍN ræddi vítt og breitt um lánamál og kom m.a. inn á gildi menntunar, stöðu ungs fólks í samfélaginu og mikilvægi stöðugleika námsaðstoðar. Ragnar Árnason prófessor í hagfræði og stjórnarmaður í LÍN til margra ára ræddi námsaðstoð fram og tilbaka frá hagfræðilegu sjónarhorni og komst að þeirri niðurstöðu að auka ætti námsaðstoð mjög verulega, ekki endilega fyrir námsmenn sjálfa heldur einfaldlega fyrir hagkerfið og atvinnuvegina í heild sinni. Vitnaði hann þar til útreikninga Tryggva Herbertssonar hagfræðings sem hefur reiknað út áhrif mannauðs á hagvöxt (sjá nánar hér á síðunni). Magnús Guðmundsson frá BHMR bar saman námsaðstoðarkerfi á Norðurlöndunum og kynnti þær tillögur sem SHÍ hefur unnið að í sameiningu við BHMR. í máli hans kom m.a. fram að tölur LÍN um að íslenskir námsmenn hafi hafi mun hærri framfærslu en kollegar þeirra á Norðurlöndunum eiga ekki við rök að styðjast, þar eð stór hluti framfærslu norræna stúdenta kemur frá félagslega kerfi viðkomandi landa. Klaus Bryll, danskur lánamálasérfræðingur kynnti danska námsaðstoðarkerfið (sjá nánar á síðunni) og að lokum kynnti Sólrún Halldórsdóttir, rekstrarhagfræðingur og fjármálaráðgjafi hjá Neytendasamtökunum útreikninga sínu um hvað það kostar að lifa á íslandi (sjá nánar á síðunni). Að loknum framsöguer- indum fóru fram umræður um lánamál. Lánasjóðurinn er tímasprengja tafla 1 Rekstraráætlun hjóna m/ eitt barn Tekjur: 280.000 kr. Ráðstöfun: 193.000 kr. (e. skatta). Útgjöld: Matvara 35.000 kr. Hreinlæti 4.000 kr. Bifreið 10.000 kr. Fatnaður 10.000 kr. Bækur o.þ.h. 20.00 kr. Lteknir/lyf 4.000 kr. Hársn. o.þ.h. 3.000 kr. Fargjöld 3.000 kr. Tómstundir 10.000 kr. Bifrtrygg. 3.750 kr. Heimilis-/hústr. 1.000 kr. Stmi 2.000 kr. Rafm./hiti 3.000 kr. Húsgjötd 3.000 kr. Fasteignagjöld 3.750 kr. Heimilistæki/'húsg. 3.000 kr. Áskr. afnotagj. 4.500 kr. Bamagæsla 18.000 kr. Annað 10.000 kr. Samtals 133.000 kr. Húsnæðísián 45.000 kr. LÍN 22.600 kr. (fyrstu 5 árin 5 %) Samtals 200.600 kr. Niðurstaða -7.600 kr. tafla 2 Rekstraráætlun náms- manns í leiguhúsnæði Matur og drykkur 15.000 kr. Fatnaður 4.000 kr. Tómstundir 2.000 kr. Hreinlæti/hcilsa 2.000 kr. Önnur heim.útgj. 1.500 kr. Húsgögn/heimiíist. 3.000 kr. Blöð, sími, sjónv. 5.000 kr. Rafm./hiti 3.000 kr. Annað 8.000 kr. Samtals 43.500 kr. Húsnæðiskostnaður 20.000 kr. Feróakostnaður 3.000 kr. Samtals 66.500 kr. Lán 52.500 kr. Samt. t. ráðstöfunar 52.500 kr. Niðurstaða -14.000 kr. Sólrún Halldórsdóttir er rekstrarhag- fræðingur og fjármálaráðgjafi hjá Neyt- endasamtökunum. Sólrún hefur fengist vió útreikninga á því hvað það raunveru- lega kostar að lifa á íslandi, e.t.v. einföld spurning en engu að síður vandsvarað. Á ráðstefnunni setti Sólrún fram einfóld dæmi um útgjöld annars vegar náms- manns í leiguhúsnæði (tafla 2) og hins vegar hjóna á vinnumarkaði með eitt bam (tafla 1). Tölumar sem sjá má hér til hliðar eru að því er virðist raunsæjar og útkoma reikningsdæmisins því slá- andi. Skv. þeim er mánaðarlegur rekstr- arhalli (svo notað sé óþjált orðfar) náms- mannsins 14.000 kr. á mánuði og fjöl- skyldunnar 7.600 ísl. kr. Þetta er þeim mun ótrúlegra því