Fálkinn - 15.02.1930, Page 6
6
P Á L K I N N
Zebu-kýrnar i Hindúaborgunum i Indlandi haga sjer eins og þær „eigi
allan heiminn“. Kýrnar eru heilagar og mæti sanntrúaður Hindúi þeim
ú götu, dettur honum ekki í hug að banda við þeim, heldur víkur hann
auðmjúkur úr vegi.
En undir eins og litið er til
þjóðflokka þeirra, sem ómentað-
ir kallast, þá rekur maður sig
íljótlega á, að dýratilbeiðslan er
ekki horfin hjá þeim. Það er eitt-
livað amiað. í Siberíu lifa þjóð-
flokkar, sem enn þann dag í dag
telja hjarndýrið einskonar full-
trúa guðlegrar veru. Að vísu
drepur þetta fólk björninn sjer
til matar og ldæða, en undir eins
og björninn er drepinn hafa þeir
um hönd ýmiskonar „seremoní-
ur“ til þess að mýkja andann,
sem að lionum stendur. Hindú-
arnir eru enn staðfastari í dýra-
Irúnni. Pfeir telja kýrnar heilög
dýr, og enginn sanntrúaður Hind-
úi mundi nokkurntíma gera sig
seka í þeirri óhæfu að slátra
belju.
Þó er þetta ekkert á móts við
höggormadýrkun þá, sem enn
tiðkast víða í Indlandi og virð-
ist svo föst í þjóðinni, að ómögu-
legt sje að útrýma henni. I forn-
öld höfðu menn átrúnað á högg-
ormum víðsvegar um heim, en
þessi átrúnaður er nú víðast livar
liorfinn nema í Indlandi. Eru þó
tilbeiðendur höggormanna á
nn'klu hærra menningarstigi, en
sumar aðrar þjóðir, sem fyrir
löngu eru hættar að tilbiðja dýr.
Þó má ekki skilja þetta svo, að
Indverjar sjeu vfirleitt tryggir
þegnar liöggormanna ennþá. Á-
trúnaðurinn helst aðeins á nokkr-
um stöðum í Indlandi og þá eink-
um í hjeraðinu Kumbakonain.
Þar reisa menn skrautleg musteri
og er safnað þangað hinum lieil-
ögu liöggormum og þeir tilbeðn-
ir. Og þangað þyrpast árlega þús-
undir pílagríma til þess að tigna
nöðruguðinn Scliesa og fulitrúa
hans hjer á jörðu: liöggormana.
Eins og sjá má af þessu eru
„lieilög dýr“ til ennþá á jörðinni.
Má geta þess, að menningar- og
framfaraþjóð eins og Síamsbúar
eiga líka heilagt dýr: livíta fílinn,
og er mynd hans á fána þeirra,
á rauðum feldi. Ef trúa má orð-
um Heródóts liafa öll dýr verið
talin lieilög á frumskeiði mann-
kynsins og ef miðað er við það,
hefir vegur dýranna farið hýsna
mikið fallandi í heiminum.
Talið er, að þrjár frumorsakir
liggi upprunalega til dýratil-
beiðslunnar. Ein sú, að dýrið hafi
hlotið tilbeiðslu mannanna vegna
þess að það hafi verið fallegt og
tilkomumikið. Önnur sú, að dýr-
ið hafi verið nytjadýr og komið
mönnunum að gagni. Og hin
þriðja, að dýrið hafi verið ægi-
legt eða hættulegt, og menn hafi
því farið að tilhiðja það vegna
einskonar þrælsótta.
Hveitiuppskeran í Canada varð
talsvert minni síðasta ár en árið áð-
ur, að verðgildi til. Síðastliðið ár
varð uppskeran 345.840.000 dollara
virði, en árið 1928 var hún 451.-
235.000 dollara virði. Hveitirækt er
aðalatvinnuvegur Canadabúa og á sú
atvinnugrein ennþá ótakinarkaða
möguleika fyrir höndum.
----x——
Sextug vinnukona í Stokkhólini,
sem var alin upp á sveit og liafði
verið hláfátæk alla æfi, erfði nýlega
110.000 krónur eftir móður sína.
Móðirin var 21 árs þegar dóttirin
fæddist og þá algertega umkomulaus,
en síðar giftist hún efnuðum manni.
Nú er hún dauð, komin yfir áttrætt,
og hafði arfleitt dótturina að eigum
sínum. Þegar dóttirin fjekk þessa
gleðifregn dubbaði hún sig upp og
fór í bíó — í fyrsta skifti á æfinni.
