Fálkinn - 29.03.1930, Page 1
16 siðaMOann:
Reykjavík, laugardaginn 29. mars 1930.
VIÐ MÝVATN.
Mývatnssveit er talin ein með fegurstu sveitum landsins. Lykur um hana f jallahringur á alla vegu, en vatnið i miðri sveit alsett
SH oðursœlum egjum og hólmum. Er Slútnes frægast fyrir sakir fegurðar og gróðurs. Vm sveitina alla liggur gamalt hraun, sem viða
er skógi vaxið og eldborgir grasivaxnar að mestu. Hvergi á landi hjer er eins fjölskrúðugt fuglalif og við Mývatn á vorin og kveður
Vl^ fjalla á milli af margróma fuglasöng, enda fiskisæld meiri í vatirínu en flestum öðrum vötnum. Nú liggja bílvegir til sveitarinnar
bæði frá Húsavík og Akureyri upp í Skútustaði, en þaðan má fara á bátum um alt vatnið eða á hestum á einum degi svo að segja
xllng um alla sveitina. Allir þeir, sem ætla sjer að ferðast um Norðurland í sumar ættu ekki að láia undir; höfuð leggjast að koma á
þennan gullfalleya stað. Myndin er tekin frá Kálfaströnd og er klukkutíma reið þangað frá Skútustöðuin.