Stúdentablaðið - 01.12.1994, Page 21
STBL. • Desember 1994
STÚDENTAR
Bls. 21
eir kumpánar Baldur
Stefánsson og Krist-
ján Bragason eiga eitt
sameiginlegt. Þeir tilheyra
báðir samtökum sem eru í
burðarliðnum og heita „Ungir
Evrópusinnar“. Þessi samtök
eru aukinheldur hluti af sam-
evrópskum samtökum ungs
fólks sem hafa það að mark-
miði að efla umræður um
Evrópumál og vinna einstök-
um málum framgang. Á dög-
unum fóru þeir bræður til
Svíþjóðar í boði „Unge euro-
péer“ í Stokkhólmi til þess að
taka þátt í lokakosningaslagn-
um um inngöngu fyrirmynda-
ríkisins í Evrópusambandið.
Margt dreif á dagana, tekið
var í lúkuna á Carl Bildt og
komist í kast við sænska rétt-
vísi, auk þess sem þeir mar-
seruðu um götur með íslenska
fánann og heimtuðu ísland úr
Nato. Stúdentablaðið ræddu
við þá í léttari dúrnum um
ferðina, baráttuna og Evrópu-
mál á íslandi.
„í Stokkhólmi fór fram þessa
fimm daga ráðstefna á vegum
samtakanna urn „samnorrænt
já“ og voru þátttakendur jafn-
framt nýttir til þess að taka
virkan þátt í kosningabarátt-
unni. Við dreifðum því bæk-
lingum og töluðum við fólk á
götum úti. Það vakti athygli hve
fólk virtist vera búið að fá nóg
af þessari kosningabaráttu, þeg-
ar við hrópuðum og kölluðum
einhver slagorð á ensku og
sænsku um ESB strunsaði fólk
framhjá án þess að virða okkur
viðlits. Það var ekki fyrr en við
fórum að tala íslensku við Sví-
ana að fólk hópaðist um okkur“,
segir Baldur. Og hvernig tóku
Svíarnir þvi að einhverjir Is-
lendingar vœru komnir norðan
úr Ballarhafi að „agitera"fyrir
ESB? „Bara vel, held ég“ segir
Kristján, „en baráttan var svo
sem ekki einungis á daginn á
götunni. Eitt sinn eftir nokkra
bjóra og dulítið sænskt neftóbak
töluðu baráttuglaðir Svíar sig
upp i að fara um miðja nótt og
rífa niður öll Nei-plakötin í
miðbænum og hengja já-in upp
í staðinn. Um 10 manna hópur
gekk i það mál með okkur í
fylkingarbrjósti og það tókst
vel. Aðeins nokkrir leigubíla-
stjórar voru með einhvem upp-
steyt en öll sú stétt var andvig
aðild af einhverjum orsökum
sem mér eru enn ókunnar “ En
hvað með aðrar, opinberar bar-
áttuaðferðir? „Jú, þar kenndi
margra grasa og margt
skemmtilegt var að sjá. Báðir
hóparnir hreinlega fylltu borg-
ina af plakötum og limmiðum
og við lá að límt væri á gler-
augu grandvaralausra vegfar-
enda. Plakötin voru mörg hver
þrælháðsk og lúmsk. T.d. var
já-hreyftngin iðin við að klína
öfgastimpli á nei-menn t.d. með
plakötum sem sýndu nýnasista,
marx-lenínista, samtökin „-
satans liv“ og fleiri öfgahópa
með áletruninni: „Við segjum
Nei!“. Það var húmor í þessu“,
segir Baldur. Kristján bætir
við: „Við vorum líka fengnir í
það að dreifa hinum svokölluðu
já-smokkum á skemmtistöðum
sem höfðu t.d. áletranirnar “-
slide into Europe” og “it's bett-
er in that out”. Þetta vakti mikla
lukku og þessu dreifðum við af
krafti.“ Hvað með útifundi á
lokasprettinum, var ekki hiti í
fylkingunum? „Það er óhætt að
segja það“, segir Baldur. „Á úti-
fundi nei-manna á stóru torgi í
Stokkhólmi var mikill hasar,
um 10.000 manns að syngja og
