Fálkinn


Fálkinn - 01.09.1928, Page 5

Fálkinn - 01.09.1928, Page 5
F A L K I N N 5 J.ÖWEXSTEIX OG KLEFARNIR í FLUGVJEL IIAXS. Sunnudagshugleiðing. ,.En þegar }>ú gerir heim- hoð, }>á hjáð ]>ú fátœkum, nanheilum, höltum og hlind- 11m; og þú munt verða sœll“. Lúk. 14, 13. Orð Jesú, að við eigmn ekki :|Ö bjóða vinum vorum eða bræðrum, frændum eða ríkum nágrönnum, lieldur fátækum, vanheilum, höltum og blindum vita að lögum í guðs rílti. Því hinir fátæku, vanheilu, höltu og blindu hafa ekkert til að gjalda með, en vinirnir bjóða þjer aft- Ur. Hjá þeim hefir þú fengið þín laun, og mátt einslds frekar vænta. En sá sem ekki fær laun sín hjer á jörðu fær þau fyrir handan gröf og dauða. Jesú hef- ir sagt, að það sem þjer gerið einum af hans minstu bræðrum, það hafið þjer gert honum. Og þau laun koma fram við upprisu hinna rjettlátu. Jesús talar hjer til kristinna nianna — þeirra sem rjettlátir eru kallaðir. Hann segir ekki, að þeir fái launin góðverkanna Vegna, en hann segir við alla i'jettláta, að þeir muni fá aftur «11 óéigingjörnu verk sin á hin- uni hinsta degi. í fjallræðunhi talar Jesús um verk þau, sem gjörð eru til þess «ð sýnast fyrir mönnum. Og um þau segir hann: „Sannlega segi jeg yður: Þau hafa þegar fengið sin Iaun“. Sá sem biður, til þess nð Játa aðra sjá það, sá sem gef- ur ölmusu af sömu hvötum eða iastar — þeir hafa þegar fengið sín laun í þeirri virðingu er þeir fengu af meðbræðrum sínum. IJeir leituðu mannvirðinga og fundu mannvirðingar. Skiftast ekki öll mannleg góð- verk i þessa tvo floldca? Þau sem fá sín tíinanlegu laun og hin sem fá eilíf laun í upprisu hinna rjettlátu. Góður maður, sem lifir með i'áðdeild og sparsemi, heldur heimili sínu í horfi og' verður virtur — hann fær sin laun. Þau .greiðast af verkunum sjálfum. Góðverk við aðra fá sín laun. Þú uýtur þeirra. En eilifra launa getur maður- uin samt ekki vænst. Þegar bók- ui mikla verður opnuð á dóms- degi er þar ekkert, því þú hefir fengið alt þitt greitt í þessu lifi. fiar er ekkert sem þú hafðir gert vegna Jesú Krists í óeig- úigjarnri ást til hans. Alt þitt líf «g öll þin verk stjórnuðust af eigingirni — af voninni um end- Urgjald hjá mönnunum. En svo koma aðrir, og þeirra yerk eru vegin. Þú heyrir að jafnvel kaldur vatnsdrykkur, Sem gefinn var vegna Jesú Erists, er talinn — hver vitjun úl sjúldings og syrgjanda, sem gerð var i Jesú nafni og af ást úl hans, fær sín laun í upprisu rjettlátra. . Hjer skiftast vegir mannkyns- uis. Og það er náðin, hin óverð- skuldaða náð í Jesú Kristi, sem skiftir leiðunum. Líf þeirra Uuuina, sem lifa lífi sínu i sam- eldu þakklæti til guðs, þeir lifa 1 þessari náð. Þeir elska mikið, )egna þess að þeim er mikið fyr- lrgefið. Og þegar guðs andi fær ■<-------------------------------H | „Therma“ (Skrásett vörumerki). Rafmagns suðu- og hitaáhöld skara fram úr öðrum rafmagnsáhöldum á heimsmarkaðinum. Miklar birgðir eru ávalt fyrirliggjandi hjá jfúlíusi Björnssyni, Austurstræti 12. I Í4----------------------------- að halda manninum í auðmýkt við kross Krists, þá verður ósk- in um að lifa lífinu í Kristi og að þjóna honum í stóru og smáu, að djúpri undiröldu í sál- inni. Látum oss biðja um að mega lifa því lífi. Amen. iiiíkýlnguriDD LövensteiD. í júlí-mánuði varð slys, sem er alveg einstakt i sinni röð. Maður datt út úr lokaðri flug- vjel, án þess að samferðafólk hans yrði þess vart, og án þess að rnenn geti gert sjer grein fyr- ir hvernig hann gat hent þetta. Og umtalið varð ekki minna fyr- ir þá sök, að maðurinn var einn af ríkustu mönnum heimsins. Blöðin giskuðu á, að slysið væri tilbúningur frá upphafi til enda, og að maðurinn Ijetist vera dauð- ur til þess að verðsveiflur kæm- ist á hlutabrjef þeirra fyrirtækja, sem hann átti mest í. En nokkru siðar rak lík hans á land upp úr Ermasundi, en yfir sundinu hafði vjelin verið þegar maður- inn fjell úr. Maðurinn var Al- fred Löwenstein, líka kallaður „miljónamæringurinn sífljúg- andi“, því hann notaði nær ein- göngu flugvjelar til ferðalaga sinna. Ameríka er venjulega heim- kynni auðkýfinganna miklu. í Evrópu er það tiltölulega fátítt, að einstakir menn eignist auð, sem þolir samanburð við eignir