í útgjaldatölunum er nær ekkert sem flokkast undir óþarfa eyðslu, þvert á móti: Útgjöldin einkenn- ast af ráðdeild og eru vafalítið nær neðri mörkum útgjalda en öfugt. Annars getur hver sem er dæmt um það sjálfur og reiknað út hvernig eigin rekstur gengur skv. þessu dæmi. Rœtt var við Sólrúmt og hún fyrst spurð hvort að þetta vœru raunhœfar tölur? „Já, ég tel það tví- mælalaust. Þær eru mjög raunhæfar fyrir t.d. hjónafólkið. Þær tölur eru fengnar beint úr heimilisbókhaldi íjölda fólks sem hefur verið á námsskeiðum hjá Neytendasamtökunum. Eg sjálft þekki þetta vel því ég er tiltölulega nýkominn úr námi. Þessar tölur endurspegla vel veruleikann eins og hann er í dag.“ Að- spurð um hvort 280.000 kr. ráðstöfunar- tekjur hjóna væru ekki of há upphæð sagði Sólrún þær tölur m.a. fengnar frá Þjóðhagsstofnun. „Að auki eru notaðar launatölur úr fjölskylduráðgjöfínni til þess að fá út þessa upphæð. Þó má ætla að þessi laun séu í hærri kantinum.“ En hvað telur Sólrún að fólk geri sem stend- urframmi fyrir því að vera í mínus mán- uð eftir mánuð? „Ef ekkert er gert þá endar auðvitað allt með ósköpum, það segir sig sjálft. Flestir átta sig venjulega á vandanum í tíma og þá er reynt að skera niður. Fólk reynir að skera niður til matarkaupa, kaupir ekki föt nema í litl- um mæli, reynir að vinna meira. Best hefur reynst fólki að skera niður útgjöld á sem flestum sviðum. Hvað námsmenn varðar er erfítt að segja hvað menn gera. Ætla má að margir fái aðstoð heiman frá. Svo eru líka margir sem einfaldlega kaupa ekkert í matinn síðustu daga hvers mánaðar, það veit ég fyrir víst.“ Sólrún bætti við að lánasjóðskerfið og húsnæð- iskerfíð mætti líkja við tímasprengjur, afar mikill fjöldi fólks stendur í endur- greiðslum við þessi kerfi og þær eru að sliga marga. Að hennar mati má sérstak- lega ætla að endurgreiðslur námslána muni valda erfiðleikum hjá mörgum. Því verði að breyta í tíma. Viðhorf til menntunar vandamál Klaus Bryll er danskur stúdent í liffræði og eðlisftæði. Hann tók þátt í ráðstefnu um lánamál á íslandi sem fulltrúi danskra stúdenta í nefnd sem hefúr það að markmiði að endurskoða danska námsaðstoðarkerfíð. Stúdentablaðið ræddi lítillega við þennan geðþekka Dana. „Munurinn á danska og islenska náms- aðstoðarkerfinu er afar mikill. Í fyrsta lagi er um 2/3 þeirrar upphæðar sem danskir námsmenn hafa scr til framfærslu í formi styrkja, 1/3 cru lán. Í tölum séð cru þetta um 35.000 ísl. kr. í styrki og um 15.000 kr. í lán. Heildarskuld námsmanna að námi loknu er því mun lægri cn hér á íslandi, t.d. í lok limm ára náms skulda menn að meðaltali eina milljón. í öðru lagi eru lánin ekki verðtryggð en bera 4% vexti og þau borga menn vcnjulega upp á innan við 15 árum.