skrækja nei, nei, nei. Ekki var
betra ástandið í já-hópnum sem
hafði umkringt fúndinn og æptu
á móti, já, já, já! Og ekki var
allt á friðsamlegum nótum því
þama fóru fram stimpingar og
rnenn vom að hrækja hver á
annan, sem sýnir alvöruna sem
var í þessu hjá sumum. Á þess-
urn fundi voru alls kyns hópar
og samtök að mótmæla hinu og
þessu. Umhverfissinnar með og
á móti, nýnasistar, kommúnist-
ar, kratar og fleiri slíkir hópar
með fána og boðskap. Við tók-
um okkur til að veifuðum ís-
lenska fánanum og æptum „ís-
land úr Nató“ um hríð, svona
rétt til þess að vera með!“ Og
þið komust í fjölmiðlana, var
það ekki? „Það var ekki laust
við það. Baldur leit út þama
eins og villimaður, klæddur for-
láta gæru, með Davie-Crockett-
loðhúfu á hausnunt og íslenska
fánann hátt á lofti.“ „Og ekki
varst þú síðri, Kristján, í
flauelsjakka með pottlok á
höfói eins og Amaldur úr Sölku
Völku. Auðvitað vom alls kyns
útvarpsstöðvar og blöð til í að
spjalla við svona menn.“ Og
hvernig var sigurhátíðin, þið
hafið vœntanlega tekið þátt í
henni, enda lykilmenn barátt-
unni? „Til að byrja með tókum
við þátt í kosningavöku í félags-
heimili stúdenta við Stokk-
hólmsháskóla. Þeir hafa þar fína
félagsaðstöðu sem er nokkru
betri en hin glæsilegu húsa-
kynni Stúdentakjallarans sem
menn verða að sætta sig við hér.
Svo lá leiðin í gamla hertoga-
höll þar sem helstu stjómmála-
leiðtogar Svíþjóðar hittust og
allt það fólk sem unnið hafði
fyrir já-hreyfmguna. Þama voru
Ingvar Carlsson og Carl Bildt. .
.“, segir Baldur, „sem þú raukst
á og tókst í spaðann á“, bætir
Kristján við stríðnislega. „Já, ég
ætlaði að útskýra málstað Ís-
lendinga lítillega en einhvem
veginn fékk ég á tilfmninguna
að áhuginn á samræðum væri
ekki gagnkvæmur, svo ég gaf
Carl frí - í bili.“ Að sögn þeirra
pilta var enn mikill hiti í rnönn-
um þegar úrslit voru kunn og
bjuggust men'n allt eins við ó-
eirðum á götum úti. Það er hins
vegar talið að kuldinn í Stokk-
hólmi á þessum tima hafi komið
i vegfyrir ólœti. En hvað fannst
ykkur athyglisverðast við niður-
stöður kosninganna? „Þetta er
náttúrulega stórt skref sem Sví-
ar hafa tekið og mun breyta
miklu, bæði fyrir þá og Evrópu-
sambandið", segja þeir félagar.
„Það sem vakti hins vegar at-
hygli var sú staðreynd að ungt
fólk og konur voru í skýmm
meirihluta á móti aðild en fólk
eldra en 55 ára að miklum hluta
með. Þetta skýrðu menn m.a.
með því að unga fólkinu ofbauð
auglýsingaherferð stjómmála-
flokka og hagsmunasamtaka.
svo þau viðbrögð má túlka sem
n.k. uppreisn gegn kerfinu. Það
var hreinlega í tísku að vera á
móti, i því fólst viss sjálfstæðis-
yfnlýsing", segir Kristján.
„Svo spilaði hið sænska ofmat
sína rullu. Menn voru með yfir-
lýsingar um að sænska kerfið
væri það besta í heimi og Svíar
þyrftu ekki á neinum eða nein-
um að halda. Aftur á móti höfö-
aði sú röksemd að ESB tryggði
frið í Evrópu afar sterkt til eldra
fólks“, bætir Baldur við. Hvað
ýinnst ykkur um Evrópuumræð-
una hér á íslandi? „Hérlendis
er enginn sem leiðir umræðu
urn Evrópumál, annar en e.t.v.
