Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 8

Stúdentablaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 8
Bls. 8 ORÐASKAK STBL. • Desember 1994 Stjórnmál stúdenta hafa löngum verið tilefni hat- rammra deiina. Við þau hcfur löngum loðað, að vera óvægin og ilivíg, þar sem hart er barist um menn og málefni. Dagur B. Eggertsson, formaður Stúd- entaráðs Háskóla Islands og Heimir Örn Herbertsson, odd- viti Vöku í SHI eru í orðaskaki og takast á um launamál, ár- angur og baráttuaðferðir í stúdentapólitík. Stbl.: í síöasta Vökublaði er því slegió upp aó starfsmenn Stúdentaráðs bafl þegið um 2 milljónir króna í laun síðan þeir tóku við ( vor. Þetta er há upp- hœð svo ég spyr, ertu á svim- andi háum launum? Dagur: Svarið við því er nei. Starfsmenn SHÍ hafa raunar ekki þegið 2 milljónir króna í laun heldur 1.603 þúsund krónur en það er í sjálfu sér aukaatriði. Að- alatriðið er það að þetta eru sanngjöm laun og það er unnið fyrir þeim og vel það. Sem dæmi má nefna að þessir starfsmenn hafa safnað í beinum styrkjum til SHÍ tvöfalda til þrefalda þá upp- hæð sem þeir þiggja í laun. Stbl.: Hiuti af þeim styrkjum eru raunar þess eðlis að aðeins er um framlengingu að rœða. En aftur að þér, Dagur. Hve há eru launin, krónutalan? Dagur: 120.299 kr. á mánuði fyrir formann og framkvæmda- stjóra og tæpar 80.000 kr. fyrir lánasjóðsfulltrúann. Stbl.: Heimir, flnnst þér óeðlilegt að kjörnir fulltrúur stúdentar þiggi laun fyrir fulla vinnu? Eða er það þessi upp- hœð sem slík sem er ykkur þyrnir í augum ? Heimir: Nei, við höfum ekk- ert á móti því að SHI hafi laun- aða starfsmenn. Hins vegar verð- um við að skoða heildarmyndina sem er þessi. Formaður og fram- kvæmdastjóri þiggja 120.299 kr. á mánuði hvor um sig, sem og ritstjóri Stúdentablaðsins. Lána- sjóðsfulltrúi þiggur sín laun frá Lánasjóðnum. En svo virðist sem við þessi laun sé miðað í öðrum launagreiðslum Stúdenta- ráðs. Dagur: Það er ekki rétt. Heimir: Ég nefni sem dæmi báða starfsmenn Atvinnumiðlun- ar sem þiggja hvor um sig 120.299 á mánuði. Stbl.: Er eitthvað óeðlilegt að þetta fólk sem er ráóið afkjörn- um fulltrúum stúdenta þiggi laun fyrir sina vinnu, svo ég endurtaki spurninguna? Heimir: Við höfum aidrei sagt að við eigum ekki að vera með laun í þessu starfi. Spumingin er sú hvort að sú velta og störf þau sem SHI á að vinna í þágu stúd- enta, leyfí svona há laun? Mér fínnst 120 þúsund krónur há laun. Það efast hins vegar enginn um það að ekki komi vinnufram- lag fyrir. Stbl.: Finnst þér að það eigi að lœkka launin? Heimir: Já, ég sé ágætar for- sendur fyrir því að launin yrðu lækkuð, t.d. niður í 80 þús. krón- ur á mánuði. Bara sá spamaður myndi skila mjög miklu fé inn sem væri hægt að nota í annað. Stbl.: Hvað með þig Dagur, finnst þér 120 þúsuttd króttur of há laun? Dagur: Mér gríðarlegra tengsl út í þjóðfélag- ið sem spilar náttúmlega inn í þegar menn fara út í atvinnulífið seinna meir. Þetta atriði verða menn að hafa í huga. Aðalpunkt- urinn er sá að þegar menn ætla að bera saman laun starfsmanna SHÍ og annarra á vinnumarkaðn- um t.d. háskólamenntaðra manna í stjómunarstöðum þá gengur það ekki. Dagur: Auð- finnst þau ekki of jVg myndi ekki stundu v'tað gen8ur Það há, mér finnst þau hins vegar sann- gjöm. Starfsmenn SHI vinna á viku hverri á bilinu 40- 50 yfirvinnutíma. Auðvitað má alltaf deila um það hvað séu sanngjöm laun. Þó að við séum hér í stúdentapólitík þá þýðir það ekki að við eigum að vera á mun lægri Iaunum en ger- ist á hinum almenna markaði. Það er sama hvaða námsmann þú tekur sem vinnur um 200 yfir- vinnutíma á mánuði, hann fengi aldrei 120 þús á mánuði, ekki nema hann væri með um 40 þús- und í grunnlaun og það er langt undir lágmarkslaunum í landinu. Heimir: Þetta finnst mér vera útúrsnúningur. Hvers eðlis er það starf að vera