Fálkinn - 01.03.1930, Page 3
P Á L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
F'ramkvæmdastj.: Svavar Hjaltested.
Aðalskrifstofa:
Banicastræti 3, Reykjavík. Sími 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa i Oslo:
Anton Schjöthsgade 14.
Blaðið kemur út hvern laugardag.
Askriftarverð er kr. 1.70 á mánuði;
kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 20 aura miUimeter
Herbertsprent, Bankastræti 3.
Skraddaraþankar.
Oldin sem vjer lifum á, er oft köll-
uð öld vjelanna. Og nafnið er rjett-
nefni, því aldrei hefir kveðið jafn
rn;kið að ýmsum umbótum í þá átt,
uð gera náttúruöflin að þjónum
niannkynsins, gera vjelar, sem hag-
nýtt geti hin inargvíslegu takmarka-
lausu öfl og efni, svo að mennirnir
hafi gagn af þeim. Alt þetta stefnir
nð því að auka þægindi mannkyns-
ins, láta vjelarnar ljetta á fólkinu erf-
iðisvinnunni, svo að alt færist i þá átt,
nð maðurinn verði í bókstaflegri
nierkingu herra jarðarinnar.
Hjer á landi eru menn þegar farn-
lr að verða vjelaaldarinnar varir.
Annar aðalatvinnuvegur þjóðarinn-
ar er rekinn að miklu leyti með
víelum, og hefir þetta orðið til þess
að skapa ósamræmi í þjóðlífinu.
Landbúnaðurinn hefir orðið aftur úr
sjavarútveginum og afleiðing þess
aftur sú, að fólkið flyst úr sveitum
til sjávar. Og flestir eru á þeirri skoð-
un, að til þess að rjetta þennan
halla, þurfi landbúnaðurinn lika að
taka vjelarnar í sina þjónustu, þvi
annars fái hann ekki staðist.
Virðist því auðsætt, að íslenska
Pjóðin sæti sömu forlögum og aðrar
í þessu tilliti og skal það hvorki lof-
að nje lastað. En það virðist auð-
?*tt, að óhjákvæmilegt sje að búa
Pjóðina sjálfa undir þessa breytingu
°S afla henni þeirra mentunar, sem
°hjákvæmileg er hverjum manni á
vjelaöldinni.
íslendingar hafa löngum verið
uamfúsir menn og haft gott lag á
að afla sjer fræðslu af bókum, þó
skólagangan hafi verið stutt eða eng-
111 • En að því er snertir fræðibækur
Uni iðnfræðilég efni hjer á landi er
ekki um auðugan garð að gresja. Þó
fslendingar sjeu mikil bókaútgáfu-
hjoð má segja að bókamarkaðurinn
sle afar einhæfur. Og um þær bæk-
l)r, sem vjelaöldinni einkum .hæfa,
er v«rla að ræða á íslensku.
Beynslan hefir sýnt, að vjelfræði
iðnfræðileg efni liggja vel fyrir ís-
lendingum — má til marks um þetta
nefna skaftfellsku bændurna, sem
numið hafa svo vel rafvjelasmíði, að
uiestu leyti upp á eigin spitur að þeir
N|i'kja nú bæjarlæki víðsvegar um
;'ndið. Þarf varla að efast um, að
ef fiokkur góðra bóka um allskonar
'erklegar nýjungar og vjelfræði yrði
rifnður handa almenningi og gefinn
11 * a islensku, mundi sú útgáfa verða
s orum þarflegri en sumt annað, sem
nu kemur út á bókamarkaðinum,
Kristinann finðmundsson
rithöfundur.