Alþýðuflokkurinn. Gallinn við
það er sá að þá er málið í aug-
um fólks orðið flokkspólitískt
og á það litið sem kosningastra-
tegíu krata. Hér þarf þverpóli-
tísk samtök til að kynna málið
og koma þvi á dagskrá", segir
Baldur. Og Kristján bætir við:
„Eg er þeirrar skoðunar að eina
leiðin til þess að vita hvaða kjör
íslendingum bjóðast í ESB sé
að sækja um. Ef það gerist sem
fyrst fáum við aukinheldur full-
trúa á ríkjaráðstefnunni 1996 og
geturn fylgst með þróun mála.
Hins vegar gleymist öft að bolt-
inn er ekki einungis hjá íslend-
ingum. Það er óvíst hversu vel
ESB myndi taka í umsókn okk-
ar. Eitt er víst: Það þarf að efla
umræður urn þessi mál á vit-
rænurn grunni og á heið^rlegan
hátt. “ Nú var það pláss sem
viðtalinu var œtlað uppurið svo
sagan um útistöður við laganna
verði i stórborginni verður að
bíða betri tíma.
Nýr öxull í
augsýn?
o t/
Samstarf stórvelda yfir álfur er heimssögulegt fyrirbæri.
Allir þekkja þýsk-ítalska öxulinn sem hrellti Evrópu og heims-
byggðina alla um miðja öldina í heimsstyrjöldinni síðari og
ekki síður hefur fransk-þýski öxullinn borið uppi samstarf Evr-
ópuríkja innan vébanda Evrópusambandsins ógurlega. Nú er
allt útlít fyrir að enn einn öxullinn myndist í alþjóðastjórnmál-
unum ef Noregur samþykkir aðild að Evrópusambandinu og
flytur þannig inn atvinnuleysi, afsalar sér fullveldi og gengur á
mála hjá skrifræðisskrímslinu í hinni ógurlegu borg Brussel,
þar sem Evrópuríki ku vinna saman að sameiginlegum hags-
munamálum, uhuhuhu. Þessi nýi öxull mun standa saman af
helsta iðnríki á N-Atlantshafi, íslandi, og stórveldinu Lichten-
stein sem státar helst af skíðamönnum í fremsti röð. ísland-
Lichtenstein öxullinn mun að sjálfsögðu koma í veg fyrir al-
þjóðlega einangrun íslendinga og gefa okkur þá kjölfestu sem
þjóðarskútan þarf í hafróti alþjóðlegra umskipta, sem eru örari
en nýjustu Nato-pésar ná að halda í við. Ísland-Lichtenstein
öxullinn er miklu skynsamlegri lausn heldur en áhættusöm
ESB-aðild þar sem upp á okkur yrði þröngvað ódýrum og góð-
um landbúnaðarafurðum, okkur yrði gert að fara að sam-
keppnisfögum og aðgangur allra okkar afurða yrði greiðari til
okkar helsta markaðar. í raun má ESB barasta fara að vara sig
með sitt miðstýrða moldvörpuapparat, rétt eins og Þýskaland
og Italía náðu hálfri Evrópu á sitt vald á sínum tíma eru mögu-
leikar Ísland-Lichtenstein öxulsins ótæmandi. T.d. hafa fram-
farasinnaðir, íslenskir bændur fundið það út að í Asíu séu vax-
andi markaðir og þangað eigum við að flytja hágæða fjalla-
lömb og byrja bara upp á nýtt, Evrópa sé hvort er eð á niöur-
ieið. Þannig geta ísland og Lichtenstein skotið ESB ref fyrir
rass, gefið því langt nef og einn á gúmorinn fyrir fíflskuna að
halda að stærð og styrkleiki skipti einhverju fyrir samninga-
stöðu í alþjóðaviðskiptum. Neibb, „small is beutiful" hafa ís-
lenskir bændur að leiðarljósi og setja allt sitt fé á ísland-
Lichtenstein öxulinn. Það er sko alþjóðasamstarf í lagi.
| NÆTURSALA
Eruð þið stundum þreytt á náminu?
B “ Fákafen 11 Góð mynd getur hresst ykkur við.
108 Reykjavík AFBRAGÐS ÞJONUSTA
Sími: 687244