Fálkinn - 09.01.1932, Side 8
8
F Á L K I N N
Dönsk verksmiðja fjekk í fyrra
austan frá Síam pöntun á 7 stórum
járnbrautarhreyfivögnum, 6 með
1000 hestafla dieselvjel og einum
með 1500 hestaflavjel, samskonar,
og auk þess 6 farþegavögnum með
dieselvjel. Smíði þessara vagna var
þeim vandkvæðum bundin, að lofts-
lagið í Síam er miklu heitara en á
norðurlöndum og þurfti því að gera
sjerstakar ráðstafanir til þess, að
vagnarnir brygðust ekki þegar ætti
að fara að starfrækja þá. Vagnarti-
ir eru gerðir fyrir miklar vegalengd-
ir og eiga að geta ekið 2000 kíló-
metra án þess að þurfa að stað-
næmast til þess að taka vatn eða
eldsneyti. Hreyfivagnarnir etu Ht
metra langir og þyngdin er 86 smá-
lestir, en eiga að geta gengið með
60 kílómetra meðalhraða og dregið
vagna sem vega 450 smálestir eða
sem svarar 13 nýtisku farþegavögn-
um. Fyrsti vagninn er fullgerður og
hefir verið viðurkendur af umboðs-
manni Síamsstjórnar. Þar sem þess-
ir vagnar eiga að ganga er oft 40
stiga hiti á Celsius. Mundu norður-
ilfubúar illa þola slíkan hita. En
nú er eftir að vita hvort vagn-
arnir, sem smíðaðir eru hjá h.f.
Frichs í Árósum þola hann:
Fyrrum voru nautin mest notuðu
dráttardýrin í Evrópu, en nú er
þeim sífelt að fækka eins og hestun-
um og dráttarvjelar, bifreiðar og
aðrar aflvjelar hafa komið í staðinn.
Voru uxarnir einkum notaðir til að
draga jarðyrkjuvjelar, en nú eru
„Fordson“ og „International“ í meiri
hávegum hafðir. Þó sjest enn á
stöku stað, að uxar eru notaðir við
jarðrækt, eins og myndin t. v. ber
með sjer. Hún er frá Englandi.
Mharles Chtiptin getur ekki kvartað undan vinsældaískorti í
heimitttimp þyi að lildega hefir engin persóna í heimi orðið
frægari fyr^hjé^ííðár. Alstaðar, jafnvel suður í svertingjaríkj-
um- AfríkúKmá sjá bíóauglýsingar með myndum af honum.
Ilvað er hægt að gera við alla bílabarðana þegar þeir slitna,
springa og verða óhæfir á hjólin. Það er mikið af gúmmíi
eftir í þeim. Ameríkumenn senda slitnu bilabarðana sína til
Kínverja sem nota þá í skó og Evrópumanna sem bræða þá.