Fálkinn


Fálkinn - 10.10.1931, Blaðsíða 9

Fálkinn - 10.10.1931, Blaðsíða 9
F Á L K I N N 9 Lóðirnar, sem gamla aðaljárnbraut- arstöðin í Khöfn stóð á forðum, hafa verið mikið til óbxjgðar síðan braul- arstöð þessi var lögð niður fyrir 20 árum. En í fyrra var byrjað þar á einu mesta stórhýsi, sem til er í borg inni og er nú nálega fullgert. Heitir það „Vesterport“ og er tvöfalt stærra en „Axetborg“, sem bygð var þarna nálægt fyrir nokkrum árum og ýms- ir Hafnarfarar kannast við. Það er hlutafjelag, sem á bygginguna að nafninu til, cn enska vátryggingar- fjelagið „Prudential“ hefir lagt til peningana. Byggingarlagið á þessu húsi er hið sama og á skýjakljúfun- um í Ameríku: stálgrind, scm múr- að er innan i, og er talið sterkara en nokkuð annað byggingarefni. Um tveir þriðjuhlutar hússins voru til- búnir til innflutnings 1. október og voru þeir leigðir fyrir skrifstofur. Húsið kostar um 12 miljón krónur og er dýrasta og stærsta einkabygg- ingin í Danmörku. 1 þýskalandi hefir nýlega verið stofnað miljónafjelag og eru raf- magnsf jelögin A.E.G. og Siemens & Iíalske meðal þátttakenda. Tilgang- ur fjelags þessa er að rannsalca skil- yrði fyrir því, að leiða rafmagn frd norskum fossum til Þýskalands. Telst svo til, að Noregur hafi nægi- legt fossafl til að fullnægja raf- magnsþörf þýskalands. Álit sjer- fræðinga á málinu er mjög ósam- hljóða og halda margir því fram, að leiðslukostnaðurinn verði of mik- ill og orkutapið við flutninginn of mikið. Danir fylgja málinu með á- )xuga, því að ef framkvæmd verður á því liggja leiðslurnar um Dan- mörlcu og njóta þá Danir góðs af. Þeir hafa í mörg ár keypl raforku frá Svíþjóð. 1 útjaðri Kaupmanna- hafnar gefur að líta spennubreyti- stöðina, sem myndin hjer til hægri er af; er straumspeiuian á sænska rafmagninu lækkuð úr háspennu og raforkunetið kvíslast þaðan um Kaupmannahöfn og víðar. / Sýrlandi hefir fyrir skömmu verið tekin til notkunar ný brú yfir fljótið Efrat, 330 km. fyrir austan Aleppo. Er þetta stærsta brúin í Veslur-Asíu og er höO metrar eða nærri því hálfur kilómeter á lengd• Tyrkir byrj- uðu á brúarsmíðinni á stríðsár- unum, en vitanlega hættu þeir i’ftir að landið, sem njóia álti brúarinnar Iwarf úr höndum þeirra, við friðarsamninga'na. Þá stofnuðu Sýrlendingar og Frakkar hlutafjelag til þess að Ijúka brúarsmíðinni. Þar sem brúin er, var áður bátabrú mjög ófullkomin, en hún ónýttist fyr- ir tíu árum, svo að síðan hafa ferðamenn orðið að nota mjög ófullkomna ferju á ánni, og gat hún með naumindum flutl eina bifreið í ferðinni. Var þetta fyr- irkomulag mjög á eftir tíman- um, því að samgöngur eru þarna miklar. Enda var gleðin mikil yfir hinni nýju brú cr hún var vígð. Er búist við að sam- göngur aukist til mikilla muna milli Tyrklands, Irak og Persíu við það að brúin er komin á fljótið. Hjer á myndunum sjást annarsvegar nýja brúin og hins- vegar gamla ferjan.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.