Fálkinn - 15.02.1930, Síða 9
PÍLKINN
9
Myndin sýnir skólabörn á leið heim til sín úr skólanum í jóla-
fríið. Hún er tekin í Þýskalandi og sýnir m. a. að hestvagnar eru
þar enn til þrátt fyrir allar bifreiðarnar.
Um borð i ensku herskipnnum eru gamlir jólasiðir hafðir i
heiðri. Myndin er tekin um borð á ensku skólaskipi og sýnir
þegar þjóðrjettur Englendinga, „skorpusteikin“ er borin upp
á þilfarið.
lUHHMÍii**
Saltnámurnar í Rúmeníu eru mestmegnis reknar með vinnu af-
brotamanna. Þeir vinna átta stundir á dag í námunum og verða
að losa ákveðna þyngd af salti. Vopnaðir hermenn standa yfir
þeim og hafa rjett til að skjóta á þá ef fangarnir fleyja sjer ekki
flötum á gólfið þegar þeim er skipað. Fangarnir fá örlitla þókn-
un fyrir vinnu sína og er hún greidd þeim um leið og þeir eru
látnir lausir. Á myndinni sjást fangar á leið í námuna.
Árflóðin sem urðu í Thames fyrir jólin gerðu viða miklar skemd-
ir, einkum í kjöllurum og neðri hæðum húsa, sem lágt stóðu.
Skemdust viða húsgögn til muna. Myndin er tekin I garði við
eitt húsið. Vatnsborð árinnar hækkaði sumstaðar um 6—8 fet.
Eins og áður er sagt frá hefir prinsinn af Wales nú keypt sjer
litla flugvjel, sjer til skemtunar. Hjer á myndinni sjest hann í
flugvjelinni yfir London, en í horninu er mynd af honum
við stýrið. Eru ýmsir hræddir um, að flugvjelin verði honum
að bana fyr eða síðar, því prinsinn er mesti hrakfallabálkur.
En Englendingar vilja ógjarna missa hann, því hatin er i miklu
uppáhaldi hjá þjóðinni og er talið að aldrei hafi verið uppi
vinsælli ríkiserfingi en hann. — Flugvjelakaup prinsins hafa
haft þau áhrif, að nú vilja allir ungir menn eignast flugvjelar.