Fálkinn


Fálkinn - 29.03.1930, Side 4

Fálkinn - 29.03.1930, Side 4
4 P Á L K I N N Drengur að leika sjer. Tarso. Sœmundur á selnum. Hversvegna birtir „Fúlkinn“ mynd af Pálma Hannessyni rektor núna, en ekki í haust Jjegar mest var um hann talaö? munu menn spyrja. Blaðinu láð- ist að gera Jjetta í haust, en nú hafa nokkrar ungar stúlkur t bænum sent oss innilega áskor- un um að fá mynd í „Fálkan- um“ og er blaðinu sönn ánægja að taka liana til greina. ----x--- Ensk stúlka, sem sótti um skrif- stofustöðu, og var vel kunnandi. fjekk ekki stöðuna, vegna þess aS hún var of falleg. Hún mundi trufla og tefja ungu mennina á skrifstof- unni, sagði verslunareigandinn. f Dögg- ——% vari hindrar dögg aíS setjast á gleraugu, spegla og alt gler. Sjer- hver gleraugnanotandi þarf að fá það. Alveg einstök þægindi. Þetta döggcreme TIP-TOP fæst aðeins í Glerauonabúðinni, Lgv. 2. —...... / Kona með Amorin. Samkvæmt siðustu hagskýrslum voru í lok ársins 1928 samtals 164 miljónamæringar í Kaupmannahöfn, á Friðriksbergi voru 44 og 79 í Gjen- tofte við Khöfn. ----x---- Sextugur maður á geðveikraspítal- anum i Middelfart misti nýlega lífið við það, að reynt var að koma ofan í hann mat gegn vilja hans sjálfs. Maðurinn hafði tekið upp á þvi að hætta að matast og eftir nokkra sveltidaga fyrirskipaði læknirinn að dæla ofan í hann mat með valdi. En eitthvað af matnum hafði farið ofan i þurka á manninum og kæft hann. Asniundur Sveinsson myndhðggvari heldur um þessar mundir sýn- ingu á allmörgum höggmynd- um í hinni nýju skrifstofubygg- ingu stjórnarinnar við Ingálfs- stræti. Ásmundur fluttist hing- að til lands í fyrravor eftir langa mentadvöl erlendis. Dvaldi hann fyrst í Stokkhólmi i mörg ár og naut þar leiðsagn- ar hins ágæta listamanns Milles. En að loknu námi á listaháskól- anum þar fluttist hann til París- ar og ferðaðist á þeim árum lil Ítalíu og Grikklands til þess að kynna sjer forna myndhöggv- aralist. Ásmundur er frumlegur t list sinni og sjerkennilegur. Hann vill láta hina mótandi list renna inn í byggingalistina og telur að með því móti, að nota listaverk til þess að skreyta hús og opinbera staði, komi þau al- menningi að betri notum, en verk, sem gerð eru til þess að standa á safni. Margt af verk- um Ásmundar er gert með hlið- lngveldur Guðmundsdóttir t Kópavogi varð 80 ára 20. þ. m. sjón af þessu, svo sém gos- brunnar hans og fleira. Þarna á sýningunni er fjöldi mynda, sem óblandin ánægja er að horfa á. Þektust allra mynda hans er ,Sæmundur fróði á selnum“ og er hún með elstu myndum hans, en þess má þó gela, að sú mynd, sem nú er til Grettir á bcmastnndinni. er allmikið breytt frá hinni fyrri mynd hans, sem skemdist í Stokkhólmi og nú er ekki fram- ar til. Þá má benda á mynd TÍs- mundar af víkingi einum, af „Gretti á banastundinni", gos- brunninum, sem hann hefir höggið i sænska marmara °9 fjóldi er þarna annara mynda, sem verðskulda athygli. Ásmundur er listamaður, sem þegar fyrir löngu hefir sýnt, að hann er hafinn yfir fjöldann og má vænta hins besta af lífsstarfi hans í framtíðinni. Þjóðin ætti að sjá sóma sinn í að gera vel við hann og þeir, sem byggja stórhýsi er þeir vilja vanda vel til, geta elcki kosið sjer betri prýði en þá, sem listasmekkur Ásmundar og snilli, gæti lagt til.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.