Fálkinn - 03.08.1929, Blaðsíða 11
F A L K I N N
11
Yngstu lesendmnir.
KANT ÞÚ AÐ SYNDA?
Fyrir svo sem fimmtíu árumvarþafS
mjög fátítt lijer á landi, aö menn
va;ri syndir. En þetta hefir breyst til
batnaðar á síðari árum, og nú mun
ekki sú sveit vera til á öllu landinu,
að þar sjeu ekki til ýmsir ungir menn,
sem eru syndir. Best er að læra sund
meðan maður er barn, því þá er
sennilegt, að maður geti orðið ágætur
sundmaður með tímanum, ef maður
iðkar það. En læri maður ekki sund
fyr en maður er uppkominn eru
minni líkur til, að maður geti nokk-
urntíma orðið afreksmaður í sundlist.
Forfeður okkar voru annálaðir
sundmenn, enda voru íþróttir stund-
nðar af miklu meira kappi á gullöld
Islendinga en síðar. Þið drengirnir
þekkið sjálfsagt söguna af Kjartani
Ólafssyni, þegar hann þreytti sund
við Ólaf konung Tryggvason og þið
telpurnar munið sjálfsagt eftir sög-
unni um Helgu jarlsdóttur, sem synti
með drengina sína úr Geirshólma til
lands. Og söguna af sundi Grettis úr
Drangey hljótið þið öll að þekkja.
Fyrsta tegund sunds sem þið lærið
cr vitanlega bringusundið. Það er
einskonar byrjun sundiþróttarinnar.
Þið þekkið sjálfsagt einhvern, sem
getur kent ykkur bæði bringusund og
baksund. En hinsvegar er ekki vist, að
þið getið fengið tilsögn i skriðsundi.
bað er mikið tíðkað á síðustu árum
vegna þess, að í sundi eins og öðrum
iþróttum vill maður gjarnan vera
fljótastur, og skriðsundið er einna
besta hraðsundið sem menn þekkja.
Fóta- og handaburðuiúnn í skrið-
inu, handleggirnir teygðir beint fram
og höfuðið liálft ofan í vatninu.
Handleggurinn er beygður, bæði
undir og yfir vatnsborðinu. Hreyfing-
in er svo skjót, að ómögulegt væri að
gera hana með beinum handleggjum.
Fótunum haldið fast saman og teygt
úr ristunum. Fótatökin eru gerð með
því að beygja fæturna í hnjáliðunum,
lærunum er haldið fast saman og þau
ekki hreyfð i mjaðmarliðunum. Fæt-
urnir, sem á milli sundtaka eru rjett
undir vatnsborðinu eru kreptir svo, að
hálfur leggurinn komi upp úr vatninu.
Um leið og hægri handleggur gripur
sundtakið aftur, er vinstri fæti sleg-
ið niður, eftir beyginguna upp á við.
Siðan koma sömu hreyfingar með
vinstri handlegg og liægri fæti.
Maður andar að sjer við þriðja eða
fjórða hvert sundtak og snýr þá and-
litinu til liliðar án þess að vinda komi
á kroppinn. Annars er andlitinu mg
höfðinu haldið niðri í vatninu, svo
að það nái upp fyrir augu. Maður
andar frá sjer undir vatnsborðinu.
Talcið vel eftir fótaburðinum á mynd-
unum.
Vinstri handleggur fram, hœgri handlegg hjft. :gjj
sundi er sá sami og hjá hesti, sem Að skriðsund sje gömul iþrótt má
gengur fetið. Hægri liandleggur og sjá af þessari mynd, sem er af grisk-
vinstri fótur og vinstri handleggur og um peningi, sem hefir verið notaður
Weismiiller á skriðsundi.
likt. Peningur þessi er geýmdur á
British Museum í London.
Skriðsundsmaður getur enginn orð-
ið svo i lagi sje nema með ágætri æf-
ingu. Sjerstaklega er mikið undir því
komið, að andardrátturinn sje rjett-
Einn fræknasti allra núlifandi sund-
manna er Ameríkumaðurinn Johnny
Weismiiller. Af sextíu metum fyrir
mismunandi sund og sundvegalengdir
hefir liann sett 32. Hefir enginn mað-
ur nokkru sinni reynst annar eins
sundgarpur og hann. Hjerna á mynd-
inni sjerðu þennan sundkappa. Það
væri ekki ónýtt að verða annar eins
sundmaður!
hægri fótur eru hreyfðir samtimis. 193 árum fyrir Krists fæðing. Að visu
Aður en sundtökin eru tekin er kropp- liefir þetta sund ekki verið alveg eins
°rinn látinn liggja þráðbeinn í vatn- og skriðsund nútímans en þó furðu
Gamall peningur.
ur og maður sje sterkur i fótunum.
Þess vegna skaltu gæta þess, að and-
ardrátturinn sje rjettur undir eins og
þú byrjar að æfa þig. — En ef þú
lærir sæmilega skriðsund á annað
borð, þá skaltu vera viss um, að það
verður skriður á þjer í vatninu. Ef
þú lærir suiidið rjett, þá muntu hafa
við öllum þeim, sem nota aðra sund-
aðferð og þá er sennilegt, að þú vinn-
ir einliverntima verðlaun fyrir sund.
En þú manst það, að þegar þú ert
að læra að synda máttu aldrei vera
einn í vatni, sem er svo djúpt að þú
botnir eltki. Jafnvel syndir menn hafa
fengið krampa og druknað.
Tóta frænka.
— Þú lofaðir mjer, pabbi, að gefa
mjer tiu aura, ef jeg svaraði kennar-
anum rjett spuimingu, sem enginn
annar svaraði.
— Hjerna eru tíu aurarnir, drengur
minn, svaraði faðirinn. — Hvað var
það svo, sem kennarinn spurði þig
um?
— Hann spurði: Hefir nokkur ykk-
ar ekki reiknað dæmin sin fyrir dag-
inn í dag? Og jeg var sá eini, sem
svaraði já.
t30£3 £3 C3C3Í3C30C3 £3 C3ÖOC3 £3000000000
| 50 aura !
g gjaldmælisbifreiðar |
Í hefir g
Í Nýja bifreiöastööin i
g til leigu. g
13 £3
© Afgreiðslusímar 1216 & 1870. ©
ioooeoooooooooooooooooooo
Matar
Kaffi
Te
Ávaxta
Þvotta
Reyk
Stell
1
Úrvalið mest.
Verðið lægst.
Verslun
Jóns Þórðarsonar. J
____________-□
B A
\
4
\
4
\
4
4
4
Vandlátar húsmæður ►
nota eingöngu ^
Van Houtens ►
heimsins besta
suðusúkkulaði.
Fæst í öllum verslunum.
►
l
►
►
►
w
\
♦
♦
♦
♦
\
Aðalumboð fyrir
Penta og Skandía,
C. Proppé
\
♦
♦4
fflöFini
Allskonar líftryggingar.
Umboðsmaður:
O. P. Blöndal,
Öldugötu 13. Sími 718.
»
VERSLUNIN NORÐURLAND
(D]0RN BJ0RNSSON frá MÚLA)
AKUREYRI
Sími: 188. Box: 42 Símn.: Bangsi.
Zeiss Ikon: myndavjelar.
— filmur.
Ljósmyndapappír, margar teg.
Miklar birgðir, lágt verð.
Kopíering og framköllun,
fljót afgreiðsla, góð vinna.