formaður og í hagsmunabaráttu til aðfegra ímynd stúdenta, ég stend í hagsmunabaráttu til aó bæta hag þeirra Heimir Örn ekki. Ég er bara að segja það, að ef þú ætlar að leggja svipað mikla vinnu og unnin er í Stúd- entaráði og reikna hana í tímafjölda, og hér er ritstjóri Stúdentablaðsins ekki undanskilinn, þá fá menn út að grunnlaunin ættu að vera 40 þúsund á mánuði. Eitt enn. Ég vek sérstaka athygli á því að í þessari umræðu um laun í Stúd- entaráði þá er fáranlegt að nota þau rök að menn væru í gegnum störf sín hér að kaupa sér ein- hverja atvinnumöguleika út í at- vinnulífið eða frama inn í pólitík og flokka. Þetta dettur engum í hug og er greinilega grundvallar- munur á því hvemig við litum á þessi störf. Við emm héma til þess að vinna að hagsmunamál- um stúdenta en ekki til að kaupa einhver tengsl. Heimir: Nú ert þú að snúa út úr því sem ég sagði. Það talaði enginn um að kaupa einhver tengsl. Ég sagði aðeins að starf formanns SHI býður upp á möguleika sem varla bjóðast annars staðar fyrir fólk á þessum aldri með jafnlitla menntun. Þó ég segi að starf bjóði upp á mikla möguleika þá er fráleitt að halda því fram að einhver sé að kaupa sér tengsl. Það sagði ég aldrei. Stbl.: Hvað um það. Öttnur framkvæmdastjóri Stúdentaráðs? Hvar annars staðar finnurðu starf sem gefur þér viðlíka möguleika á að komast í tengsl, hvort held- ur er á sviði atvinnumála eða stjómmála? Stbl.: Liturðu þá á þetta starf i stúdentapólitik sent stökkpall inn i eitthvað anttað, annað hvort pólitik eða atvinnulíf og þess vegna eigi menn að fá liegri lautt fyrir vikið? Heimir: Alls ekki. Ég er að segja að fyrst og fremst eru þessi störf þannig að menn skapa sér spttrning. Vaka lagði frattt fyr- irspurn á Stúdentaráðsfundi í sumar itm hve margir stúdentar á fundinum hefðu þegið lattn í þágu stúdenta. Þá réttu upp Itönd fimm Röskvttliðar og tveir Vökumenn. Finnst þér eólilegt að margir úr liói Röskvu séu að þiggja laun fyrir störf í þágu stúdenta? Dagur: Þarna á meðal vom t.d. háskólaráðsliðar úr báðum fylkingum og stúdentar sem hafa setið í nefndum á vegum Háskól- ans. Mér finnst ekki að menn eigi að afsala sér launum fyrir nefndarstörf á vegum HÍ. Málið er það, að það eru einstaklingar og þeir em nokkrir innan Röskvu sem hafa helgað sig hagsmunastarfi og m.a. hætt námi, og þá finnst mér rétt að þeir fái fyrir það laun. Ná- kvæmlega eins og Heimir er að fá laun fyrir að gefa út Akademíu, hann fær 115.000 kr. fyrir 2-3ja vikna vinnu meðan ég fæ 120.000 kr. fyrir mánuðinn. Heimir: Ég beið nú eftir því að Dagur myndi minnast á mín laun fyrir Akademíu. En fyrst að því sem hann sagði áðan. Það kemur þessu máli ekkert við hvaða laun menn eru að þiggja frá Háskólanum. Um það snýst ekki spurningin. Hún snýst um þetta. Þegar að Röskvumenn em við stjórnina i SHÍ þá er það hending ef einhver annar er ráð- inn til starfa en Röskvumaóur. í mínu tilfelli sem sé um Akadem- íu þá er ég ráðinn til starfa í ljósi reynslu minnar enda þekki ég allar hliðar þeirrar útgáfú frá því í fyrra. Hins vegar er reglan sú að þegar Röskva er að ráða menn til starfa fyrir SHÍ þá eru jafnvel störf ekki auglýst eins og starf kvennafulltrúa. Dagur: Er það launað starf? Heimir: Nei, að vísu ekki en það kom fram í umræðu á Stúd- entaráðsfundi af hálfu Röskvu- manna að það væri hugsað sem möguleiki í framtíðinni. En þetta er ekki aðalatriðið. Og varðandi mín störf við útgáfu Akademíu og þá fullyrðingu að ég hafi 115 þús. fyrir 2-3 vikur en Dagur 120 þús. fyrir mánuðinn. Þetta er náttúmlega hrein og klár lygi. 12. október er ég ráðinn til að sjá um útgáfuna, í dag er 24. nóvem- ber. Frammistaða SHÍ er með ó- líkindum slök og ég er enn bíða eftir gögnum til að geta klárað starfið. Ég er bú- inn að vinna að þessu í 7 vikur og verð fram í des- ember. Að auki þarf ég