Fálkinn - 29.03.1930, Blaðsíða 6
6
FíLKINN
Svona lítur konungurinn út, þegar hann stendur andspienis liersveit-
tnn síniim og ávarpar þær. Það virðist vera mikill útlitsmunur á hon-
um og Shemba.
góðan veðurdag livarf hann frá
öllu saman. Hann skifti landar-
eign sinni niður í fjölda mörg
smábýli, sem hann gaf hjúum
sínum. I samráði við eiginkonur
sínar þrjár gerðist liann svo far-
andprjedikari og nú trúa þús-
undir manna því, að hann sjc
endurlausnari þjóðarinnar.
Bretar h.afa ráðin yfir landinu
og i fyrstu tóku bresku yfirvöld-
in starfsemi hans fálega. En nú
hefir þeim skilist að liann er
þarfur maður, því aldrei hefir
verið jafnfriðsamt í landinu eins
og síðan hann fór að prjedika.
f daglegu lífi sínu er Shemba
fyrirmynd annara manna að
háttprýði, iðni og nægjusemi.
Ilann fer fótgangandi stað úr
stað, þó bifreiðar haldi uppi á-
ætlunarferðum viða í Zululandi,
og prjedikar í hverju þorpi. Hann
kennir löndum sínum nýja og
betri siði, sýnir þeim fram á, að
þeir eigi að hætta að nota vopnin
til að skera úr deilum sínum,
prjedilíar þeim hindindi og telur
þá af að sækja hinar tryllings-
legu dansskemtanir. Og alstaðar
Þetta er andlitsmgnd af Shemba,
svarta spámanninum. Andlitið er ó-
venju gáfulegt i samanburði viðZulu-
negra yfirleitt.
þar sem hann kemur safnast
fólkið að honum til þess að
hlusta á hann og fá blessun hans.
Shemba er kristinn, en þó ber
honum og trúboðunum í landinu
ýmislegt á milli. Trúboðarnir
vilja t. d. ekki viðurkenna að
fjölkvæni megi leyfast. En
Shemba er maður hygginn og
skilur, að það er nær ómögulegt
að ganga í berhögg við aldagaml-
ar þjóðvenjur í einni svipan, og
Þessi maður er konungur í Zulu-
landi. Hann er sex feta hár og að-
eins 28 ára gamall. Hann er valda-
mikill maður, en þó þykja orð hans
ekki mikils virði, ef þau ganga gegn
kenningum Shemba.
þvi vill hann fyrst reyna að sið-
menta þjóð sína á öðrum svið-
um, þar sem mest kveður að
villimenskubragnum og smá-
færa sig upp á skaftið. Sjálfur á
liann þrjár konur, eins og áður
er getið. Þegar liann ræður fólki
frá dansinum, eru það hinir dul-
rænu villimannadansar — eins-
konar heiðin trúarathöfn — sem
hann berst á móti, en alls ekki
hinir venjulegu þjóðdansar, sem
dansaðir eru með hæversku
móti.
Shemba er einkennilegur mað-
ur. Evrópumenn í landinu hafa
mikið dálæti á honum og telja
hann langmerkasta mann þjóð-
arinnar. Þegar hvítur maður
heimsækir hann, setur hann
fram eina stólinn á heimilinu
fyrir hann, en sest sjálfur á gólf-
ið. Hánn er hár maður og mjó-
vaxinn, í útliti likist hann mein-
lætamanni og andlitsfall hans
er göfugmannlegt og gáfulegt.
öllum, sem við liann tala ber
saman um að maður verði fyrir
annarlegum áhrifum af honum.
Ensku skilur hann ekki, en talar
móðurmál sitt eingöngu. I þorp-
inu sem hann á lieima hefir hann
komið af stað svo miklum um-
hótum, að hagur almennings er
hvergi talinn betri í landinu en
þar.
Þessi einkennilegi maður boð-
ar fólkinu kristna trú og leggur
sjerstaka áherslu á kraft bænar-
innar. Hann leggur mikla á-
lierslu á hreinskilni og vinnu-
semi. Stjórnmál lætur liann al-
veg afskiftalaus og vill engin ver-
aldleg völd hafa. Byltingastarf-
semi vill hann ekki vera kend-
ur við, en telur liið eina hlutverk
sitt það, að biðja Guð um að
hjálpa þjóðinni úr hörmungum
hennar.
í Mount Vernon er ketlingur, sem
sýndur hefir verið látlaust í þrjá
mánuði við mikla aðsókn, er liann
njerkilegur fyrir það, að hann geng-
ur á afturfótunum jafnfimlega og
aðrir kettir ganga á fjórum. En á-
stæðan til þess, að hann gengur á
afturfótunum er sú, að hann fæddist
framfótalaus. Móðir hans var líka
vansköpuð: hún hafði sex klær á
hverjum fæti.
----x-----
Julius Gömbös, hermálaráðherra
Ungverja hefir nýlega borið fram
eftirtektarvert lagafrumvarp. Vill
hann löghelga á ný ýmsar gamlar
venjur, sem sjálfsagðar þóttu fyrr-
um. Hann vill t. d. leyfa að refsa
hermönnum með þvi að hýða þá.
Ennfremur vill hann láta það vera
skyldu herforingja, að þeir skori þá
menn á hólm, sem sýna þeim óvirð-
ingu.
