Fálkinn - 20.04.1929, Síða 6
Ásgrimur málari hjclt sýningu á
nýjustu málverkum sínum um pásk-
ana og var jmr fagurt um að litast.
Það er engin kyrstaða i list Ásgríms,
heldur sífeld þróun, að kalla ár frá
ári. Hinir nýju straumar og siefnur,
sem orðið hafa í meðvitund manna
um list, á síðustu áratugum, hafa
engan veginn látið hann ósnortinn
og bera hinar siðustu sýningar hans,
ekki síst þessi, glöggan vott um það.
En þó er fult samhengi í list Ás-
gríms frá upphafi til þessa dags.
Allflestar mgndir Ásgríms á þess-
ari sýningu eru stórar og krefjast
rúms, sem aðeins fáir hafa í heima-
húsum, en þeim mun betur mundu
þær sóma sjer í stórum sýningarsöl-
um. Er það skaði, að eigi skuti vera
til i Reykjavík betra húsnæði til mál-
verlcasýninga cn nú er, því þá mundi
almenningur njöta betur þess sem
sýnt er. En í þröngum kytrum með
óhentugri birtu fer fegurð og list-
fcngi mynda oft fyrir ofan garð og
neðan tijá áhorfendum.
Hjer eru fjórar myndir Ásgrims,
prentaðar eftir Ijósmyndum er Jón
Kaldal hefir tekið. Að ofan til vinstri
Mgnd úr Biskupstungum með Hölkn-
höfða, Ilálfstindi og Bjarnarfelli í
baksýn en á miðri myndinni sjást
Torfastaðir, til hægri Hekla sjeð úr
slcógargiljum við Ásólfsstaði i Þjórs-
árdal. Að neðan Keilir sjeður úr
Hafnarfirði og Iiafnarfjörður.
Jónas Lárusson bryti varð fer■
tugur 10. þ. m.
I V. B. K. selur „ÓÐINN“ teikniblýantinn.
Sunnudaginn 7. þ. m. fóru noklcrar tclpur í hóp iít á garðinn
vestanmeginn við mynni Reykjavíkuhafnar. Sjógangur var allmilc-
ill úli furir ]>ann dag. Er þœr voru á miðjnm garðinum kom ólag
er skall yfir garðinn og tók með sjer eina tclpuna. Tuvcr elstu telp-
urnar, báðar 13 ára, brugðu strax við og köstuðu sjer út lil að
bjarga, og með dugnaði sínum tókst þeim að ná barninu lifandi á
land. Það mátti ekki tœpara standa, því telpan var orðin meðvit-
undarlaus, raknaði þó við, skömmu cftir að á land kom, en var þá
með óráði. Og bera urðu þær liana alla leið lieim.
Þessi björgun er verð fylstu aðdáunar, því sýnt var livernig
farið hefði ef hik licfði verið á tclpunum. Á myndinni sjást vin-
stúlkurnar þrjár: Valborg 10 ára, dóttir Júl. Guðmundssonar, i
miðju, en bjargvættir hennar, Guðrún Benteinsdóttir til hægri en
Þórgunnur Ársœlsdóttur, Árnasonar bóksala, til vinstri.