Fálkinn


Fálkinn - 08.08.1931, Blaðsíða 15

Fálkinn - 08.08.1931, Blaðsíða 15
F Á L K I N N 15 Hjólhestalugtir. Höfum nú fengið allar tegundir af hjóihestalugtum. Verð: 3,00, 4,50, 7,00, 11,00 10,00, 20,00 22,50 Reiðhjólaverksmiðjan ÖRNINN, Laugaveg 20. Sími 1161. ZEPPELIN TIL Það er nú af- NOItÐURPÓLSINS. ráðið, að „Graf ----------------- Zeppelin" fljúgi lil norðurpólsins í lok þessa inánað- ar, hvað sem „Nautilus“ liður. Stjórn- ar dr. Eckener sjálfur loftskipinu í liessari merkilegu för. En i stað Frið- þjófs Nansen, sem átti einna fyrstur hugmyndina að þessu flugi, fyrir tveiinur árum, en nú er dáinn, verð- ur rússneski prófessorinn Samoilo- vitsj hinn vísindalegi leiðtogi farar- innar. Er hann kunnur af liinni á- gætu forustu sinni í leiðangri þeim, er Rússar gerðu út forðum til þess að leita að Nobile. Jafnframt því að „Graf Zepp“ flýgur norður, fer rúss- neski ísbrjóturinn „Malyguin“ norður i höf til þess að leifa leifa þess hluta Nobileleiðangursins, Sem aldrei spurðist af, nfl. Alessandriflokksins. -----------------x---- SJÚKRAHÚS — í París er það OKURSTOFNANIR altítt, að lög- ■---------------- reglan tekur fasta lækna, sem reka lítil sjúkrahús fyrir eigin reikning og nota sjer fá- fræði fólks til þess að hafa af því fje. En að þvi er virðist er ástandið lítið betra í London hvað þetta snertir, því að ýmsir frægustu lækn- ar borgarinnar hafa byrjar herferð gegn „privat-klinikunum“ alment og hera á þær ófagrar sakir. Læknar hika ekki við að segja, að ýmsar af þessum stofnunum sjeu hreinar og beinar fjeflettingarstofn- anir. Læknar, sem ekki eru við þessi sjúkrahús riðin, fá Stórfje til þess að vísa sjúklinguin þangað. Stund- um hafa þessir sjúklingar alls ekki þörf fyrir sjúkrahúsvist. Stundum sjá læknarnir um að batanum miði margfalt hægara áfram en þörf ger- ist, til þess að geta haldið sjúkling- unuin sem lengst. Því er bætt við, að öll lijúkrun í þessum stofnunum sje mjög ófullkomin og að hjúkrun- arkonurnar hafa flestar ekkerl lært til verka sinna. Yerðlag er alt afar hátt, ekki sist á meðulum og sára- umbúðum. Þannig verður maður, sem litilfjörlegur skurður er gerður á, að borga heilt sterlingspund fyrir sjúkravatt. Sjúkrahúsmál Breta eru með mjög fornu sniði, sjúkrahúsin ekki rekin fyrir fje hins opinbera heldur styrkt með gjöfum. Hefir þetta gert mönn- um ljettara um, að gera sjer fje úr sjúkdómum annara. ---x---- HVÍTT Hvíta mansalið er einn MANSAL. af smánarblettum nútíma --------- siðmenningarinnar. Ung- ar stúlkur eru tældar til annara heimsálfa, gefin von um góðar stöð- ur og þessháttar, en þegar á áfanga staðinn er komið opinberast þeim sá hræðilegi sannleikur, að „fyrir- heitni staðurinn“ er pútnahús. Bæði alþjóðasambandið og heimsfjelagið gegn hvítu mansali hafa reynt að sporna við þessuin ósóma, en orðið lítið ágnegt, því að aldrei hefir kveðið meira að þessu en á siðustu kreppuárum í Evrópu. Hvergi er markaðurinn eins mik- ill fyrir hvítu þrælana eins og í stórborgum Suður-Aineríku, Buenos Ayres og Rio de Janeiro. Þar eru til fjelög með margra miljón króna Fyrirliggjandi: Miðstöðvartæki, Katlar, Miðstöðv- arofnar. Miðstöðvarelda- vjelar, alt til uppsetningar. Eldavélar, email. & svartar, Gas- eldavjelar. Dælur. Vatnshrút- ar, Galv. Vatnspipur, alt til vatns- lagna, Baðker, Vaskar, W. C., alt til skolplagna. Spyrjist fyrir um verð. Gef tilboð um efni til miðstöðv- arlagna, með eða án vinnu. ISLEIFBR JtNSSON, Aðalstræti 9, Reykjavík. Simar 1280 & 33. Símn.: isleifur. eignum, sem hafa atvinnu af jiræla- sölunni og græða stórfje á. Suin þessara fjelaga starfa á yfirborðinu sem góðgerðarfjelög, t. d. fjelagið „Zwi Migdal“ í Buenos Ayres. Fje- lag þetta á höll í borginni á einum besta staðnum. Lögreglan reyndi að ganga á milli bols og höfuðs á þessu fjelagi og handtók 104 manns, sem við það voru riðnir og voru flestir þeirra miljónamæringar. Kona ein í þessum friða hóp, átti t. d. lóðir og jarðeignir, sem nema 115 miljón- um króna — og alt þetta fje hafði hún grætt á þrælasölunni. Sumt fólkið í hópnum sat í fangelsi nokkra mánuði og slapp síðan, þrátt fyrir bestu viðleitni dómarans til þess, að veita þvi húsaskjól æfilangt. Það var sýknað, vegna vantandi sannana sem kallað var. Það kvað vera erf- ilt að ná dómi yfir ríku fólki i Suð- ur-Ameríku. Og það sem gerir enn erfiðara fyrir um rekstur þessara mála er það, að flestar hinna ógæfu- sömu stúlkna vilja alls ekki liverfa burt aftur úr spillingunni, eftir að þær eru orðnar samdauna henni. Þær venjast allskonar óhófi, búa í dýrindis salakynnum og hafa tals- vert frjálsræði, en hafa flestar lifað við þröngan kost áður en agentar mansalsins klófestu þær. Þýskur kvikmyndastjóri sem heit- ir Manfred Noa hefir gert mynd um hvítu þrælasöluna og lýsir lienni á- takanlega. Ileitir myndin „Leiðin til Buenoes Ayres“ og kvað vera grípandi lýsing á kjörum hvítu stúlknanna og lýsa einkar vel fólki þvi, sem gerir sjer mansalið að at- vinnu. ----x---- Góð húsgögn auka heimilisánægjuna. Húsgagnaverslun Erlings Jónssonar, Hverfisg. 4 og Baldursg. 30. Reynslan er þegar búin að sýna, að það er ekki hægt að framleiða betri Málningu og Lökk en LEWIS BERGER'S & SONS, sem er stærsta og besta málningar- efnaverksmiðja Stóra-Bretlands. Heild- og smásölubirgðir hefur Verslunin ,,BRYNJA“ Laugaveg 29.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.