Fálkinn - 18.04.1931, Qupperneq 11
F A L K I N N
11
tu lesendurnir.
Flóaleikhús.
ÞiS skulið ekki skilja fyrirsögnina
þannig, að það eigi að fara að koma
upp þjóðleikliúsi i Flóanum, heldur
heitir viss tegund leikhúsa þessu
nafni af því að leikendurnir eru flær.
Líklega hafið þið aldrei sjeð þess-
konar leikhús, því að þau munu al-
drei hafa verið til hjer á landi. Og
bætur sje skaðinn, þvi að þið skul-
uð ekki lialda, að lijer sje um hærri
leiklist að ræða, eða nokkra leiklist
yfirleitt.
Þið vitið, að það er hægt að venja
ýms dýr á að sýna ýmiskonar listir,
ekki sist hunda eða liesta. En þið
munuð reka upp stór augu þegar þið
heyrið, að það sje hægt að venja
flær á sitt af hverju, þvi að liklega
hafið þið altaf haldið, að flærnar
væru „ótemjur" alla sína lifstið. En
mergurinn málsins er sá, að sumir
gera sjer að atvinnu að temja flær
og sýna þær fyrir nokkra aura, bæði
á markaðsstöðum og annarsstaðar. En
sem betur fer hafa íslendingar þótst
upp úr slíku vaxnir til þessa.
Hugsum okkur nú að við værum að
koma inn í markaðstjald, þar sem
flær væru sýndar inni. Ætli okkur
nnmdi ekki fara áð klæja, hara af til-
hugsuninni um, að við værum komn-
ir svo nærri þessum kvikindum. Það
er þó engin liætta á, að flærnar leiti
á okkur, því að „leikhússtjórinn"
gætir vel að þvi, að missa ekki neinn
„leikandann“.
Áður en farið er að sýna dýrin
verður að æfa þau vel og lengi og
kenna þeim listirnar, hæði með góðu
og illu. Flær, sem eru orðnar full-
æfðar eru eigandanum mikils virði,
því að þess betur sem þær leika, þvi
meiri verður áðsóknin að leiklnisinu
hans. Flóanytina og ungviðið geymir
hann í stóri flösku með dusti i, en
smám sanian tekur hann efnilegustu
unglingana frá og lætur þá í glerpípu,
sem lokaðar eru í báða enda. Og
kensluaðferðin byggist á máltækinu:
„Brent barn forðast eldinn“.
Flærnar eru kunastar fyrir það hve
hátt þær geta hoppað, og nú er farið
að æfa þær í þessari íþrótt undir eins
og lappirnar á þeim eru orðnar nógu
sterkar lil þess, og það verða þær
fljótt. Vitanlega hoppa þær í glerpíp-
unni, en reka sig þá uppundir og
meiða sig, svo að þær hætta hrátt
þeirri íþrótt á þeim stáð. Þeim lærist
að hætta að hoppa, enda er það alls
ekki þessi iþrótt, sem eigendur þeirra
vilja láta þær iðka.
Þegar þessu er lokið er látið háls-
band á flærnar og þær bundnar við
Göfug hjún.
áhaldið, sem þeim er ætlað að leika
listir sínar á. Og hálsbandið er svo
sterkt, að það er engin hætta á, að
þær losni og flýji.
Þegar maður kemur í flóaleikhús
verður maður að liafa stækkunargler.
Og nú ætla jeg að sýna ykkur nokkr-
ar myndir úr flóaleikhúsinu, eins og
jeg sá þær í gegnum glerið.
Sýningin hófst með því, að skraut-
klædd og fín hjón komu labbandi inn,
eins og þau væru áð ganga fram fyrir
prestinn til að láta gifta sig. Gengu
þau að borði á miðju leiksviðinu og
hneigðu sig fyrir áliorfendunum. Þið
sjáið þau hjerna á myndinni. Jeg var
alveg liissa á því, hve fallega þau
hjeldust i hendur, en eiginlega ætti
jeg að þegja yfir því, að þau voru
bundin sainan á höndunum með ör-
mjóum þræði, svo að þau gátu ekki
skilið, þó að þau fengin vildu.