-----------------x——■
Fólksfjöldinn í Frakklandi var
39,2 miljónir árið 1921, en í lok árs-
ins 1928 41 miljón. Á sama tíma hef-
ir íbúum Ítalíu fjölgað um hálfa
miljón meira en Frakklands, svo
að nú eru tíalir komnir fram úr
Frökkuin, svo að munar 150 þúsund-
um. Hefir íbúum Ítalíu fjölgað um
6% á þessu tímabili, en i Þýskalandi
nemur fjölgunin 7,6%. Einkennilegt
er hve mismunandi fjölgunin er i
Austurríki og í Ungverjaiandi. í
Austurríki hefir fólkinu fjölgað um
3,9% en í Ungverjalandi um 8,2%.
Fyrir skömmu var haldið upboð í
New York, sem ekki er í frásögur
færandi. Þar var meðal annars seldur
prýðisfallegur smaragðhringur. Hafði
liann verið í eign rússnesku keisara-
ættarinnar. Gimsteina-salinn, sem
hringinn keypti gaf fyrir hann 4000
dollara, er hringurinn þó ekki álit-
inn kosta meira en nokkur hundruð
dollara að rjettu lagi. En verðmæti
hringsins liggur í því, að liann var
síðast eign rússnesku keisaradrotn-
ingarinnar og hafði Rasputin gefið
henni hann og mælt svo um, að lion-
um fylgdu töfrar nokkurir og þorði
drotningin því aldrei að skilja hann
við sig. — Keisarinn hvað einnig
hafa átt verndargrip. Var það líka
hringur. í hann var greypt flís úr
krossi Krists. En eins og kunugt er
má finna svo margar flýsar úr krossi
Krists út um heim að úr yrði heill
skógur ef safnað væri. Svo það leikur
nokkur efi á hvort keisaraflísarnar
þrjár eru skornar af þeim rjetta
viði. — Annars er það algengt að
þjóðhöfðingjar beri verndargripi.
Edward VII. kvað altaf liafa borið
armband, sem átt liafði Maximillian
úr Austurríki. Georg V. fer aldrei svo
í hil sinum, að han liengi ekki dálitla
látúnsmyrid framan á bílinn. Er það
táknmynd af Bretaveldi, kvenmaður
með útrjettar hendur og ljón, sem
ligur fyrir fótum henni. Mynd þessa
flytur Georg konungur með sjer
hvert sem hann fer. —
-----x—-—
British Museum i London er að
hyrja að gefa út nýja skrá um safn-
ið. Verður útgáfukostnaður um fjór-
ar miljónir króna og er gert ráð fyr-
ir að verkið verði ekki unnið á
skemri tíma en tíu árum. Núverandi
skrá safnsins er i 5000 bindum.
------------------x----
Viðáltumesta preslakall í Noregi
er Kautokeino i Lapplandi. í presta-
kallinu eru 940 sálir, nálega alt
I.appar, en kallið er svo stórt, að
presturinn verður stundum að fara
4—5 dagleiðir til að skira hörn.
Guðsþjónusturnar fara fram á lapp-
nesku.
-----x----
í bænum Waseca i Ameríku bar
það við nýlega, sem skjaldan skeður,
að tvær systur hjeldu gullbrúðkaup
sitt samtimis. Þær höfðu verið gift-
ar samtímis í sömu kirkjunni fyrir
50 árum og bæði brúðhjónin lifa
cnn.
-----x----
Ameríkanskur visindamaður, próf.
Andrews liefir nýlega fundið stór-
merkilegar höfuðkúpur frá fornöld
mannkynsins, austur i Mongólíu. Er
talið að þessar höfuðkúpur sjeu
margra miljón ára gamlar. Þykir
þessi fundur ný sönnun fyrir því,
að vagga mannkynsins hafi staðið
austur í Mið-Asíu.
-----x-----
Hinn nýji sendiherra Breta í
Rússlandi heitir Esmond Ovey. Hef-
ir því ekki orðið af því, að Keen-
worthy þingmaður frá Huli yrði
skipaður sendiherra þar eins og áð-
ur var sagt.
-----x----
Þegar Umberto krónprins giftist
fyrir skömmu ljet Ítalíudrotning til-
kynna, að allar þær konur, sem yrðu
viðstaddar brúðkaupið yrðu að vera
í kjólum með löngum érmum. Ekki
máttu þær vera axlaberar en þó
máttu kjólarnir vera flegnir í háls-
inn með þvi skilyrði, að kvenfólkið
hefði slæðu um hálsinn.
-----x----
Shell-fjelagið hefir nýlega keypt
eitt af merkustu gistihúsunum í
Landon, Hotel Cecil, og ætlar að
gera úr því skrifstofur. I gistihúsinu
voru 900 gestaherbergi og 20 borð-
salir, og verða öll þessi húsakynni
nú notuð fyrir skrifstofur. Gistihús-
ið var selt fyrir 33 miljónir króna.
Hindúi færir steinmynd nöðruguðsins fórnir sinar.