Fálkinn - 09.01.1932, Blaðsíða 9
F Á L K I N N
9
Þjóðverjinn Köhl, sem frægur er orðinn fyrir svifflug þgkist
hafa komist að raun um, hvernig flugvjel framtíðarinnar eigi
að vera gerð. Hún á sem sje að vera alveg stjellaus og skrúf-
an fyrir aftan sjálfan bolinn, en hann er alveg eins og vængur
í lögun. Hefir Köhl smíðað tveggja manna vjet, þó ekki alveg
eins og hjer er týst heldur er hún lík þrihyrningi. sjesl vjel
þessi hjer á myndinni á reynsluflugi yfir Tempelhoferfllig-
vellinum við Berlín. Þegar Köhl hefir efni á að smíða stærri
vjel, segist liann geta haft hana vængmyndaða og á þá bæði
vjel og stýrishús, svo og farþegarúmið að vera innan í vængn-
um. Ýmsir reyndir flugmenn hafa látið samþykki sitt í Ijós
með þessum tillögum Köhls, og af sviffluginu þykir hafa sann-
asl að þessi vængslögun sje sú besla. Vjelin hjer á myndinni
hefir aðeins 80 hestöfl, en þykir mjög stöðug á fluginu.
Japanar og Kínverjar eiga í sífeldum ófriði og er myndin frá
Mukden, en þar hófst ófriðurinn, og sýnir japanskan dáta halda
vörð um kínverska fanga. Alþjóðasambandið hefir reynt að
afstýra þessum ófriði, þvi að bæði ríkin eru í sambandinu, en
Japanar hafa skotið skolleyrum við orðsendingum þess.
Þessi tvö skip rákusl á í stórsjó og voru svo illa útleikin eftir,
aö draga varð þau í höfn. Þau voru með timburfarm, sem
fluttist svo til, að við lá að þeim hvolfdi.
Nú er verið að gera nýtt borgarskipulag i Róm, samkvæmt
fyrirlagi Mussolini.Við minnismerki Victors Emanuel hafa
gömul hús verið rif-in niður til þess að gera götuna breiðari.
Myndin sýnir japanska söngkonu, sem er systir keisarafrúar
innar og heitir Lady Ohtani, vera að syhgja t iitvdrþ.