Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.12.1994, Qupperneq 20

Stúdentablaðið - 01.12.1994, Qupperneq 20
Bls. 20 ORÐASKAK STBL. • Desember 1994 Orðaskak framhald af bls. 9 Stbl.: Víkjum aö baráttuaöferðum. Nú hefur Stúdentaráð tekió upp samstarf viö BSRB, ASÍ, VSÍ og BHMR til þess aö móta tillögur aó nýju námsaðstoðarkerfi. Er þetta rétt eóa röng baráttu- aðferó? Heimir: Málið er það að ef menn ætla í sameig- inlega kröfugerð með þessum aðilum, ef menn ætla að leggja mál sameiginlega fram.. . Dagur: Það liggur ekki fyrir. Heimir: En það er einmitt höfuðmálið. Mér finnst í góðu lagi að fara í samstarf við aðra aðila um hugmyndir og frumvinnu. Spumingin er svo hvemig tillögur verða settar fram. Ég set spuminga- merki við það, að fara í sameiginlega kröfugerð með verkalýðshreyfingu gegn ríkisvaldinu og ég hef áður nefnt þá punkta. Verkalýðshreyfíngin er nánast alltaf andstæð ríkisvaldinu, þeir em alltaf í kröfugerð gagnvart ríkinu og ég tel það ekki sterkt stúdentum að lenda i þeirri skotgröf. Sérstaklega ekki Dagur, ef þú ert sammála mér um það að stúd- entar eigi að gera meira af því að vinna með heldur en gegn. Dagur: Hvað með VSÍ? Heimir: Þó þú dragir inn einhver ein samtök sem hingað til hafa verið samstarfsaðili ríkisins þá vegur það frekar létt á móti verkalýðshreyfingunum. Dagur: En þetta em einu alhliða samtök vinnu- veitenda, við getum ekki leitaó til neinna annara til þess að fá hagsmuni vinnuveitenda inn í lána- sjóðsumræðuna. Málið er bara það, að verkalýðs- hreyfingin er klofnari og því varð að leita þar til þriggja aóila. Það er því bara mgl að harma aö það sé einn á móti þremur. Stbl.: Þessar tiliögur um róttœkar breytingar á LÍN sem allir biða eftir þcer liggja ekki á borðinu, þeer eru í skoðun. Er ekki fyrst og fremst of tíma- frekt að cetla sér i samstarf við þter risaeðlur sem þessar hreyjingar eru? Og í öðru lagi, er ekki ó- raunscett að aetla að sér að umbylta Lánasjóðnum i stað þess að ná fram framförum i minni skref- um? Dagur: Við vekjum auðvitað áhuga og athygli á LIN með því að benda á helstu gallana í núverandi kerfi. Það sem við emm að hugsa með þvt aó fara í þetta víötæka samráð er að vera ekki að fara út í einhverja kröfugerð sem er óraunsæ. Þarna fáum við miklu breiðara bakland og ef að við emm kom- in með einhvers konar álitsgerð, ég tala nú ekki um samþykki frá einhverjum þessara aðila, þá hefði það miklu meiri þyngd í hinni pólitísku umræðu og hefði mikli meiri þýðingu á kosningaári. Heimir: Þú talar um raunhæfar tillögur. Þetta er bara vitleysa. Er líklegt að þessi vinna skili okkur nokkum tíma árangri? í kosningunum í febrúar var básúnað: „Nú er lag“. Hvaða lag þaó var, veit ég ekki, en ákaflega virkar það falskt í mín eyru núna. Nú stendur til aö setja pressu eftir áramót og þá er vonin sú að eitthvað fari að gerast á næsta haust- þingi 1995. Er þetta áætlunin, að eitthvað gerist einu og hálfu ári eftir að lagið var spilað í kosning- unum í febrúar. Dæmigert fyrir það hvemig þiö ljúgið að stúdentum í kosningabaráttu. Stbl.: Héðan er ekki langt ofan i skotgrafirnar, þannig að við skulum skella okkur ofan í þcer. Heirnir, þú sakaðir Röskvu um að hafa beitt ó- vönduðum meðulum til þess að vinna kosningar nú i vor. t síðasta Vökublaði eru þcer margar pill- urnar i átt Röskvu. í einum mola eu getgátitr um hve mikið hinir ýmsu starfsmenn hafi unniö fyrir þjóðarátakið og þvi svo haldið fram að 70% af þvi sem safnast hafi, hafi farið í launakostnað. Þetta er ncer allt rangt sem kemur fram i þessum mola. Hvað fmnstþér um svona vinnubrögð? Heimir: Ég vil taka það fram varðandi þennan tiltekna mola, að ég grennslaðist fyrir um það, að hann var byggður á þeim tölum sem vom opinberar á þeim tíma um hvað safnast hefði. Stbl.: Það kemur ekkifram ímolanum. Heimir: Nei, mistökin sem menn gera, er að leita ekki þeirra upplýsingum sem em raunverulega rétt- ar. Ég biðst afsökunar á því að þama hafa komið fram einhver misskilningur. Hitt er svo annað, að þegar við emm ræða um laun hér, og Dagur neitar