Fálkinn


Fálkinn - 20.09.1930, Qupperneq 4

Fálkinn - 20.09.1930, Qupperneq 4
4 F A L K I N N Kappróðrarmótið. llinn 7. þ. m. var kappróður haldinn við Effersey um hið vandaða kappróðrarhorn sem Oliuverslun íslands gaf til verðlauna í fyrra. Keptu þrir flokkar, tveir frá „Ármanri' og einn frá „K. R.“ á hin- um tveimur nýju bátum „Ármanns“, er heita Grettir og Ármann og eru hinir fullkomnustu. Leikar fóru svo að fyrri Ármannsflokk- urinn rjeri skeiðið, 2000 metra, á 10 min 38,2 sek„ annar Ármannsflokkurinn á 10 min. 49,0 sek. og K. R.-flokkur- inn á 10 mín. 59,4 sek. Var róið vestan að í mark fram undan sundskálanum. Róðrarmenn ( flokknum sem sigr- aði voru þessir: Sigurgeir Albertsson (forræðari), Þor- kell Sigurðsson, Þorsteinn Einarsson og Jóhann Þor- láksson, en stýrimaður var Sigge Jónsson íshússtjóri, sem er leiðbeinandi „Ármanns" i róðri. Stýrimaður K. R.-flokksins var Theodor Siemsen kaupmaður. Forseti t. S. í. afhenti að róðrinum loknum Sigurvegurunum róðrarhornið og flutti rœðu. Hjer á myndinni sjest, að ofan flokkurinn sem sigraði og að neðan kappróðrarbáturinn með sigurvegurunum. Iljer birtisl mynd af hjón- unum Rann- veigu Ágústu Oddsdóttur og Rósmundi Jónssyni i Stakkanesi við ísafjörð. Hafa þau eignast 20 börn, og er það tíðinda- vert á barna- fœkkunaröld- inni. Lifa 11 barna þeirra. Hjónin eru bæði við bestu heilsu og eiga bæði afmælisdag i þessum mánuði. S&o 5Íí(í„Scí s íuocnar&|cöí bringer ^i/cu norsfe ^BofljanDlcrJörctiinj} _ i orrftoíújljí! öoelanís cjomlc tiílcraíur q. sin Ijplöcol •cit tamc liílcrafur cr ofapí av \virf Jrenc'c|oíf , cr var olollljcl öcnne liKcralur cr íjver iolcnoingo ctc cr ívislanðo crrc Myndirnar hjer aö ofan eru af ávarpi því, sem bóksalafjelagið norska færði Islendingum á Al- þingishátíðinni. Er það einkar vandað. Má lesa texta þess á myndinni en undir það hefir skrifað stjórn bóksalaf jelagsins. Kjöri hún Nygaard bólcaútgef- anda, eiganda Aschehougsbóka- verslunarinnar í Oslo til þess að fara á Alþingishátíðina og af- henda ávarpið. SPÁKONAN OG MILJÓNIRNAR Lögreglan í Nizza er um þessar mundir að grafast fyrir einkennilegt fjársvikamál. Hefir forrík kerling, sem þar býr tilkynt, að hún hafi verið prettuð um tvær miljónir franka í sömu vikunni. Og aðferðin er einkennileg. Fyrir skömmu kom spákerling ein í borgina. Nefndist hún madame Mary. Hún spáði fyrir útlendum hefðarfrúm og tók 500 franka fyrir spána. Og vitanlega spáði hún að- eins góðu. Ríka kerlingin, Anna Si- monnot átti ekki sjö dagana sæla. Hún var ekkja óg þjáðist mjög af imyndunarveiki. Sneri hún sjer nú til spákerlingarinnar til þess að fá af henni ráð. Spákerlingin kvað þrjár spár mundu nægja til þess að komast fyrir af hverju krankleikur frúarinnar stafaði og varð það úr, að hún skyldi ráða þessa gátu. Fyrsta spáin leiddi í ljós, að hinn látni maður frúarinnar fann ekki frið i gröf sinni. önnur spáin hvers- vegna, og þriðja spáin sýndi hvern- ig farið skyldi að því að bæta úr þessu. Sál Simonnots heitins krafð- ist þess, að hin eftirlifandi ekkja Friðfinnur Guðjónsson leikari verður sextugur á morgun. hans skyldi brenna álitlega upphæð af eigum sinum til þess að kaupa honum frið. Sagði spákonan að tvær miljónir franka mundu nægja. Frú Simonnot gekk að þessu, og fór nú bálför fyrri miljónarinnar fram með mikilli viðhöfn. Spákerling ljet reisa altari mikið i kjallaraholu í húsi sinu; var niðamyrkur þar niðri og tók spákerlingin við miljóninni fyrri og viðhafði ýmsar særingar, því að hún sagði, að verið gæti að frúin gæti sloppið með eina miljón, ef henni væri fórnað á rjettan hátt. Siðan kveikti hún bál á altarinu og brendi umslagið — ekki það sem peningarnir voru i, heldur annað, sem hún hafði haft með sjer sjálf. — Tveimur dögum siðar kom frúin með siðari miljónina. Hún fann stóran mun á sjer eflir þessa tvo daga, fyrri miljónin hafði áreiðan- lega gert mikið gagn. Og nú færði spákonan henni þau gleðitíðindi, að liklega gæti hún komist hjá að brenna þeirri seinni. Las hún nú um stund særingar yfir umslaginu, sem síðari upphæðin var í, náttúr- lega í myrkri, og þegar því var lok- ið tók hún fram umslagið dg voru þar þá eintómir hvítir pappírsmið- ar. Spákonan sagði nú frúnni, að eft- ir átta daga myndu hvítu miðarnir breytast i seðla, ef frúin væri með rjettu hugarfari, en annars ekki. Liðu svo átta dagar. Frúin þóttist igjaq sutsgBisuin ppjqiuui gu ‘uin ssia breyst i peninga aftur og varð fyr- ir miklum vonbrigðum er hún opn- aði umslagið og sá að þar voru sömu pappírsmiðarnir og áður. — Fór hana þá að gruna margt um að- farir spákerlingarinnar og tjáði lög- reglunni hvað gerst hafði. En þá var spákonan öll á bak og burt. Kr. Bjarnarson læknir, sem ný- kominn er úr langri utanlands- vist og setstur að hjer í bænum. Hann tók læknapróf hjer við Háskólann sumarið 1925 með I. eink. eftir aðeins 4 ára nám og gegndi síðan hjeraðslæknisstörf- um í tæpt ár. Fór síðan utan og hefir síðan stundað framhalds- nám í París, aðallega í skurð- lækningum hjá ágætum sjer- fræðingum og tók próf við læknaskólann þar. Hann mun vera fyrsti íslenski lœknirinn sem verulega hefir sótt læknis- ment sína til Fralcklands, en eins og kunugt er hafa Frakkar átt marga brautryðjendur á sviði læknisfræðinnar. Stefán Gunnarsson skókaup- maður verður fimtugur 26. þ. m. Jóhannes Stefánsson verslunar- stjóri á fsafirði verður sjötugur 23. þ. m.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.