Rockefellers, Fords, Schiff, Kahn, Piermont Morgan og slikra manna. Síðan Hugo Stinnes dó, hefir Evrópa aðeins átt tvo menn af þessu tagi, Grikkjann Bazil Zaharoff, sem varð víðkunnast- ur fyrir það, að hann eignaðist einu sinni meirihluta af hluta- hrjefum spilavítisins í Monte Carlo, og Belgann Alfred Löwen- stein. Um Löwenstein vita menn það helst, að síðari árin hafði hann vetursetu í Biarritz, suður við Miðjarðarhaf og átti þar sjö hallir og að á sumrin bjó hann í Englandi á stórjörðinni Mel- ton Mowliray. En annars var hann sjaldan lengi á sama stað, hann hafði íbúðir til taks handa sjer i Bryssel, Berlín, Wien, Par- is og Konstantinópel, hvenær sem leið hans lá um þessa staði. Hann átti fjórar stórar flugvjel- ar, sem fluttu hann milli stað- anna, sem hann þurfti að kom- ast á. Löwenstein var fæddur í Bryss- el og var faðir hans bankaritari og fátækur. En Löwenstein ungi gerðist snemma káupsýslumað- ur og setti upp skrifstofu í einni smágötunni i Bryssel. Hann komst í viðskiftasamband við kaupsýslumenn frá Suður-Ame- ríku og græddi á því sína fyrstu peninga. Svo fór hann að l'ást við fossabrask og rafmagns- vinslu úr vatnsafli og bygði fyrstu aflstöðina 1897. ‘ Og þær hafa orðið fleiri. Hann var með þeim fyrstu, sem sá að framleiðsla gerfisilkis mundi verða gróðavegur og 1901 setti hann á fót fyrstu verksmiðjuna í þeirri grein. Þegar hann dó hafði hann um- ráð yfir meira en helmingi af allri framleiðslu gerfisilkis í veröldinni. Á styrjaldarárunum fjekk hann kapteins nafnbót og stjórn- aði þá öllum matvælaaðdráttum Belgíu fyrir hönd bandamanna. Auðæfi hans fóru sívaxandi og hann hafði lag á að halda þeim þegar kreppan kom. Hann eign- aðist kolanámur í Saar-dalnum, mangan-námur i Schlesíu, mar- maranámur í Italíu, gúmmílönd í Kongo, járnbrautir í Brasilíu og verksmiðjur í Kanada. Þó lagði hann mesta rækt við raf- magnstöðvarnar og jók reksturs- fje þeirra fyrirtækja um meira en 100 miljón krónur skömmu áður en hann dó. — Margir auðkýfingar, eins og t. d. Rockefeller, eru ákaflega spar- neytnir menn. En Löwenstein var hinn mesti óhófsmaður og stráði peningum kringum sig. Konan hans á gimsteina sem eru margra miljón króna virði. Ef hann varð var við góða mat- reiðslumenn á stór-gistihúsun- um í London eða París bauð hann þeim gífurlegt kaup fyrir að koma til sín. Hann gaf ó- grynni fjár til líknarstarfsemi. Skemtihallirnar hans í Biarritz kostuðu hann um 100.000 krón- ur á viku i rekstursfje. Þegar hann var seinast í New York var herbergjaleigan fyrir hann og fylgdarlið hans á Ambassador- gistihúsinu 1000 dollarar á dag. Hann kom oi't í spilavitið í Biar- ritz og- enginn spilaði eins hátt og hann. Og þar var það sem hann barði dyravörðinn og fjekk sekt, fyrir að koma inn i spila- salinn i ljósum flúnelsfötum í stað kjólfata, eins og fyrirskip- að er. Við blaðamenn var Löwen- stein heldur fámáll. Þó var þetta eftir honum haft í viðtali, nokkru áður en hann dó: „Fjárhagsvandræði Evrópu eru að mestu leyti stjórnmálamönn- unum að kenna. Ef þeir vildu taka sjer frí svo sem eitt ár, mundu fjármálin lagast af sjálfu sjer. Tekjuskatturinn er svo hár, að hann kyrkir alla framtakssemi. Og svo eru skuld- irnar við Ameríkumenn. Þeir ættu að strika þær út, því þær verða aldrei borgaðar hvort sem er. Evrópa getur margt af þeim lært, ekki sist i stórframleiðslu. Verkamenn eiga að fá hátt ltaup, svo að þeir geti orðið góð- ir og kaupgetumiklir viðskifta- vinir — það er alveg rjett hjá Henry Ford“. Blaðamaðurinn ætlaði að fara að spyrja um frú Löwenstein. En hann eyddi því og sagði: „Jeg er nýbúinn að kaupa hest fyrir 40.000 krónur. Það er nokkuð fyrir blöðin. En konan mín —- hún kemur þeim ekkert við“. Mikla athygli vakti Löwen- stein þegar hann bauð Belgíu 200,000 miljón króna lán til þess að verðfesta myntina. En það boð var ekki þegið, enda vildi Löwenstein hafa nokkuð fyrir snúð sinn, þótt lánið ætti að nafnin.u til að vera rentulaust. I Imrgiimi Holland í Michiganfylki lagði maður um daginn á banka einn dollar og iagði svo fyrir, að vexti ætti eltki að borga fyr en árið 2427. I>á eiga eftirkomendur hans að njóta góðs af.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.