því að launakostnaður sé orðin 2 milljónir króna, þá er hann að segja ósatt. Stbl.: Finnst þér stúdentum til framdráttar, að tala á þessum nótum, eins og í þessum mola, um sín stjórnmál? Heimir: Spumingin er sú, eigum við aö þegja yfir því hvað menn í Stúdentaráði em aö þiggja í laun? Eða hvað ætla má að peningunum sé varið í, bara vegna þess að það kann að koma stúdentum illa? Eða eiga þau í Röskvu að láta af því háttemi sem okkur og mörgum fleiri finnst óeðlileg. Þetta er spumingin. Þessi spuming á líka við Stúdentablað- ið. Á það að segja það gott og blessað þegar Röskvumenn lýsa því yfir að sumarmisseri sé á næstu grösum, það vanti bara 30 milljónir? Á Stúd- entablaðið að þegja yfir fréttum ef þær kunna að koma stúdentum illa,þótt þær séu sannar? Stbl.: Að sjálfsögðu á Stúdentablaðið að segja fréttir af öllu því sent það telur fréttncemt. En það á að gera þaó af sanngirni og leita þess rétta í hverju máli. Dagur: Málið er hins vegar það, að svona lagað hrekur einfaldlega gott fólk frá stúdentapólitík. Þó við svömm þessu ekki, þá er það bara þannig að menn setja samansemmerki á milli þess að fara í Röskvu og vera rægðir með ósönnum fullyrðingum. Þetta grefur undan því starfi sem verið er að vinna héma fyrir hagsmuni stúdenta. Ég hef heyrt það víða að, að menn em náttúrulega hneykslaðir á þessum málflutningi Vöku. En það sem er verra, er að þetta svertir svo þá jákvæðu hagsmunabaráttu sem fram fer og það er alvarlegt. Heimir: Þetta var afar hjartnæmt. Það er alveg ó- trúlegt að þú skulir setja hér upp n.k. geislabaug og ýja að því að allt sé okkur að kenna. Að allt sem miður fer í hagsmunabaráttunni sé okkur að kenna en ekki ykkur; að við séum að ata „góða“ Röskvu- fólkið auri að lyllilega ástæðulausu. Mér frnnst stórkostlegt að halda svona fram og mér finnst að þið ættuð að líta í eigin barm og skoða hvað þið getið gert betur áður en svona ræður hefjast. - fyrir þig ÞA BESTU í * Intel 4/33SX; 4/50SX2; 4/66DX2 J | * Intel 4/50SX2; 4/66 DX2 \ | og 4/100DX4 i 60 - og 90-Mhz Pentium [ * ZIF sökkull 3 fyrir SL Enh- og ! * ZIF sökkull 3 fyrir SL Enh- og i Pentium Overdrive | Pentium Overdrive J * Asynchronus, write back, 1 * Synchronus, write back, second level skyndiminni i second level skyndiminni j * VESA LB Cirrus 5428 skjáhraðall, ' * PCI Cirrus 5434,64-bita skjáhrað- i 1MBDRAM ; alls með 1MB DRAM, 2MB mest i * Minni stækkanlegt í 64MB [ * Minni stækkanlegt í 128MB ! * VL- IDE stýring i *32- bita PCI Enhanced IDE | * VL/ISA tengibrautir ! * PCI/ISA i * Multilevel Security J * Multilevel Security ! * Raðtengi (UART 16450) ' * Raðtengi (UART 16550) ! * Styður EPA, DPMS i * EPA, DPMS, DMI og Plug and Playi i i i i I * Hliðtengi (ECP) i i ! * FlashBIOS > 3 ára varahlutaábyrgð 'x 3 ára varahlutaábyrgð ✓ ‘ Intel 4/66DX2; 60-Mhz Pentium * ZIF sökkull 3 fyrir SL Enh- og Pentium Overdrive * Synchronous, burst mode, write back skyndiminni 'PCIATI ProTurbo, 64- bita, 135MHz RAMDAC, 2MBVRAM, 4MB mest. * 8MB minni stækkanlegt í 128MB * 32-bita PCI Enhanced IDE * PCI/ISA * Multilevel Security ‘RaðtengijUART 16550) * StyðurEPA, DPMS, DMI og Plug and Play * Hliðtengi (ECP) ‘ FlashBIOS ‘PCMCIA möguleiki 3 ára varahlutaábyrgð Æ ' Intel 90- og 100-Mhz Pentium 1ZIF sökkull 5 fyrir Multiple Pentium örgjörva skv. Intel MP 1.1 ’ Synchronous, burst mode, write back skyndiminni 1 PCIATI Pro Turbo, 64 bita 135MHz RAMDAC, 2MB VRAM, 4MB mest. * 8MB minni stækkanlegt í 192MB '32-bita PCI E-IDEog PCI FastSCSI2 ' PCI/EISA 1 Multilevel Security ‘ Raðtengi (UART 16550) * StyðurEPA, DPMS, DMI og Plug and Play * Hliðtengi (ECP) ‘FlashBIOS ‘ PCMCIA möguleiki ' Ethernet netkort meðTPog AUItengi 3 ára varahlutaábyrgð Kröfuhörð fyrirtæki velja AST 4.0 WinMarks@ 1024x768 CE RAÐGREIÐSLUR Verðdæmi: LC 4/66 8MB 270MB 14uskjár: Frá 169.000 kr. stgr.n** MS Pentium 60 8MB 420MB 14"skjár: Frá 239.000 kr. Stgr. m/vsk Hringdu eða komdu í verslun okkar og fáðu ráðgjöf. EINAR j. SKÚLASON HF Grensásvegi 10, Sími 63 3000

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.