Sá íslenskur rithöfundur, sem
mesta athygli vekur nú erlendis er
tvímælalaust Kristmann Guðmunds-
son. Hann hefir dvalið 5 ár i Noregi
og skrifað 4 bækur á ríkismálinu. Sú
fyrsta kom út haustið 1926. Voru það
nokkrar smásögur. Bókin hjet „Is-
landsk kjærlighet" og fjekk fremur
góða dóma hjá ýmsum merkum rit-
dómurum i Noregi, en „Islandsk
kjærlighet" varð lítt kunn utan Nor-
egs. Er í þessari bók þó ein smásaga,
sem telja verður hreinustu perlu,
„Sindsyk“ heitir hún. Haustið 1927
kom svo „Brudekjolen", sterkviða
skáldsaga. Snildarlegar náttúrulýs-
ingar og sálarlífslýsingarnar ritaðar
af næmum skilningi og glöggu innsæi.
Þesi bók vakti mikla athygli í Noregi
og utan Noregs. Hefir hún verið þýdd
á þýsku, ensku, höllensku og rúss-
nesku. 1928 kom þriðja bókin, „Ár-
man og Vildís“, er lýst ástandinu „á
berklasjúkrahúsi nálægt Reykjavík".
Er í þesari sögu meiri liraði í frá-
sögninni en i „Brudkjolen“ og er
„Ármann og Vildís“ talin mjög ólík
þeirri skáldsögu um flest. Lýsing-
arnar eru þar þó mjög skýrar, en
glettni bregður þar oft fyrir, sem litið
fanst af í hinum fyrri sögum. Siðast
liðið liaust kom svo út fjórða bókin
„Livets morgen“, sem mesta athygli
liefir vakið af því, sem Kristmann
hefir skrifað. Er „Livets morgen“ lik
að ýmsu „Brudekjolen“, hetjuandinn
og stórmenskan er þar mest áberandi.
Saga þessi hefir fengið svo einróma
lof að telja verður vafasamt hvort
nokkurt íslenskt skáld hafi fengið
svo einróma viðurlcenningu fyrir
verk sín. Set jeg hjer nokkur um-
mæli frægra ritdómara og þarf
því ekki að orðalengja frekar um
bókina, þvi að ummælin eru nægi-
lega skýr og taka af allan vafa um
hvort Kristmann sje stórskáld eða
ekki.
J. II. B. í „Niðarós“ Noregi: „Þessi
nýja bók hins merka íslendings, er
ritar hjer á ríkismálinu, er þrung-
in af örlagaríkum mikilleik íslend-
ingasagnanna". Inge Debes í „Nati-
onen“ Noregi: „Livets morgen“ er
mikilvægt ritverk, ekki aðeins
ineðal ritverka höfundarins, heldur
og einnig í bókmentum Noregs. „Ron-
ald Fangen í „Tidens Tegn“ Noregi:
I öllu tilliti er þett gott og glæsilegt
ritverk. Lýsingarnar eru sterkar og
bera vott um mikla sálarþekkingu.
Inní söguna eru ofnar margar lýs-
ingar af landslagi, fiskiróðrum, af
stormum og hetjudáðum, sem hverj-
ar fyrir sig eru alveg frainúrskar-
andi: Einnig eru lýsingarnar af
börnum góðar og lifandi". — Rolf
Thescn í „Arbciterbladet“: í bókinni
inni eru margir fyrirmyndar fagrir
kaflar. . . Sagan er mögnuð lífi og
eftirvæntingu“.„J;;/Zam/sposle/i“Da/i-
mörku: Þetta er hin besta af nýj-
um bókum sem jeg hefi lesið mörg
undanfarin ár. Og það er aðeins af
virðingu fyrir gömlum rithöfundum,
sem bliknaðir standast ekki saman-
burð við nýju kraftana, að jeg vil
ekki alveg fullyrða að „Livets morg-
en“ sje besta skáldsagan, er jeg hefi
lesið. Frásögnin er áhrifarík, og efn-
isval og efnismeðferð er alveg fram-
úrskarandi. . . Það var ómetanlegt
tjón fyrir íslenskar bókmentir, að
(Jóhann) Sigurjónsson dó svo ung-
ur, en (Kristmann) Guðmundsson,
er að minsta kosti jafnoki hans. ..“
„Prófessor Hjalmar Lindroth“ Gauta-
borg, Svíþjóð: „Livets morgen" er
stórkostleg og mikilfengleg saga“. ■—■
Prófessor, dr. Ernst IJarm, (heim-
spekingur, sálarfræðingur og bók-
mentafrœðingur), „Berlíner Tage-
blatt“ og „Litteraturblatt", Þýska-
landi: „Hann er einn af bestu snill-
ingum málsins á Norðurlöndum. Hin
nýja bók hans mun ná geysi út-
breiðslu um heim allan á komandi
árum. „Livets morgen“ er konungleg
saga. Með aðeins fáum orðum eru
gefnar guðdómlegar lýsingar, svo
skýrar, að þær standa lifandi fyrir
hugskotssjónum manns. Hjer er á
ferðinni mikill og heilsteyptur mað-
ur, sem einnig í heilsteyptri frásagn-
arsnild lýsir lífinu. Ilann er nýr list-
rænn „Lebensmorgen“ frá fjar-
lægasta horni Evrópu, frá útjaðri
menningarinnar — þannig er þessi
Islendingur, Kristmann Guðmunds-
son“.
