Fálkinn - 07.11.1931, Síða 8
8
F Á L K I N N
Kína, mesta hrísgrjónarækhinarland
heimsins hefir orðið að flýja á náðir
fíandaríkjanna til þess að biðja nm
kornmat til láns, en fenc/ið daufá á-
heyrn, þó aö Bandaríkin hafi svo mik-
ið hveiti aflögum, að bændur verða að
brenna því, vegna þess að það svarar
ekki kostnaði að koma því á markað-
inn. Þetta skeður á þeim tímu sem
samgöngnr eru fullkomnari í lieimin-
um en nokkru sinni fyr, og á þeim
tima, sem meira er talað um mannúð
en nokkurntíma fyr. í Kína hefir Iwer
plágan rekið aðra hin síðari áir, sífeld
borgarastyrjöld í landinu og svo í sum-
ar hinir geigvænlegu vextir í Jangtsek-
iang, sem eyðilagt hafa uppskeruna
fyrir tugum miljóna. Og hjer við bæt-
isl svo yfirvofandi ófriður við Japana,
sem virðast ætla að nota sjer eymd
Kínverja lil þess að taka af þeim Mand
sjúríu. Hjer á myndinni til hægri, sem
er úr Talishafylki sjest hungrað fólk,
sem er að tína ber, sjer til matar í
hungursneyðinni.
Á Cúba hefir verið mjog mikil ókyrð i sumar, sífeldar óeirðir
og uþpreisnartilraiinir. Stýrði þessu í fyrslu Menocal fyrv. for-
seti en svo var hann tekinn fastur og hefir þó ekki lint látum
síðan. A myndinni hjer að ofan sjest flokkur uppreisnar-
manna. Þeir hafa talsverðan her og nóg af vopnum og hafa
þessvegna reynst stjórninni þungir í skauti. Banduríkjamenn
hafa senl stjórninni liðsauka, en þó hefir henni ekki tekist
að bæla niður uppreisnina.
Það er einkennilegt skipsþilfar, sem sjest hjer á myndinni.
Hún er tekin um borð á Saratoga, hinu nýja flugvjelaskipi
Bandaríkjahersins, þegar það var stall í Panamaskurðinum
nýlega. Rúmar skipið á þilfari 80 stórar flugvjelar og áhöfn
skipsins er 1500 manns. Getur það siglt 20 kvartmílur á klukku-
stund og á að vera einskonar móðurskip fyrir flugvjelar á
stríðstímum.
Við kosningarnar í fíerlin, 9. ágúsl
í sumur óðu kommúnistar og naz-
istar uppi, og gengu vopnaðir um
göturnar og efndu til óspekta en
rjeðust á lögregluna þar sem hún
vildi veita viðnám og drápu tvo lög-
regluþjóna í þeim skærum. Höfðu
manndráp þessi verið [yrirfram á-
kveðin. Útför liinna myrtu fór fram
með mikilli viðhöfn og á myndinni
sjest ein lögreglusveit minnast hinna
föllnu að hermannasið. Þrátt fyrir
allan glundroðann í Þýskalandi verð
ur ekki annars vart en að lögreglu-
lið stórborganna sje trútl yfirvöld-
unum og liggi alls ekki á liði sínu
hvar sem á þarf að halda og það er
víða og oft á þessum upplausnar
tímum.