Fálkinn - 02.08.1930, Blaðsíða 9
F A L K I N N
9
Við sundmói eitt í Californíu tóku menn það bragð, til þess að
láta talca eftir sjer, að fijlla sundlaugina af appelsínum, sem
flutu á vatninu og gerðu sundið erfiðara. Ekki er öll vitleys-
an eins.
Skógarbrunar og olíulindabrunar, segja menn að sjeu stórfeng-
legusbu sýnir, sem hægt sje að fá í heiminum. Þó er líklegt að
svo sje ekki. Hversumiklir sem þessir brunar eru, geta þeir
þó varla verið nema smáræði hjá eldgosi, þar sem grjótið sjálft,
sem ekki er talið sjerlega eldfimt, logar og rennur fram fljót-
andi. Eigi að síður er ekki efast um að olíulindabrunar sjeu
stórfenglegir. Myndin hjer að ofan sýnir olíubruna í Campini
í Rúmeníu, en þar eru stórar olíulindir. Alt er gert sem í mann-
legu valdi stendur til þess að hindra þessa bruna, en jörðin er
gagnvætt af olíu langar leiðir frá brununum og ef neisti fell-
ur til jarðar breiðist eldurinn óðfluga um olíusvæðið, kemst
að næsta brunni og logarnir rísa til himins en reykjarsvælan
ætlar alt að kæfa, sem nærri kemur. Brunar þessir standa oft
lengi án þess að hægt sje að stöðva þá, t .d. hefir bruninn í
Campini staðið í meir en il mán., og eyðilagt fyrir milj. króna.
Hinn 15. júní komu bolsjevikar saman á ársþing sitt. Var við
bví búist að þar mundi gerast margt sögulegt, því margt hef-
lr verið sagt misjafnt um stefnu Sialins, einkum í búnaðarmál-
vnum. Þó hefir ekkert lieyrst sögulegt af þessu þingi, þegar
Þetta er ritað og eru horfur á, að enginn geti reist rönd við
Stalin, sem tvímælalaust er voldugasti maðurinn l Rússlandi,
Slðan hann bældi niður mótþróa Trotsky. Hjer á myndinni
sJest t. v. Rykoff, sem Stalin hefir nú yfirbugað, í miðju sjest
Stalin sjálfur og t. h. Vorochiloff í einkennisbúningi.
Hindúar hafa sjerstaka aðferð til líkamsnudds, eins og sjá má
á myndinni hjer að ofan. Hún hefir stórum minni áreynslu í
för með sjer fyrir nuddarann, en aðferðir Vesturlandabúa.
1 maí síðastliðinum voru liðin 109 ár síðan Napoleon dó á
St. Helene. Hjer sjest gröf hans í lnvalidekirkjunni og enn er
verið að krefjast þess, að kistan sje opnuð í vísinda þarfir, eða
rjettara sagt kisturnar, þvi að þær eru ekki færri en fimm.