“ En upphœðin sem danskir námsmenn J'á úr námsaðstoðarkerjinu er lcegri en íslenskir námsmenn úr sínu kerji. eða hvað? „Jú, mér skilst það. Hins vegar verður aó taka það með í reikninginn að við í Danmörku erum líka inni í félagslega kerfinu í formi t.d. húsaleigubóta, atvinnuleysisbóta og bóta til einstæðra mæðra og bamafólks. Ef sú upphæð er tekin inn í, t.d. í dæmi bamafólks eða náms- manns með maka á framfæri, stenst sú fullyrðing engan veginn að íslenskir námsmenn hafi það betra en t.d. námsmenn i Dan- mörku. Svo ber á það að líta að íslenskir námsmenn verða að borga hveija krónu tilbaka sem þeir fá í lán, meðan við í Dan- mörku borgum aðeins lánin til baka eins og ég sagði áðan." En hverjir eru að mati Klaus Bryll helstu gallar íslenska námsað- stoðarkerfisins? „Það cr a.nt.k. ekki upphæðin sem slík sem menn fá á mánuði. Mér líst náttúralega illa á endurgreiðsluregl- umar sem cra afar strangar, cftirágreiðslur eru námsmönnum dýrar og þetta gerir þaó að verkum að margir treysta sér senni- lega ekki í nám. Mér sýnist í fljótu bragöi að stærsti vandinn sé i raun viðhorf íslendinga til menntunar og stúdenta", sagði Klaus Bryll að lokum. Námsaðstoð er styrkur við atvinnulífið Ragnar Arnason, prófessor í hag- fræði við Háskóla jslands og stjómar- maður í LÍN til margra ára fullyrti á ráðstefnunni að námsaðstoð væri fyrst og fremst þjóðhagslega hagkvæm, réttlætis- og jafnréttishlið námsað- stoðar væri aðeins hliðarafurð. Þess mætti líta á námsaðstoð sem styrk við atvinnulífið, sérstakleg við þær geinar sem þurfa á menntafólki og þekkingu að halda. En hvernig tengir Ragnar námsaðstoð við hagvöxt? „Skv. nýj- ustu rannsóknum sem Tryggvi Her- bertsson hagfræðingur hefúr unnið að, skila sér þeir 22 milljarðar sem ríkið leggur í menntakerfið á ári, í um 100 milljörðum í beinum hagvexti á ári.“ Hvernig er þetta reiknað út? „Það er nokkuð flókið mál og erfitt að útskýra í stuttu máli. En í grófum dráttum era tölugögn um menntamál og tölugögn um hagvöxt frá lokum heimsstyrjaldar síðar borin saman. Þar er beitt bæði tölfræðilegum, hagmælingarlegum og hagfræðilegum aðferðum til að fá út niðurstöðuna. Hún er sú að 28% af þeim hagvexti sem hér hefur átt sér stað, má rekja beint til menntunar; það samsvarar um 25% þess sem framleitt er í dag.“ Eru þetta viður- kenndar aðferðir? „Já og meira en það. Þessar aðferðir eru meðal þess allra fremsta í heiminum í dag, með því nýjasta sem er að gerast í hag- fræði. Hins vegar verður að viður- kenna að svona útreikningar fela alltaf í sér vissa óvissu og ónákvæmni, ó- vissan er á bilinu 5-40%. Það breytir hins vegar ekki grundvallamiðurstöð- unni: Að Qárfesting í menntun borgar sig margfalt út frá efnahagslegum sjónarhóli." Ragnar bætti við að það væri vitað mál að menntun væri mjög veigamikill þáttur í efnahagslífi hverr- ar þjóðar og því væri undarlegt hve breytingar á t.d. námsaðstoðarkerfí ættu sér stað án mikillar íhugunar. „Það er fyllsta ástæða til þess að gaumgæfa vel allar breytingar á menntakerfi, ekki síst þegar skorið er niður. Þegar vegarspotti er lagður, þegar byggja á brýr eða reisa álver út um allar trissur, þá eru framkvæmdir hagkvæmnisútreikningar. Hins vegar þegar breytt er í menntamálum þá fer ekki fram nein þjóðhagsleg ábata- greining af neinu tagi heldur er frarn- kvæmt að því er virðist af á tilviljana- kenndan hátt. Það er mitt mat, að ef slík greining færi fram, þá yrði aukið við framlög til menntamála en ekki skorið niður", sagði Ragnar að lokum.

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.