Fálkinn


Fálkinn - 01.06.1929, Síða 14

Fálkinn - 01.06.1929, Síða 14
14 F Á L K I N N L á r j e 11. 1 griðkona, 5 til samans, 7 nafn úr bibliunni, 10 pilsvargur, 14 höfuðborg, 15 bær í Kanaan, 18 galli á hjóli, 20 rúmfat, 21 forsetning, 22 hreystiverk, 28 trje, 24 í ull, 26 forsetning, 27 hár 29 hljóð, 31 mörk (þgf.), 34 gosmynd- un, 36 haft, 38 eftirvæntingarl'ull, 39 íþrótt, 40 ilát, 41 gælunafn á iiús- dýri, 43 mannsnafn, 44 afbragð, 46 húsdýr, 48 flan, 49 á ljá, 50 skrækir, 52 48 lárjett, 54 skáldkona, 55 morar, 56 siðleysingi, 58 skel, 60 deila, 62 prýðilega, 64 þrá, 67 forsetning, 68 viðburður, 69 reiðskjóti, 71 rómversk- ur keisari, 73 gera drukkinn, 74 stjórn- ari, 76 íslendingur, 77 góðviðriskafii, 78 farvegir, 80 snáða (þolf.), 82 sam- bandið, 84 lalli, 85 hrúga, 87 versl- unarmál, 89 kveðskapur, 91 taka fyrir, 92 friður, 93 önd, 95 gera hrokkið, 96 Ijúka við, 97 deila, 98 fjötur, 99 eldstæði, 100 starf, 101 rómur. Ef þjer copierið sjálfur þá notið Mercur tonafix Sjálftónandi dagsljóspappír. Aðeins 4 au. á mynd. St. 9X6. CarlPoulsen & Sönner, Köbenhavn V. K R, O S S <3- Á T A nr. 14. Nobile hefir skrifað Mussolini og beiðst þess að.mál lians verði tekið til nýrrar rannsóknar, þar eð hann álitur sig hafa verið hafðan fyrir rangri sök. A stóru gistiliúsi í Oslo var sápu- stykkjunum stolið úr öllum gestalier- bergjunum um daginn. I'að var um- ferðasali, sem stal þeim — til þess að selja i næstu ferð sinni um landið. Lóðrjett. 1 úrelt samgöngutæki, 2 málmur, 3 kyrð, 4 planta, 5 niðurlagsorð, 6 rúm- fat, 7 fara, 9 blaðra, 10 meiðsli, 11 bor (þolf.), 12 stofa, 13 vatnsgutl, 16 fuglsafkvæmi, 17 koma spekt á, 19 blaup, 25 brim, 27 hljóð, 28 ihald- semi, 30 frá forfeðrunum, 32 laut, 33 fljót í Evrópu, 34 eiga við, 35 bor, 36 súð, 37 kvenmannsnafn, 40 afmark- að svæði, 42 flýtir, 44 arður, 45 er sannfærður um, 46 trega, 47 stjórnár- byltingarmaður, 49 mál, 51 eimi, 53 stjarna, 57 pollur, 59 sláttur, 60 víður, 61 árás, 62 fugl„ 63 fiskur, 65 þagga, 6fc rissa, 69 bál, 70 bilbugur, 72 orms- heiti, 73 100 lárjett, 75 gangur, 76 Hai- inn, 77 verslun, 79 bráðum, 81 stór- gert, 82 áta, 83 rella, 85 getur, 86 skjótur, 88 strá, 90 í pípu, 91 sár, 92 liækkar, 94 tónn, 97 trú jeg. BESTULJÓSMyNDIRNAR fáið þjer hjá Ijósmyndaverslun yðar á CAPOX (gasljós-pappír). Stórfagur litblær — skarpar og skýrar myndir. Carl Poulsen Ct Sönner, Köbenhavn l/. Kaupum lifandi refi og allar íslenskar skinnavörur. íslenska refaræktarfjelagið. Sími 1221. Símnefni: Fux. frænka Virginiu“, spurði hún. „Varstu ékki að segja, að þú þyrftir að flýta þjer af stað, Freddie“, spurði Virginia, sem vildi gera alt sitt til að ekki kæmist alt í uppnám. „Þú verður að koma seinna, en núna er ekki rjett að tef ja þig lengur“. Hún leit bænaraugum á Freddie, en hann var ekki eftirtektarsamari en guð gaf, og varð hissa er hann varð þess var, að þær óskuðu ekki að hann tefði lengur. Hann stóð upp. „Jæja, jeg skal fara undir eins“, sagði hann hugs- andi. „Jeg lít inn seinna, þegar þú ert ein heima“. — Hjer leit Freddie í áttina til Jane frænku. Virginiu langaði mest til að lúberja hann fyrir klaufaskap hans, en Freddie sem varð enn ekki var við andúðina gegn sjer, fór ekki enn. „Þú gælir þín ekki nógu vel“. sagði hann. Jeg held þú sjert orðin tauga .... of- þreytt .... Þig vantar einhvern til að gæta þín, og þá skal jeg ávalt vera viðbúinn". „Vertu sæll, Feddie“, sagði Virginia kulda- lega. „Vertu sæl .... sæl .... sagði hann kátur í bragði, og dyrnar lokuðust á eftir honum. Nú varð vandræðaleg þögn. Loks sagði Jane frænka: „Þessi ungi mað- ur gerir sjer í meira lagi dælt við þig, Vir- ginia". „O, hann er hreinasti fábjáni, og segir alt, sem lionuin dettur í hug“, sagði Virginia og var í illu skapi. „Að liann er fábjáni, er náttúrlega ekki þjer að kenna, en hitt er þjer að kenna ef þú iætur harín segja við þig hvað honum gott þykir“. „Já, en sjerðu ekki, frænka, hann er bernskuvinur Bills, sagði Virginia