Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 14

Stúdentablaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 14
Bls. 14 HÁSKÓLINN STBL. • Desember 1994 Munið eftir 1. des. ballinu 30. nóvember kl. 22 - 03. TUNGLID œ uinlýraÁeim u r s Á ó í a f 6 í Á s Þjóðar- bókhlaðan er fyrir alla þjóðina Einar Sigurðsson er landbókavörður, eða forstöðumaður Landsbókasafns íslands- Háskólabókasafns, eins og hin nýja stofnun í Þjóðarbókhlöð- unni kallast opinberlega. Einar var áður háskólabókavörður en hefur síðastliðin þrjú ár eingöngu unnið að undirbúningi opn- unnar hins nýja safns. Eftir sextán ára byggingarsögu og enn lengri undirbúning liggur beint við að spyrja, hvort þessi bið hafi verið þess virði? „Já, tvímælalaust. Bygging Þjóðarbókhlöðunn- ar og sameining Landsbókasafns og Háskóla- bókasafns í henni er mikil framför. Með samein- ingunni verður til hagkvæmari rekstrareining. Kostimir við að sameina söfnin eru meðal annars þeir að hægt verður að draga úr tvíkaupum, þ.e. að bæði söfnin kaupi sömu bók eða tímarit. Breiddin í erlendum ritakosti mun aukast. Þetta er ekki síst mikilvægt fyrir þjóðbókasafn. Við erum hluti af umheiminum, ekki síst Evrópu, og tengjumst honum sterkum böndum. Það er því nauðsynlegt að erlent stuðningsefni sé með ís- lenska bókakostinum. Samnýting á húsnæði og tækjum mun einnig bæta þjónustuna og auka hag- kvæmni. Fyrir Háskólann verður mikilvægt að fá þjóð- deildina og handritadeildina svo að segja í hlað- varpann. Þægilegur aðgangur að þessum söfnum bætir rannsóknaraðstöðu þeirra fræðimanna sem mest þurfa á þessum ritum að halda.“ Nú er hönnun hússins að nálgast það að verða tuttugu ára. Er Þjóðarbókhlaðan orðin úrelt? „Nei, hönnun hússins hefur verið endurskoðuð á byggingartímanum til að mæta tæknibreyting- um. Þar munar mest um tölvuvæðinguna. Ná- lægt því hundrað sæti verða með tölvum. Þess má geta að tölvustrengir í húsinu eru alls um 65 km að lengd.“ Er ekki hœtta á því að stúdentar og mennta- skólanemar troðfylli bygginguna og frœðimenn og aðrir þeir sem cetla að nota rit safnsins komist ekki að? „Það má auðvitað ekki gerast að Þjóðarbók- hlaðan verði aðeins lessaðstaða fyrir framhalds- skólanema þótt þeir eigi þar vissan rétt. Annað meginhlutverk stofnunarinnar er hins vegar að vera bókasafn Háskóla íslands. Þangað eiga því stúdentar að sækja, sérstaklega þeir sem þurfa að notfæra sér ritakost og þjónustu saíhsins. Less- sæti verða nálægt sjö hundruð og við reiknum með að stúdentar nýti yfir helming þeirra. Til þess meðal annars að ásókn stúdenta verði ekki of mikil mun áfram verða haldið opnum lessstofum í byggingum Háskólans, líklega með þrjú til fjögur hundruð sætum. Jafnframt munum við tryggja hag fræðimanna með því að handritadeild, þjóðdeild og nokkur sérsöfh munu hafa sérstök lessæti. Svo verða nær 30 lítil vinnuherbergi sem verður úthlutað til þeirra sem vinna að rannsóknarstörfum. Með þessum hætti meðal annars held ég að tryggt sé að stúdentar verði ekki allsráðandi." En hvað með almenning? Hefur hinn almenni borgari eitthvað að scekja í Þjóðarbókhlöðuna? „Ég held að þetta safn geti orðið tæki til að tryggja jafnrétti þegnanna og stuðla að almennum mannréttindum. Almenningur hefur þama að- gang að upplýsingum sem annars væri mjög erfitt að nálgast. Þannig verða þessi gæði eign fleiri en afmarkaðs hóps sérfræðinga. Fólk á þess líka kost að kanna safnkostinn utan frá með tölvusam- bandi. Þetta getur nteðal annars fólk utan af landi nýtt sér. Nú á tímum símenntunar og endur- menntunar held ég að allir eigi erindi á bókasafn. Þjóðarbókhlaðan er fyrir alla þjóðina. Safnið getur að auki orðið tengiliður mi11 i Há- skólans og atvinnulífsins. Forráðamenn Háskól- ans hafa einnig litið til þess að þarna verði hægt að miðla upplýsingum til almennings um afrakst- ur háskólastarfsins, t.d. með fyrirlestrahaldi og annars konar samkomum og sýningum. I bók- hlöðunni er fyrirlestrasalur og kaffistofa sem einnig verður hægt að nýta utan venjulegs opnun- artíma safnsins. Þar verður hægt að efna til margs konar menningarviðburða, annað hvort á vegum safnsins sjálfs eða annarra. Ég vil taka það fram að allir þeir möguleikar sem ég hef nefnt hér á undan byggjast á því að safnið verði ekki svelt. Til þess að safnið fái not- ið sín sem fræðasetur, varðveislustaður íslenskrar ritmenningar og upplýsingamiðstöð má það ekki vera með neinum kotungsbrag. Það á að vera annað og meira en lesstofur og útlánahús af ein- faldri gerð. Háskólabókasafn og Landsbókasafn hafa búið við þröngan kost og hafa ekki náð að sýna styrk sinn sem skyldi um langa hríð. í nýja safninu þarf að setja markið hærra.“ Helgi Þorsteinsson

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.