Stúdentablaðið - 01.12.1994, Page 12
Bls. 12
HÁSKÓLINIM
STBL. • Desember 1994
Mikilvægt að
umræða um
málið hefjist
Þau Brynhildur Þórarins-
dóttir og Guðmundur
Steingrímsson, háskóla-
ráðsliðar Röskvu, lögðu fram
drög að 3ja ára verkáætlun fyrir
Háskóla íslands á háskólaráðs-
fundi þann 24.11. síðastliðinn.
Stúdentablaðið ræddi við þau
um þessi drög.
Hvað er nýtt í þessari verk-
áœtlun sem þið lögðuð fram?
„Það sem er í sjálfu sér nýtt,
er sú hugmynd að háskólaráð
móti sér verkáætlun til þriggja
ára í senn. Háskólaráð hefur að
sjálfsögðu alltaf sett sér mark-
mið en þetta plagg er heildará-
ætlun til þriggja ára, sem sam-
svarar einu rektorstímabili. Og
þetta em sýnileg markmið, það
viljum við leggja áherslu á.“
Hvernig er stefnumótun Há-
skólans farið í dag?
„Nú er það svo, að hver deild
starfar náttúrulega sjálfstætt og
á að gera það. Háskólaráð á
hins vegar að marka stefnu
fyrir HI allan. Þessi drög em
skref í þá átt.“
Nú eru í plagginu hug-
myndir frá fleirum en
Rösk\’u?
„Já, að sjálfsögðu. Tillag-
an frá okkur felst í því að
mótuð verði 3ja ára áætlun.
Svo eru lagðar fram tillögur
sem em víða að, t.d. úr SHI,
frá Óháðum, úr Þróunar-
nefnd og ýmislegt tínt til
sem nú þegar er verið að vinna.
Við höfum aldrei haldið því
fram að þetta séu allt okkar
hugmyndir og höfum kynnt þær
í Háskólanum, m.a. formönnum
deildarfélaga. Það sem er mikil-
vægt er að háskólaráð hafi
svona 3ja ára áætlun, setji sér
raunhæf markmið og komi i
meiri mæli að alls kyns ákvarð-
anatöku. Um leið verður sýni-
legt hvað það er sem Háskólinn
vill og menn sjá árangurinn
betur. Um leið er skýr
stefna og raunhæf fram-
kvæmdaáætlun mikil-
væg forsenda sér-
k. . hverrar fjárlaga-
beiðni. Þá er hægt að leggja
fram svart á hvítu hvað það er
sem peningamir eiga að fara í.“
Hvernig voru viðtökurnar í
háskólaráði?
„Þær voru mjög góðar. Menn
vom sammála um að reyna að
drífa sumar af þessum tillögum
í framkvæmd. I því samhengi
var m.a. rætt um aðstoðar-
mannakerfi og stjómsýslukönn-
un, hlutir sem eru framkvæm-
anlegir og kosta ekki mikla
peninga. Svo var minnst á hug-
myndina að „hjarta Háskólans"
og tekið vel í hana.“
‘Hver verða nœstu skref í
þessu máli?
„Nú er mikilvægt að umræða
um verkáætlunina hefjist í Há-
skólanum, meðal sem flestra,
svo allir geti komið með sýnar
hugmyndir. Að öðm leyti munu
þessi drög verða send umsagn-
araðilum í stjómsýslu Háskól-
ans. En niðurstaða háskólaráðs
var sú að byrja að vinna að
verkáætlun af fullum krafti og
reyna að hrinda raunhæfum
hugmyndum í framkvæmd sem
fýrst.“
Tillaga samþykkt í Háskólaráði um að Háskólinn geri
sér verkáætlun til þriggja ára
r
Háskólaráðsfúndi þann
10. nóvember síðastlið-
inn lögðu Háskóla-
ráðsliðar Röskvu fram drög að
því sem þau nefndu fram-
kvæmdaáætlun fyrir Háskólann
til þriggja ára. Þann 23. nóvem-
ber var lögð fram formleg til-
laga þess efnis að Háskólaráð
samþykki að slík verkáætlun
verði gerð. Tillagan var sam-
þykkt.
í drögum Röskvu em nefndar
til sögunnar margar hugmyndir
úr ýmsum áttum. Hér til hliðar
má sjá lista yfir þær hugmynd-
ir/nýjungar sem em að finna í
drögunum. í drögunum kennir
margra ólíkra grasa. Þar em
hugmyndir um það, hvemig
bæta má kennslu í Háskólanum
og er lagt til að nýjir kennslu-
hættir verði teknir upp,
kennslutækni- og kennslumála-
ráðstefnur verði haldnar reglu-
lega og aðstoðarmannakerfi
(,,tutor-kerfí“) verði komið
markvisst á í hverri deild. í
kaflanum um gæðamat er lögð
áhersla að framkvæmt verði
gæðamat á kennslu og það haft
í höndum nemenda. í þeim
kafla er aukinheldur að finna
tillögur um að efla samnorrænt
gæðamat á háskólum, sem og
gæðamat á próf við HÍ. Athygl-
isverðar hljóta að teljast hug-
myndir um að háskólakennarar
setji sér samskipta- og siðaregl-
ur. I kaflanum um réttindamál
er m.a. lagt til að réttindaskrá
stúdenta verði staðfest og að
stjómsýsluúttekt verði gerð á
Háskólanum. Lagt er til að al-
þjóðasamstarf verði eflt, sem og
kynningarmál. Hvað varðar
fjármál Háskólans er lögð á-
hersla á, að reikniregla sú, er
reiknar út fjárveitingu á hvem
virkan nemanda, verði lögð til
grundvallar fjárveitingarbeiðn-
um. Þar er einnig minnst á, að
deildir Háskólans njóti eigin
spamaðar og geti þannig ráð-
stafað „sparifé“ að eigin vild.
Vikið er að sérstakri fjáröflun
fyrir Háskólann og þar nefnd til
sögunnar markmið eins og þau
að Háskólinn nái til sín einka-
leyfísgjaldi því sem það greiðir
ríkinu af peningahappdrættum
sínum, tillöguna að hollvina-
kerfi fyrir Háskólann er þama
að finna og síðast en ekki síst er
minnst á það fé sem HÍ á hjá
Eimskipafélagi Islands.
Stúdentablaöið birtir hér á
síöunni úttekt úr drögunum
og hvetur allt Háskólafólk til
þess að velta rækilega fyrir
sér hugmyndinni að verkáætl-
un fyrir HÍ og láta ekki sitt
eftir liggja í öflugri umræðu
um það, hvernig hún á að líta
út.
Ferskleiki
er okkar
bragð!