Fálkinn


Fálkinn - 09.03.1929, Page 2

Fálkinn - 09.03.1929, Page 2
2 F Á L K I N N GAMLA BfÓ (Metro-Goldwyn-mynd). Afarskemtilegur gamanleikur í 7 þáttum. Aðalhlutverk leika: Aileen Pringle Lew Cody — Roy D’Arcy. — Sýnd um helgina. — PILSNER Best. Ódýrast. INNLENT t ölgerðin Egill Skallagrímsson. „Protos er frægur, hans vegur vex, ódyr og liðugur, segir sex; Protos í hvelli fægir gólf; Protos er smellinn og á við tólf“. Protos Bónvjel. Endurbætt. Áður góð, nú betri. Gólfin verða spegil- gljáandi — fyrirhafnarlítið. Faest hjá raftækja- sölum. 7 kuJ s Telpu- og Unglinga- Z' skófatnaður alskonar nýkominn. Lávus G. Lúðvígsson, Skóvevslun. " NÝJA BÍÓ ■ Hættulegur meðbiðill. Spánskt ástaræfintýri í 9 þáttum, tekin af Unitet Artists undir stjórn Ronald West. Aðalhlutverkið leikur Norma Talmadge af mikilli snild. Þessi ágæta mynd verður sýnd í fyrsta skifti í kvöld. Litla Dílastööin Lækjartorgi Bestir bílar. Besta afgreiðsla. Best verð. Sími 668 og 2368. Emile Walters listmálari og frú. eru fyrir nokkru komin hingað til lands frá Vesturheimi. Hefir Walters aldrei komið hingað áð- ur, en frú Þorstína ferðaðist hjer uni land fyrir nokkrum árum og flutti þá fyrirlestra í Reykja- vík, sem mikið þótti til koma. Hefir hún gefið út mikið rit og vandað um íslendinga í Norður- Dakota og ættir þeirra, einskon- ar Landnámabók, sem hefir mik- inn fróðleik að geyma. Vestan hafs hefir hún flutt fjölda fyrir- lestra um ísland og íslenskar bókmentir, þar á meðal á fjórtán háskólum og í fjölda fjelaga. En undanfarna mánuði hefir hún starfað að undirbúningi heim- farar Vestur-íslendinga 1930 í samráði við sjálfboðanefndina vestra, en formaður hennar er hinn frægi skurðlæknir Dr. Brandson í Winnipeg. Hefir liún ferðast um íslendingabygðir und- anfarna þrjá mánuði og flutt fyrirlestra og get'ið upplýsingar viðvíkjandi heimförinni. Cunard- línan leggur flokknum. til skip og er fargjaldi mjög still í hóf, svo að gera má ráð fyrir, að ó- dýrari fcrð til íslands sje ekki hægt að fá. Er gert ráð fyrir að ferðamennirnir geti staðið við alt að sex vikur hjer á landi. Ýmsir merkismenn hafa þegar ráðið sig til fararinnar, svo sem Vilhjálm- ur Stefánsson, Leifur Magnús- son fulltrúi Bandaríkjasljórnar í alþjóðaskrifstofu verkamála, pró- fessor W. Craigie, hinn kunni ís- | Leikara póstkort Amaíör''erslunin 1 Ki rkjustræti 10. landsvinur, próf. Benzon frá Yale háskóla og prólessorarnir Gould og Gpode, dr. Leach ritari Scandinavian American Founda- tion, Sveinbjörn Johnson og Barði Skúlason iögmenn og dr. Brandson. Frú Walters er hjer komin til að ráðgast við Alþing- isnefndina um ýmislegt viðvíkj- andi hátíðinni og gestakomunni, og hverfur aftur vestur um haf í þessum mánuði. Emile Walters málari er fæddur í Winnipeg af skagfirsk- um foreldrum og hefir aldrei ís- land sjeð fyr en nú. Hann ólst upp í Winnipeg og byrjaði ungur að mála og undir tvítugt braust hann til Chicago mest al' eigin rammleik og komst á lista- háskólann þar. Að loknu námi þar fór hann til New York; kynt- ist hann þar Einari myndhöggv- ara og telur hann þá viðkynn- ingu hafa orðið sjer að miklu gagni. Siðan gekk hann á lista- háskóla Pennsylvaníu, en hvarf þá aftur til New York og hlaut allríflegan styrk til listaiðkunar. Síðastiðin sjö ár hefir hann ver- ið kennari við listaháskóla Penn- sylvaníu. Walters hefir haft af örðugleikum á listamannsbraut- inni að segja í ríkum mæli, en hefir nú náð fullri viðurkenn- ingu. Yfir 20 opinber söfn í Ameríku hafa keypt myndir eftir hann, auk fjölda einstakra manna safna, listastofnanir og fjelög hafa sýnt honum ýmsan sóma og fjölda mörg f.jelög gert hann að heiðursf jelaga sínum. Nokkrar myndir eftir Walters hefir íslenslca ríkið keypt handa málverkasafninu. Á inorgun kl. 3 flytur frú Walters erindi í Nýja Bíó um Vesturíslendinga og undirbúning þeirra undir heimförina 1930. Eiga menn von á góðu þar sem þetta erindi er, því bæði er efnið eftirtektarvert og frúin prýðisvel máli farin. Kvikmyndir. GAMLA J5ÍÓ sýnir um helgína eink~ ar fjöruga mynd, sem heii.ir „Tví- burabræðurnir" með Aileen Pringle og Lew Cody i aSalhlutverkunum og er mýndin samin með (illili til þessara leikenda. Myndin er full af glensi og linittilega samin og aðalleikendurnir tveir eiga sjerlega vcl saman. Af öðr- um leikendum má nefna Roy D’Arcy og Gwen Lee. Það leiðist engum með- an hann horfir á ]iessa skemtilegu mynd NÝJA BÍÓ sýnir í Isvöld mynd sem néfnist „Hættulegur meðbiðill". Lýsir hún haráttu tvcggja manna um sömu stúlkuna og leikur sjálf Norma Talm- adge þessa stúlku og er ]>að eitt út af fyrir sig næg meðmæli. Myndin er einkar lirífandi og spennandi og ljóin- andi vel leikin

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.