Fálkinn - 09.01.1932, Side 15
F Á L K I N N
15
H.f. Eimskipafjelag íslands.
Aðalfundur.
Aðalfundur hlutafjelagsins Eimskipafjelag íslands
verður haldinn í Ivaupþingssalnum í húsi fjelagsins í
Reykjavik, laugardaginn 25. júní 1932 og hefst kl. 1
síðdegis.
DAGSSKRÁ:
1. Stjórn fjelagsins skýrir frá hag þess og framkvæmd-
um á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfir-
standandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur
fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga
til 31. desember 1931 og efnahagsreikning með at-
hugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar
og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skift-
ingu arðsins.
3. Kosning fjögra manna i stjórn fjelagsins, í stað
þeirra sem úr ganga samkvæmt fjelagslögunum.
I. Kosning eins endurskoðanda i stað þess er frá fer,
og eins varaendurskoanda.
5. ‘Tillögur til breytinga á lögum fjelagsins.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem
upp kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem liafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum
og umboðsmönnum hlutliafa á skrifstofu fjelagsins i
Revkjavík, dagana 23. og 24. júní næstkomandi. Menn
geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja
fundinn á aðalskrifstofu fjelagsins í Reykjavík.
Reykjavik, 21. desember 1931.
Stjórnin.
Um víða veröld.
---x-----
DULARFULLA HÚSIÐ MEÐ í Wel-
GULLKROSSMÖRKUNUM. lington-
---------------------— road í
Brighton er stórt og skrautlegt hús,
sem hinn þekti kaupsýslumaður
William Bennet átti, fyrir skömmu.
Hann dó ekki alls fyrir löngu og þá
erfðu dætur hans tvær, Florence og
Mimmie, húsið og öll auðæfi föður
síns. Þær voru nú 55 og 57 ára gaml-
ar. Nú bjuggu þær einar í húsinu.
Enginn heimsótti þær og þær lifðu
útilokaðar frá heiminum og voru
mjög guðhræddar. En einn dag fór
þjónustustúlkan i nágrannahúsinu
á lögreglustöðina og sagði, að eitt-
hvað hlyti að vera að hjá þessum
gömlu ungfrúm. Þær höfðu ekki sjest
úti í marga daga og þeim sem komu
með vörur og matvæli til þeirra, var
ekki veitt móttaka.
Lögreglan braust nú inn í þetta
dularfulla hús. — Hún sá skrautleg
og rikmannleg húsakynni með gull-
krossmörkum og róðukrossum frá
öllum ölduin, i tröppunum, á göngun-
uin, í stofunum. Fyrst leit út fyrir
að ekki væri nein lifandi manneskja
í húsinu. En þegar lögreglan kom
upp á loft og fór inn í svefn her-
bergið sá hún tvö rúm. í öðru þeirra
lá Florence Bennet, með pappírs-
ströngla með áletruðum ritningar-
greinum i hárinu. Hún var dáin. 1
hinu rúminu lá Mimmie systir henn-
ar nær dauða en lífi. Nálægt þeim
voru skálar með vatni og mat. En
þær höfðu ekki snert þær i marga
daga. Nú var strax sent eftir lækni.
llann fullyrti að Florence hefði ver-
ið dauð i þrjá daga, og Mimmie
væri að deyja af matarleysi.
Síðan var farið með Mimmie á
spitala. En hún ætlaði ekki að vilja
bragða vott nje þurt, en bað sí og
æ: „Látið mig deyja með systur
minni“.
Svefnherbergið, sem þær höfðu
legið í, var alt þakið ritningagreina-
spjöldum.sem þær höfðu hengt upp
sjer til huggunar og sálulijálpar. Og
þegar farið var að rannsaka húsið
betur, fundust i klæðaskápnum
þeirra kjólar, skreyttir böndurn, sem
á voru letraðar ritningagreinar. Þær
áttu sparisjóðsbækur, sem höfðu að
geyina fleiri þúsund pund, og verð-
mæti lágu alstaðar fyrir augum
manna. Lögreglan i Brighton hefir
síðan reynt að rannsaka hið fyrra lif
þessara öldruðu kvenna, ef það gæti
ef til vill upplýst málið.