II júlreið'ar.
Næsl kom hjólreiðagarpur einn
hjólandi inn á leiksviðið. Honum gekk
ekki rjett vel að stýra, en leikhús-
stjórinn hjálpaði honum við og við,
svo að hann gal ekið marga hringi
umhverfis leiksviðið og fjekk ákaft
lófaklapp að launum. En önnur verð-
laun fjekk hann ekki.
F i mll e i k asijning.
Við þriðja atriðið fanst mjer að
jeg væri kominn á stærðar fjölleika-
hús. Ein flóin, sem tók þátt í þessari
sýningu hjelt hring á lofti en önnur
stökk hvað eftir annað gegnum hring-
inn og skeikaði aldrei. Og meðan
þessu fór fram lá sú þriðja á bakinu
og ljet knött hringsnúast á löppun-
um á sjer. Þetta var svo vel leikið,
að alt ætlaði vitlaust að verða og leik-
hússtjórin hrosti út undir eyru af
ánægju.
„Jeg er komin af aesku
Rinso
HREINSAR
virkilega
þvottana,
>g heitir pví
3INSO
VER BROTHIRt LIMITBD
ORT BUNUQHT. ENOLAND.
árunum,u segir húsmóðirin.
„Og þess vegna er jeg svo þakklát Rinso
fyrir hjálp við þvottana. Það sparar mjer
margra tíma vinnu! Jeg þarf ekki lengur
að standa núandi og nuddandi yfir guf-
unni í þvottabalanum! Rinso gerir ljóm-
andi sápusudd, sem nær úr óhreinindum
fyrir mig og gerir lökin og dúkana snjó-
hvíta án sterkra bleikjuefna. Rinso fer vel
með þvottana, þó það vinni þetta verk.“
Er aðeins selt i pökkum
— aldrei umbúðalaust
Lítill pakki—30 aura
Stór pakki —55 aura
W-R 20-047«
Bum -r- bum buml
E11 þegar fjórða atriðið kom
gleymdu menn þó fljótl fyrri sýning-
unni. Fló ein kom iiin, gekk að fall-
byssu, sem stóð á leiksviðinu og fór
að skjóta, svo að ekki var öðru lík-
arar, en að stríð væri skollið á. En
sem betur fór særðisl enginn, en ein
flóin fjekk slæma hellu fyrir eyrun.
Boltaleikur.
Síðasta sýningin var knattspýrna.
Því miður voru þátttakendurnir
ekki nema þrír, það gekk nefnilega
inflúensa á Flóastöðum og flestir
voru veikir á heimilinu og læknir-
inn hafði bannað þeim að ofreyna
sig. En dómarinn •—; það var leik-
hússtjórinn sjálfur lofaði því, að
á næstu knattspyrnu skyldu allir —
22 leikendurnir fá að spreyta sig.
Þegar sýningunni var lokið var á-
horfendunum boðið að horfa á,
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■
■
■
■
s *
■
i M á I n i n g a -
i
vorur
Veggfóður j
■ ■
■
■
: Landsins stærsta úrval. :
j »MÁLARINN~ j
Reykjavík.
■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
þegar flónum væri gefið að jeta.
Leikhússtjórinn ljet þær allar á
vinstri handlegginn á sjer og þar
fengu þær að drekka blóð úr hon-
um eins og þær vildu. Því að flón-
um þykir ekkert eins gotf og hress-
andi eins og volgt mannablóð. E11
meðan á þessu stóð fór mig að klæja,
svo að jeg fór út.
Flærnar hafa enga vængi til að
fijúga á, og þessvegna hafa þær
lamið sjer að hoppa eins vel og raun
ber vitni. Eru afturlappirnar á þeim
afar sterkar og með þeim spyrna
þær í, þegar þær vilja lyfta sjer.
Þær verpa eggjum sinum í skit og
ryk og þar ungast þau út. Best þekkj-
um við flóna, sem ásækir manninn,
en á hundum lifir sérstök flóarteg-
und, sem líka getur orðið elsk að
manninum, þegar svo ber undir.
Tóta frænka.