Fálkinn - 08.02.1930, Blaðsíða 4
4
F Á L K I N N
Emile Walters málari.
í,f*.
Víðfrægastur allra núlifandi
málara, sem af íslensku bergi
eru brotnir, er eflaust Vestur-
íslendingurinn Emile Walters.
Hann er aðeins rúmlega 37 ára,
fæddur 31. janúar 1893, en hefir
þegar náð mikilli listafrægð
vestan hafs og er orðinn kunn-
ur í Evrópu fyrir list sína.
Walter fluttist veslur með for-
eldrum sínum 5 ára gamall. Bar
snemma á listamannshæfileik-
um í fari hans og rjeðist hann
korriungur út á listamannsbraut-
ina, með tvær hendur tómar, en
viljinn var að sama skapi sterk-
ur og hæfileikarnir miklir. Nám
sitt stundaði hann einkum við
þrjár stofnanir: Listaskólann í
Chicago, listaháskólann í Penn-
sylvaníu og Tiffany Foundation
i New York. Er list hans sjer-
kennileg og sjálfstæð og velur
Walter sjer einkum verkefni úr
skógum og blómarílci náttúr-
unnar og þykir frábær skóga-
málari. Málverk Walters hafa
verið sýnd á ölum helslu mál-
verkasýningum í Bandaríkjun-
um t. d. á Al-Ameríkusýning-
unni í Los Angeles, Garnegi-
stofnuninni í Pittsburgh og á
hinu fræga málverkasafni Tates
i London, sem er eitt af fræg-
ustu söfnum heimsins, að því er
snertir málverkalist síðari tíma.
Sem vott um hæfileika Walters
á námsárunum má nefna, að
hann fjekk námsstyrk og verð-
taun ýmsra hinna frægustu
stofnana vestan hafs. Og fjöl-
mörg söfn hafa keypl myndir af
honum, má þar nefna myndina
af fæðingarslað Roosevelts for-
seta, sem er á málverkasafninu
i Washington, „Blossom Time“
á Brooklyn Museum, „Late
Winther“ á málverkasafni Har-
ward háskóla. Málverkasafnið
í Reykjavík á fjórar myndir eft-
ir Wallers, Árstíðirnar (Vetur,
Sumar, Vor og Haust). Þá hefir
Walters verið kjörinn meðlim-
ur ýmsra frægra listamannaf je-
laga og heiðursmeðlimur sumra.
— Á síðasia ári var Walters
hjer á ferð ásamt konu sinni,
frú Þórstínu Jackson. Ferðaðist
hann víða um land, og málaði,
en var fremur óheppinn með
veður, enda var hann hjer
snemma ársins. Hann gerir ráð
fyrir að koma aftur heim í sum-
ar með ferðalióp Vestur-íslend-
inga (sjádfboðaliðsnefndarinn-
ar) og ætlar þá að dvelja hjer
um hríð. Er hann mjög hrifinn
af landinu og fegurð þess.
Emile Walter er mikill ættjarð-
arvinur og áhugasamur maður
um framtíð Islands. Birtist
mynd af honum hjer í blaðinu
i fyrra, en nú sýnir „Fálkinn"
myndir af nokkrum málverkum
hans.
Alt tU raksturs
fáið þjer best og ódýrast
í Gleraugnabúðinni, Lgv. 2.
Gilette rakvjelar og rakblöð.
Valet rakvjelar og rakblöð.
GLOBUSMEN RAKBLÖÐ!
Raksápur, rakkreme, skeggkústar,
slípivjelar, blóðstopparar,
Lp. 2.
rakstativ.
rakhnifar.
Hreinar ljereftstuskur kaupir
Herbertsprent, Bankastræti 3.
Ámundi Ámundason, fiski-
matsmaður verður 80 ára 10.
febr.