Það hefir sýnt sig að gömlu syst-
urnar sáu varla sólina hvor fyrir
annari. Þær höfðu ekki skilið síðan
faðir þeirra dó, og höfðu farið á
degi hverjum út að gröf hans. Heima
neittu þær lítils, en notuðu tímann
til bæna. Næstum allaij daginn
krupu þær fyrir framan gullkross-
mörkin og báðust fyrir.
Ýmislegt bendir á það, að þær
hafi ekki fengið mat eða drykk, sið-
ustu 12 daga. Annars voru nægar
birgðir í matarkjallaranum, jafnvel
svo miklar að íbúar hússins hefðu
getað boðið byrgin erfiðustu kreppu
eða uinsátri. Ef að þjónustustúlkan
hefði ekki kallað á lögregluna, hefðu
systurnar báðar og hundar þeirra
tveir, sem sátu syrgjandi yfir hús-
bænduin sínum, dáið innan tveggja
daga. Systurnar áttu enga erfingja
og höfðu, eftir þvi sem sjeð verður,
á engan hátt ráðstafað eigum sin-
um.
MESTI FJÁRHÆTTUSPIL- Það er
ARI HEIMSINS DAUÐUR. ekki
----------------------- v e n j u-
legt, að mönnum takist að verða
miljónamæringar, án þess að snerta
á nokkru handartaki alla æfina. Það
tókst samt Manuel Diaz, sem dó ný-
lega í skrauthöllinni sinni i Havana,
77 ára gamall.
Hann var sonur miljónamærings
og plantekrúeiganda, sem hafði safn-
að auðæfum sínum með sparsemi og
dugnaði. Strax á barnsárunum tóku
menn eftir því að Manuel litli var
óvenju latur. Bar svo mikið á því,
að það var um orð haft. Faðir hans
tók sjer þetla nærri, en kom sjer
ekki að því að beita hörku við
drenginn. Gafst hann alveg upp á
því, að reyna að gera nýtan mann
úr syni sínum, en huggaði sig við
það, að hann myndi láta honum eft-
ir svo mikla peninga, að hann gæti
lifað af þeim alla æfi. En hjer reikn-
aði gainli maðúrinn vitlaust. Að vísu
vissi hann að sonur hans þurfti á
miktu að halda og lifði vel, en liann
vissi ekki að hann var afar sólginn
í fjárhættuspil.
Faðir hans dó 1891. Þá kom nú
skriður á.. Ungi maðurinn fór að
spila og altaf tapaði hann. En hann
hjelt áfram að spila og innan skams
tima komst hann að þeirri niður-
stöðu, að hann átti bara eftir 10
þúsund franka, af öllum miljónun-
um. Þá varð hann hræddur, en ekki
samt svo að hann færi að hugsa um
að vinna fyrir sjer. Neil hann keypti
sjer farmiða til Monte Carlo. Þegar
þangað kom, fór hann strax inn í
spilasalinn og var nú viss um að
hann yrði að vinna, ef hann ætti að
sleppa lifandi út úr salnum.
En hamingjan brosti við honum.
15 sinnum spilaði hann altaf á rautt
og vann. Þvi næst reyndi liann
svarta litinn og vann lika. Þegar
hann loksins yfirgaf spilasalinn og
taldi peninga sína hafði hann unnið
4 milj. franka.
En Diaz hefði nú ekki verið reglu-
legur spilamaður, ef hann hefði far-
ið heim, nú þegar hann var rjett
byrjaður. Nokkrum dögum seinna
tapaði hann öllu og átti nú ekki
grænan eyri. Honum tókst samt á
einhvern hátt að komast á hressing-
arhæli. Þar bjó hann langan tíma.
Að lokum brosti hamingjan aftur við
honum. Hafði gömul frænka hans
dáið og látið eftir sig 25 þús. franka.
Meðan hann var á hressingarhæl-
inu, hafði hann „studerað“ allskon-
ar spilakerfi. Jafnskjótt og hann
hafði fengið peningana fór hann inn
1 spilasalinn, en var nú gætnari. En
það gekk nú alt upp og niður. Ýin-
ist var hann ríkur sem Krösus eða
fátækur eins og kirkjurotta. Þegar
liann liafði peninga, lifði hann eins
og kongur; þegar hann var peninga-
laus fór hann á hressingarhælið.
