Fálkinn


Fálkinn - 01.09.1928, Blaðsíða 3

Fálkinn - 01.09.1928, Blaðsíða 3
F A L K I N N 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Vilh. Finsen oq Skúli Skölason. Framkvœmdastj.: Svavar Hjaltested. AOalskrifstofa: Austurstr. 6, Reykjavik. Simi 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7. Skrifstofa i Osló: Anton Schjöthsgate 14. Blaðið kemur út hvern langardag. Áskriftarverð er kr. 1.50 á mánuði; kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg. Erlendis 20 kr. Allar áskriftir greiSist fgrirfram. Auglýsingaverð: 20 aura millimeter. SRraóéaraþanRar. Einu sinni var fámáll niaður spurð- ur uin ástæðuna fyrir Jivi, að hann Segði svo fátt. „Af því að jeg vil ekki Segja meira en jeg get staðið við“, svaraði hann. Svona menn eru fremur sjaldgæfir. Þeir eru vitanlega víða til, en það veit enginn af þeim. í heimi tuttug- ugustu aldarinnar er um að gera að gaspra og láta glamra sem mest í sjer. Lióðlífið er orðið eins og ærslafundur, I>ar sem sá ber sigurinn af hólmi sem hæst læt.ur. Alt verður að auglýsast til þess að ná hylli fjöldans, hvort heldur er þvottaduft, skilvinda eða stjórnmálamaður. Og verði enginn annar tii þess að auglýsa stjórnmála- ‘nanninn og lialda honum fram, þá verður hann að gera ]>að sjálfur. En nú er sumum mönnum svo var- 'ó, að þeir kunna ekki við að auglýsa siK sjálfa. Þeir koma á mannfundi, hlusta á mál lýðskrumaranna, heyra l>a fara með ósannindi um menn og málefni en — þegja. Þeir sjá allan lýðinn hlusta á þessa menn og blekkj- ast af þeim. En þeir þegja samt — af hræðslunni um, að ef þeir fari á stað geti jieir ef til vill átt á hættu að segja meira en þeir geta staðið við — og ób.eitinni á því að auglýsa sjá]fa sig. Því stjórnmálamaðurinn getur ekki gengið fram á vigvöllinn án þess að auglýsa sjálfan sig um leið. Sjálfnr verður liann að vera bakhjarl alls l>ess, sem hann talar og gerir á torgi stjórnmálanriá. Hann ber ábyrgðina persónulega. En hversu oft eru pólitískir glym- skrattar látnir bera ábyrgð orða sinna <Jti gjörða? Hversu ofl láta kjósendur hingmenn og aðra, sem liafa sig >>’ammi i opinberum málum standa °‘ó ]>aS sem ]>eir liafa sagt. Stjórn- 'uálamenn eiga að gera þetta, og það er þroskaleysi alinennings, sem veld- u>’ því, að þeir eru ekki látnir gera l>;|ð. En meðan það liðst, að þeir sem haía eyrnafylgi þjóðarinnar, segi nieira en þeir geta staðið við, munu nlilutvandnir miðlungsmenn jafnan Keta vaðið uppi, lijá hverri þjóð sem er. Hinir, sem vandaðri eru að virð- >ngu sinni, þegja — sitja lijá. Vegna l*ess að þeir eru of góðir fyrir kjós- endurna. -Etti það ekki að vera umliugsunar- 'ert fyriv kjósendurna, að reyna að Ker.i sjj, nógu góða fvrir þá? Mundi l‘á betur fara. Víggirti bicjarhlutinn i Carcassonne meö tvöföldum múr og 54 turnum. TVO ÞÚSUND ÁRA AFMÆLI. Afmæli það sem franski hær- inn Carcassonne heldur i sumar er einstakt. í sinni röð. — Sagnfræðingar fullyrða sem sje, að bærinn sje stofnaður 72 árum fyrir Krists burð og eigi 2000 ára afmæli á þessu ári. Eigi svo að skilja, að ýmsar borgir hinnar fornu mehningarríkja sjeu ekki miklu eldri en þetta. En þær eru eins og kerlingarnar sem ganga í barndómi — og muna ekki af- mælisdaginn sinn, eða fæðingar- árið. En Carcasonne er ekki með þvi markinu brend, þar cru ár- tölin í lagi — eða það er látið heita svo. Carcassonne er í Suður-Frakk- landi, við ána Aude, þar sem Midiskurðurinn sameinast ánni. Um þær slóðir liggur hin forn- fræga þjóðleið milli Miðjarðar- hafs og Garonne-dalsins. Fjöldi bygginga stendur enn í bænum, frá æfagamalli tíð og þykja engu ómerkari en samskonar menjar i hinum gömlu þýsku bæjum, enda eru þær taldar vera eldri. Merkastur þykir þó hinn gainli bæjarhluti frá miðöldum, á hægri bakka fljótsins. Er hann girtur tvöföldum hringmúr með 54 turnum alls og rammbyggilegum kastala. Er þessi bæjarhluti tal- inn gefa glegstu mynd sem til er, af því hve framarlega menn stóðu í því að byggja vígi á (i. til 14. öld. Vegna legu sinnar og uin- hverfis þótti Carcassonne þegar í fornöld mikilsverð bækistöð í hernaði og mundu hinir fornu múrar hafa langa styrjaldarsögu sögu að segja, ef þeir mættu tala. Á dögum Cæsars er bæjar- ins oft getið, og er hann kallað- ur Carcaso í latneskum skrifum. Þegar ríki Rómverja liðaðist í sundur eignuðust Vestgotar bæinn, en árið 724 hröktu Arab- ar þá þaðan. En eigi var bærinn á þeirra valdi nema í 60 ár, því þá urðu þeir að flýja landið fyrir Frökkum. Árið 1209 tók einn krosshérinn bæinn og í hundrað ára stríðinu rændu Englendingar hanii og brendu, árið 1355. Efri bærinn, á hægri bakka Aude, er elsti bæjarhlutinn, en sá hlutinn sem á hinum árbakk- anum stendur er að vísu ekki nýr, því þar hófst bygging árið 1262. Tilefnið til að þessi bæjar- hlutinn fór að byggjast, var þetta: Borgarbúar í Carcassonne höl'ðu gert uppreisn og var þeim refsað með því, að gera þá útlæga úr bænum. En svo var Narbonnaise-hliÖin. Fallegur hluti af borgarmúrunum.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.