Jeg hefi hjer aðeins tekið útdrátt
úr ummælum fárra stórmerkra
manna, sem um leið og þeir dæma
bækur fyrir bókamarkað sinnar eig-
in þjóðar, dæma fyrir bókamarkað
allrar Evrópu og jafnvel Ameríku
líka. Sjerstaklega er dómur þýska
prófessorsins athyglisverður. „Livets
morgen“ er nú verið að þýða á
þýsku og ensku og að líkindum verð-
ur sagan einnig þýdd á frönsku.
Af bókinni hafa nú þegar selst 6000
eintök í Noregi. Og segja bóksalar
þar, að bækur Sigrid Undsets, Kris-
manns og Bojers seljist best.
Þegar Kristmann fór hjeðan fyrir
5 árum var hann fátækur að öllu
nema trú — á sjálfan sig.
„Æfintýrið" um fátæka kotungs-
soninn gerist enn.
V. S. V.
Um víða veröld.
----X----
KARL f KRAPINU. Frank Froest,
—---------------— fyrrum forseti
Scotland Yards, lögreglustofunnar,
sem kunn er af Hnífsdalsmálinu og
öðrum stórmálum veraldar, er nýdá-
inn, 74 ára gamall. Hafði hann verið
34 í þjónustu þessarar frægu stofn-
unar.
Frank Froest þótti að mörgu leyti
fórgöngumaður í leynirannsóknum
og liefir hann verið fyrirmynd í fjölda
af glæpamannasögum. Hann var orð-
lagður kraftamaður, samanrekinn og
gildur, dugnaðurinn ódrepandi, úr-
ræðagóður og fljótur á sjer. Fyrir
þessa kosti varð hann fljótt einn af
annáluðustu leynilögreglumönnum i
London.
Það var hann, sem náði Crippen
lækni, sem myrt hafði konu sína, en
Jiað morð vakti afarmikla athygli á
siniii tið. Við þann eltingaleik voru
loflskeyti fyrst notuð i þágu lögregl-
unnar. Froest fjekk skeyli frá skip-
stjóranum á „Montrose“ um að
Crippen væri þar líklega innan-
borðs ásamt fylgikonu sinni Ethel de
Neve sem gekk í karlmannsfötum.
Froest símaði samstundis lögregl-
unni i Montreal, en þangað átti skip-
ið að fara, og hað hana að vera til
taks. En sjálfur lagði hann af stað
þangað, með skipi sem var hrað-
skreiðara en „Montrose“ og þegar
Crippen kom til Montreal gekk hann
beint í greipar enska lögreglumann-
inum og þar með var úti um hann.
Hann var dæmdur til dauða og
hengdur.
