Fálkinn - 15.02.1930, Page 2
2
F A L K I N N
----- GAMLA BÍO ----------
Á þrettándu stnnd
Afarspennandi leynilögresjlu-
sjónleikur í 6 þáttum.
Aðalhlutverkið leikur
Lionel Barrymore
og undrahundurinn
Napoleon.
Sýnd bráðlega.
PILSNER
Best. ódýrast.
INNLENT. J
ÖLGERÐIN
EGILL SKALLAGRlMSSON.
.........
Lærið að tala ensku sem Englendingnr,
frðnsku sem Frakki og þýsku sem Þjóðverji!
Linonaphone-plðturnar ern aðferðin.
Skrifið eftir flugriti okkar
með ummælum þektra málamanna.
Hljóðfærahúsið.
Dtanáskrlft: HUóðfærahúsið, Austurstrætl. — Símnefni: Hlióðfærahúsið.
V. B. K. selur „ÓÐ1NN“ teikniblýantinn.
------ NÝJA BfO ------------
Fyrir dámstðl ástarinnar
Tilþrifamesti og áhrifarikasti
leikur
Normu Talmadge
Besta kvikmyndin, sem nokk-
urntíma hefifr verið tekin um
ást gegn skyldu.
Sýnd bráðlega.
Vandlátar húsmæður
kaupa .
Hjartaás-
smjörlíkið.
Kvikmyndir.
„FYRIR DÓMSTÓLI KÆRLEIKANS“
heitir merkileg mynd, sem Nýja Bíó
sýnir á næstunni. Segir myndin frá
því hver áhrif stríðið, og afleiðing-
ar þess, hefir á líf ungrar stúlku,
sem er vinkona tvegga vina, en ann-
ar þeirra er liðsforingi í her Rússa
en hinn gegnir líkum störfum í liði
Austurríkismanna .Þegar hinn grimmi-
legi raunveruleikur stríðsins hefst
verður stúlkan orsök i fjandskap
þessara tveggja vina, en örlögin haga
þvi þó svo, að þeir sættast um síðir,
eftir að stúlkan hefir boðiði íram
sína dýrustu fórn, sem hún hefir að
bjóða. Myndin er tekin af „United
Artists" og aðalhlutverkið leikur
Norma Talmadge. Mun mál flestra,
eftir að hafa seð myndina, að aldrei
hafi þessari góðkunnu leikkonu tek-
isl betur en í þetta sinn.
----x----
„Á ÞRETTÁNDU STUNDU“
heitir kvikmynd, sem bráðlega verð-
ur sýnd í Gamla Bíó. Er þar á mjög
sjerkennilegan hátt lýst þvi, hvernig
glöggsýnum laganna þjónum tekst að
hafa upp á hættulegri sakamanna-
samkundu, en þó má bæta þvi við,
að mikil hjálp kemur lögreglunni frá
einni höfuðpersónu leiksins. Má ekki
seinna vera, að alt fari i voða, og af
]>ví mun dregið nafn leiksins „Á þrett-
ándu stundu". Aðallilulverkið í mynd-
inni leikur Lionel Barrymore og má
fullyrða, að enginn getur staðið hon-
um á sporði í þessu hlutverki, —
svo vel er það af hendi leyst. Og
hugsun myndarinnar og frágangur er
alt í fullkomnasta lagi.
Þjóðverjar eru að hreyta fjórum
stærstu skipum sínum þannig að
þau verði hraðskreiðari. Verða sett-
ar í þau sterkari vjelar. En jafn-
framt verða nýjir reykháfar settir
á skipin, lægri og breiðari en áður
tíðkaðist. Lagið á reykháfunum hefir
mjög mikla þýðingu fyrir notagildi
vjelarinnar, og þegar „Bremen“ var
smíðað þóttust menn finna reyk-
háfslag sem tæki öllu öðru fram.
Frú Temple frá Boston, sem er
listmálari og þykir ákaflega gott að
reykja misti nýlega ríka frænku
sína. Hafði gainla konan mælt svo
um í erfðaskrá sinni, að ef frú Tem-
ple vildi sverja þess dýran eið að
bragða aldrei tóbak framar, skyldi
hún erfa 10.000 dollara eftir sig. En
ef hún ekki vill vinna eiðinn fær
hún ekki nema renturnar af upp-
liæðinni. Og nú er frú Temple i
mestu vandræðum með, hvort hún
eigi að sverja eða sverja ekki.
----x----
Atvinnuleysið er mesta plága
fleslra stórþjóða heimsins um þess-
ar mundir ■— allra nema Frakka.
Er talið að ekki sjeu nema nokk-
ur hundruð atvinnuleysingjar i
Frakklandi, þar af flestir í Paris.
Útlendir verkamenn fá atvinnu i
Frakklandi og fluttust þangað 3000
á síðasta ári, en aðeins 500 erlendir
ríkisborgarar fluttu úr landi.
----x----
Stærðfræðingi einum telst svo til,
að ef líku fari fram um dáhardægur
og fæðingar í borginni Wien og verið
hefir síðuslu árin verði borgin mann-
laus eftir 250 ár. í Wien er mikið um
sjálfsmorð. Af hverjum 100 dánum
fyrirfara sjer þrír, að meðaltali.
------------------x----
í Ameriku hafa 300.00 manns at-
vinnu við að afhenda bensíu og gera
við bifreiðar. Þó eru ekki eins marg-
ir bensíngeymirar þar eins og sum-
staðar annarsstaðar. Að tiltölu við
bílafjölda eru hvergi eins margar
bensínstöðvar eins og í Danmörku.
------------------x----
General Motors er nú farið að
smíða flugvjelar. Til þess að gera
mönnum hægra fyrir að kaupa þær,
eru þær seldar með sömu afborgun-
arskilmálum og bifreiðarnar,