að greiða allan kostnað og tækjakaupr. Stbl.: Þessi launaumrceða hefur vakið athygli og verið á- berandi. Hingað til hafa bœði Röskva og Vaka greitt sinum mönnum lauti fyrir störfi Stúd- entaráði og þau hafa verið mis- ntikil á hverjum tima. Nú erþaó gamalt hragð i pólitík aó tala uin launagreiðslur. Heimir, er hér e.t.v. um að rœða lúmskti- lega aöferð hjá ykkur i Vöku til að Itöggva ti! Röskvu, með því nt.a. aó undirbjóða í launakröfum? Heimir: Nei, alls ekki. Það sem vakir fyrir okkur er einfalt. Stúdentar em í mjög harðri samkeppni við önnur öfl í þj óðfélaginu um athygli og árangur í sinni hagsmunabar- áttu og þar þarf að hafa allar klær úti. Meiri hluti af veltu SHÍ verður að fara í þá baráttu en ekki í laun. Öll fyrirtæki verða að hag- ræða þegar illa gengur og illa árar, það þarf Stúdentaráð líka að gera. Vaka greiddi sínum mönn- um um 120 þúsund í laun á mán- uði á sínum tíma ef ég man rétt . Dagur: Nei, þau voru 145 þús á mánuði, auk þess sem kostnað- ur var greiddur. Heimir: Hvort sem er, þá bám Röskvumenn upp þá tillögu þeg- ar þeir vom í minnihluta að laun formanns og framkvæmdastjóra SHI yrðu 40 þúsund kr. á mán- uði. Þegar þeir hins vegar skip- uðu formanninnn ári síðar þá Við erum hérna til þess að virtna að hagsmunamálum stúdenta en ekki til að kaupa einhver tengsl Dagur B Eggertsson greiddu þeir sér 120 þúsund krónur sjálfir i laun. Stbl.: Þú gafst stikkorðið, Heimir, og því vinduni við okk- ur út í aðra umneðii, um árattg- ttr. Þú sagðir, að Stúdentaráð yrði að hafa peninga til þess að ná athygli á síntiin máluni og þar með árangri. í ár hafa stúd- entar sjalduit eða aidrei verið jafnmikið í fjölmiðlum i iim- rœöu tiiit t.d. flármál Háskól- ans. Getur þú sagt að hér sé ekki verió að vinna eins og verið er að ýja að með launaum- rœðu? Heimir: Nei, það er gmnd- vallarmisskilningur eins og ég sagði áðan. Það hefur enginn haldið því fram í Vöku að í SHÍ sé ekki verið að vinna. Þegar við ræðum hins vegar árangur þá kemur ágreiningur á milli fylk- inganna í ljós. Ég get fallist á að það er ánægjulegt að stúdentar hafi getað komið sér jafnvel í fjölmiðla og raun er á. Það er bara eitt skref í átt að settu marki og þess bera að geta að það er starf þessa fólks að koma hags- munamálum okkar á framfæri. Það er bara þeirra starf og það að rækja það er í sjálfu sér ekkert merkilegt. Það sem skiptir máli er árangurinn sjálfur, hvort þú nærð einhverju peningum í kass- ann. Það er þar sem sagan verður sorgleg. Stbl.: Dagur, það liefur vissu- iega tekist aó beiita sjónum flöl- miðlanna aó Háskólanum, en hefur eitthvað breyst? Hefurðu náð einhverjum áraitgri? Dagur: Peningarnir em nátt- úrulega ekki afgreiddir eftir hendinni og því síður eftir ein- hverjum myndakvóta í dagblöð- unum... Stbl.: . . . það hefði vcentan- lega verið hagsmunum stúdenta í hag? Dagur: Já, já. Fjárlög eru hins vegar ekki afgreidd frá Al- þingi fyrr en unt áramót. Háskól- inn stendur í eilífu stríði fyrir hækkuðum Ijárveitingum. Ef að menn kalla það ekki árangur að vekja athygli á ástandi Háskól- ans, á stöðu Háskólans, á gildi menntunar, á því starfi sem er unnið innan Háskólans, á stöðu bókasafnsins, á frumkvæði stúd- enta og þeim krafti sem í okkur býr og nýjum hugmyndum sem við höfum verið að birta, þá em menn komnir í mótsögn við öll sín fyrri orð. Um að mestu máli skipti til lengri tíma, ímynd stúd- enta, ímynd Háskólans og það viðhorf sem ríkir til menntunar og þess sem hér er gert úti í þjóðfélaginu. Ef við fáum ekki nægilega mikla leiðréttingu i næstu fjárlögum, sem ég vona svo sannarlega aó við fáum, þá hefur okkur alla vega tekist að gera menntamál að stóru máli í næstu kosningum. Þjóðarátakið fyrir Þjóðbókasafni er t.d. hluti af því starfi og með öllu okkar

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.