í vandræð- um sínum. Þá hringdi sírninn, sem stóð á skrifborði Virginiu. Hún hljóp til og greip heyrnartólið, sárfegin að losna við frekari skýringar. Sú, sem talaði var meðlimur kvenrjettindafje- lagsins, Sarah Mortimer að nafni, og hún vildi fá að vita hvort Virginía hefði verið á fundi, sem haldinn hafði verið í vikunni á lindan...... „Við höfum áríðandi fund á fimtudaginn kemur“, sagði hún, „og það er afar áríðandi, að þjer komið þangað. Við höfum nýlega heyrt, að Wheater ofursti, sem er þingmaður fyrir Tranby, hjóði sig ekki fram við næstu kosningar — og það er mjög sennilegt, að fjelagsdeildin í kjördæminu skori á okkur að tilnefna þingmannsefni, — formaðurinn þar, Grinstead gamli ofursti, tekur eftir hverri okkar hreyfingu eins og þjer vitið. Þetta er auðvitað alt leynilegt enn sem komið er, en mjer þótti rjettara að gera yður viðvart í tæka tíð, þar eð málið snertir yður svo mjög, persónulega". „Persónulega?" spurði Virginia og fjekk á- kafan hjartslátt. „Já, það er mjög sennilegt, að við útnefn- um yður sem þingmannsefni okkar. Þjer haf- ið öll skilj'rði til þess: áhuga og mælsku. Auðvitað tölum við nánar um þetta á fund- inum, en jeg geng út frá því sem gefnum hlut, að þjer sjeuð fúsar til þess að verða í kjöri“. „Já, hvort jeg er fús til þess. Það er hvorki meira nje minna en heitasta ósk Hfs míns“. „Þú virðist hafa fengið gleðilegar fregnir", sagði Jane frænka, þegar Virginia lagði frá sjer heyrnartólið. „Já, guð minn góður. Það er blátt áfram dásamlegt. Jeg var að heyra, að jeg á að verða í kjöri við næstu kosningar í Tranby". „Þú meinar að bjóða þig fram til þings, eða hvað?“ Rödd frænku var ískyggi’ega ró- leg. „Já, bara, að jeg verði nú kosin“. sagði Virginia, .... „það er draumur lífs míns“. „Þá er tími til kominn, að þú vaknir af þeim draumi“, sagði frænka, með grimmi- legri raust......„Aldrei á minni lífsfæddri æfi hef jeg heyrt annan eins fábjánaskap“. „Jeg veit ósköp vel, að þú ert ekki hrifin af stjórnmálastarfi mínu, en þú ferð þó ekki að hindra mig frá að ná þessu æðsla tak- marki lífs míns?“ „Jú, jeg liefi megnustu andstygð á þessu öllu saman. Jeg hjelt, satt að segja, að þú værir laus við þetla frelsisbull, siðan þú gift- ist. Og svo ertu verri en nokkru sinni áður. En þú skalt ekki halda, að jeg þoli það, að þú sjert að hlanda þjer inn í slika vitleysu. —- Mjer sló óhug á Virginiu, þó ekki svo mjög við orðin sjálf, heldur tóninn, sem gamla konan viðhafði. „En frænka, það er þó ekki ætlun þín, að „.... Jú, að hætta fyrir fult og alt að styrkja þig fjárhagslega. Nú, svo það virðist vera helsta ráðið til þess að koma fyrir þig vitinu. Þú getur ekki boðið þig fram til þings fjeláus. Að vísu þekki jeg ekki mikið til stjórmríála, en svo mikið veit jeg þó“. Vonbrigði Virginiu voru svo megn, að tár komu fram í augu hennar. Hún gleymdi öllu öðru, þegar þetta hjartansmál hennar var annarsvegar. Hún settist við hlið frænku sinnar og tók að reyna að telja henni hug- hvarf. Nú tók Virginia á öllum sannfæring- arkrafti sínum. Jane frænka varð dálítið á háðum áttum, er hún komst að því hversu málið var henni hjartfólgið. — Það er ekki mín persónulega skoðun, sem hjer ræður mestu, heldur til- hugsunin um það, hver áhrif þetta getur haft á hjónaband þitt, og hvað verður um um- hyggju þína fyrir heimilinu----------og inann- inuin þínum?“ Virginia beit á vörina. „Stjórnmálin þurfa engin áhrif að hafa á heiinilislífið. Eru kanske ekki margar af okkar helstu þingkonum giftar?“ „Það varðar mig ekki um, barnið gott. Og svo er annað, sein þú virðist alls ekki hafa gert ráð fyrir: Þú getur eignast börn. Lang- ar þig kanske ekki lil að bera hörnin hans Williams i örmum þjer?“ „Nei, svei mjer þá“, svaraði Virginia, dá- lítið snöggt. „Við skulum ekki tala um þetta“, sagði hún blíðlega, og lagði handlegg- inn um háls gömlu konunnar. „Segðu nú ekki framar, að þú ætlir að hindra mina heit- ustu ósk“.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.