----x-----
í París hefir maður, sem fyrir
nokkrum árum misti báðar hend-
urnar við slys, fengið leyfi til að
stýra hifreið. Fjekk hann gerfihend-
ur og hefir náð svo ótrúlega mikilli
leikni í að nola þær, að hann eigi
aðeins getur stýrt bifreið sinni á
fjölförnustu götum borgarinnar, eins
og hver annar, heldur líka gert við
hilanir á vjelinni, skift um dekk og
því um líkt.
Stærsta Ameríkufar Norðmanna,
Stavangerfjord hefir nú farið 100
ferðir milli Osló og New York. í þess-
um ferðum liefir skipið notað elds-
neyti fyrir 18,6 miljón krónur, mat-
væli fyrir 10,9 miljónir og greitt í
kaup 8,7 miljónir, en fyrir viðhald
og umbætur 7,1 miljón og í vátrygg-
ingu, endurbætur, fyrning 3,8 milj.
------------------x-----
Nýlega var verið að grafa fyrir
húsi rjett hjá Nyköbing á Sjálandi.
Fanst þá gamalt ker og í því um
200 peningar. Stjórn forngripasafns-
ins var gert aðvart og var nú farið
að leita frekar. Hafa nú fundist uin
3000 peningar, flestir frá þrettándu
öld, þar á meðál enskur gullpeningur
frá tíð Hinriks þriðja. Er talið víst,
að peningarnir hafi verið faldir
þarna af ótta við sjóræningja.
—-—-x----
Eldspítnakongurinn Ivar Kreuger
er kominn að fimtugu, en hefir alla
tið verið ógiftur. Nú segir sagan, að
hann ætli að fara að staðfesta ráð
sitt og giftast greifaekkjunni Inge-
borg Waclitmeister frá Helsingborg.
Hún er ung kaupmannsdóttir en gift-
ist greifanum Erik Wachtmeister rit-
höfundi, sem dó eftir stutt hjóna-
band. Engin veit live eldspítnakong-
urinn á mikið til, en eignarskatt
geldur hann af 350 miljón krónum.
Og svo mikið lánstraust hefir hann,
að liann liefir getað lánað öðrum 800
miljón krónur á síðustu árum. Hann á
hallir í Berlín, París, London og
New York og þegar hann dvelur á
gistihúsum nægir honmn aldrei
minna en átta herbergja íbúð.
----x----
Nýlega var ung stúlka, sem
heitir miss Hail látin laus úr
Hollowayfangelsinu i London. Hún
hafði setið þar þrjá mánuði fyrir
ýmsa búðaþjófnaði; einkum hafði
hún stolið skartgripum og verið mjög
bíræfin. Árið 1923 var hún kjörin
fegurðardrotning Englands og þyrpt-
ust þá karlmennirnir að henni til að
biðja hennar. En hún vildi engan og
er ógift, svo að enn er tækifæri til
að ná i hana.
-—-—x----
Ameríkumenn eru að gera sjer alls-
herjar þjóðarminnismerki úr liush-
moretindinum i Black Hills. Á tind-
inn eru liöggnar risavaxnar myndir
af forsetunum Lincoln, Washington,
Jeffersson og Roosevelt og auk þeirra
á að höggva í klettinn sögu Banda-
rikjanna í 500 orðum, sem Coolidge
fyrv. forseti liefir skrifað. Stafírni.r
verða svo stórir að þeir eiga að sjást
í margra kílómetra fjarlægð.
----x----
Ameríkumaður nokkur bauð nýlega
nokkrum enskum vinum sinum til
veislu í London. En sjálfur var hann
staddur í New York. Þegar veislan
stóð sem hæst hringdi Ameríkumað-
urinn upp veislustaðinn og hjelt ræðu
fyrir gestum sínum. Heyrðist livert
orð í hátalaranum. En símtalið kost-
aði 1800 krónur.
----x----
Auglýsingaaðferðirnar eru marg-
ar, en spáný tegund auglýsinga kom
nýlega fram í einu Lundúnablaðinu.
Uiídir hjúskaparauglýsingum stóð
þetta: Ungur iniljónamæringur, fríð-
ur sýnum og hugulsamur óskast eft-
ir að kynnast stúlku, er í sem flestu
líkist hetjunni í hinni nýju skáld-
sögu „Ást hans sigraði“ eftir Petei'
Axworthy. — Fjöldi meyja gaf sig
fram, en engin fjekk svar. Ilinsvegar
seldust kynstrin öll af nýju sögunni
hans Axworthy, því allir vildu vita
hvernig söguhetjan væri. Vitanlega
var það liöfundurinn sem hafði aug-
lýst.
----x----
Hraðsyndasti fiskur í heimi, er urr-
iðategund ein. Getur fiskur þessi synt
35 kílómetra á klukkustund eða álíka
hart og góður hjólreiðamaður fer á
sæmilegum vegi.
----x----
Átján ára gömul stúlka í Regens-
burg, sem á vanda til að ganga 1
svefni komst eina nótt fyrir skömniU
út á götu og alla leið niður að Dóná.
Gekk hún beint i ána, en vaknaði við
vondan draum er hún kom í vatnið.
Henni var bjargað.