Á fyrstu árum Froest var hann
sendur til Queenstown til að taka
á móti glæpamanni, sem sakaður var
um 5 morð og var annálaður fyrir
krafta. Rjeðist bófinn á Froest undir
eins og þeir hittust og urðu þar
harðar sviftingar, en þannig lauk,
að Froest varð ofan á. Enda er kröft-
um hans viðbrugðið. Gat hann á
yngri árum snúið pening sundur
milli fingranna.
Froest var annálaður um allan
heim fyrir dugnað sinn og var hann
stundum falaður af lögreglu annara
landa, til aðstoðar. M. a. fór hann
til Bandarikjanna til þess að ganga á
miili bols og höfuðs á fjelagi fje-
glæframanna, og það tókst. Og hann
þekti helstu bófaaðsetur stórborg-
anna út og inn. Lýsingar þær, sem
eru i „Bulldog Drumond" sögunum
eru gerðar með honum sem fyrir-
mynd.
—x---------
KEISARI KÍNVERJA. Þó allir viti,
--------—------------ að Kina var
keisaradæmi fram að árinu 1912
munu flestir reka upp stór augu,
þegar þeim er sagt, að keisari Kín-
verja sje enn til, og að hann sje
meira að segja ekki nema 24 ára
gamall. Hann hefir sem sje ekki
heyrst nefndur, fremur en hann
væri ekki til, þessi átján ár, sem lið-
in eru siðan hann steyptist af stóli.
Og þó var hann borinn í þennan
heim til þess að stjórna 400 miljón-
um manna. — Nú heitir hann Pu Yi
og á heima í Tientsin og lifir þar
undir verndarvæng Japana, því haníi
fullyrðir að ef Kínverjar næðu til
sín mundu þeir þegar í stað gera
sig höfði styttri.
Pu Yi var 6 ára þegar lýðveldis-
sinnar tóku völdin í Kína. En þessi
fyrstu 6 ár var hann lengst af keis-
ari, þó lítið bæri á því, vegna þess
að ungbörn eru oftastnær athafna-
lítil í stjörnmálum. Keisaraekkjan
Tsu IIsi rjeði rikjum. En eftir 1912
var hann fangi í keisarahöllinni í
Peking alt þangað til suðurherinn
kínverski tók borgina 1924. Þá varð
hann að flýja þangað sem hann nú
er, undir verndarvæng Japana. lieis-
arinn hugsar ekkert um að komast
til valda. Hann langar aðeins til að
ferðast —- til Ameríku og Evrópu
og sjá hvíta menn. En hann hefir
ekki efni á að láta þennan draum
sinn rætast. Hann vantar farareyri!
Keisarinn i Kína var með ríkustu
jijóðhöfðingjum veraldar. Og sjálfur
átti Pu Yi peninga, svo miljónum
króna skifti. En það er farið. Þvi
var blátt áfram stolið. Hershöfðing-
inn Fung Yu Shang sló eign sinni
á það og enginn veit hvernig þvi
hefir verið ráðstafað, en hitt vita
allir að nú er hershöfðinginn orð-
inn forríkur maður. Aumingja Pu
Yi. Hann á ekki fyrir farmiðanum,
en keisaraekkjan síðasta varði 140
miljónum króna til þess að láta
reisa sjer minnisvarða!
Pu Yi langar til að heimsækja
ýmsa fræga menn hvíta og telur
hann i þeim hóp prinsinn af Wales,
sem liann öfundar injög vegna þess
að hann fái svo mikið að ferðast.
Ennfremur Hoover forseta, Lloyd
George, Charles Lindberg, Gretu
Garbo, Ilarald Lloyd og Chaplin.
Pu Yi kann talsvert i vesturlanda-
málum og les mikið af bókum.
----------------x----
Hæstirjetturinn i Jugóslaviu hefir
nýlega kveðið upp dóm yfir þing-
manni þeim, er slcaut Króataforingj-
ann Raditsch til bana á þingfundi í
Belgrad í fyrra. Fjekk þingmaður-
•inn 33 ára fangelsi.