Hans merkilega lif vakti mikla at-
hygli og ýmsir virðingamenn kynt-
ust honum. í Monte Carlo var hann
þektasti spilarinn og rússnesku
furstarnir sem heimsóttu spilabank-
ann fyrir stríðið, voru helstu kunn-
ingjar hans. Svona eyddi Diaz 50
árum æfi sinnar, án þess að taka
nokkurt ærlegt handtak. En alt í
einu hvarf hann, og enginn vissi
hvert hann hefði farið, en sumir
hjeldu að hann hefði farið eitthvað
langt í burtu og lifði nú einn sam-
an á spilapeningunum, sem voru um
2 milj. franka Nú getur hver sagt um
Diaz það sem honum sýnist. En á
sinn liált var hann „geni“, enda þótt
það væri i leti og hann hafi verið
mesta landeyða veraldar.
ÓÞEKT VEIKl í bænum Kesmark
í KESMARK. í Tsjekkoslovakiu
----------—— hefir gosið upp al-
veg óþekt veiki. Atburður þessi hef-
ir vakið allmikinn ótta meðal bæjar-
húa. — Verkamenn, sem unnu að
viðgerð .kaþólsku kirkjunnar þar í
bænum, fundu gryfju fulla af líkum.
Benti alt á það, að þarna hefði fram
farið múgvig og likunum verið kast-
að i eina gröf. Nokkrir verkamenn
hafa veikst og sumir dáið. Hafa
læknar ekki getað fundið orsök veik-
innar, en hafa getið til að einhver
sýkill hafi lifað í þessum gömlu
beinum. En ibúar bæjarins fallast
alls ekki á þessa skýringu læknanna.
Þeir segja, að veikin sje hefnd
hinna dauðu, sem ekki hafi fengið
„að rotna i friði“.
í blaðinu „Karpatapósturinn" í
Kesmark er nákvæmlega sagt frá
þcssuin atburði. Þar er meðal ann-
ars sagt, að kaþólska kirkjan í Kes-
mark, hafi upphaflega verið reist á
11. öld, en marg ofl verið dyttað
að henni síðan og síðast á 19. öld.
Nú var liún aftur tekin að aflagast
og þurfti enn á ný endurbóta. Vinn-
an sóttist ágætlega, þangað til menn
rákust á þessa líkgryfju. Þar voru
heinagrindur af körlum, konum og
börnum. Nokkrar konur höfðu sýni-
lega dáið með ungbörnin í fang-
inu. Fyrst veiktist verkamaðurinn
Philip Kuriawa. Hann hafði átt að
flytja líkin úr gryfjunni. Læknarn-
ir lijeldu fyrst, að illkynjuð lungna-
bólga gengi að honum. 1 óráðinu
þrugglaði hann alt af um, að dauðir
menn ofsættu sig. En læknarnir
skiflu skoðun, þegar fleiri af þess-
um verkamönnum voru komnir á
sjúkrahúsið. Eins og áður er sagt
lelja þeir vist, að sýkill liafi lifað í
líkum þessum svipað og í konunga-
gröfunum egiptsku. Máli sínu til
sönnunar vitna þeir i skræðu frá
1814, þar er sagt frá mannskæðri
pest, sem geisað liafi i bænum
nokkrum árum áður, og íbúarnir
hafi dáið unnvörpum úr henni. Er
því líklegt talið, að lik þessi sjeu
frá þeim tíma.
Það er ekki ofsögum sagt af
kreppunni og vandræðunum í Eng-
landi. Til dæmis má taka það, að
margir ,gentlemen‘ verða nú að nota
sama pípuhattinn hvort sem þeir
fara á veiðar eða í leikhúsið.
Franski rithöfundurinn Debray
skaut sig, eins og kunnugt er, þegar
leikrit lians „Boulauger hershöfði-
ingi“ var sýnt í fyrstá skifti. Hann
var samstundis settur á sjúkrahús.
Iiann ákvað þá að giftast ungri
stúlku, Giselle Sonette að nafni,
þrátt fyrir það, að hann vissi, að
hann nnindi deyja. Brúðhjónin voru
gefin saman á eins skjótan og ein-
faldan hátt og mögulegt var, til þess
að brúðguminn þyrfti sem minst að
reyna á sig. Nokkrum stundum síð-
ar var Debray örendur.
Fyrir skömmu var maður nokkur
tekinn höndum i dýragarðinum í
New York. Hann hafði gert tilraun
til þess að grýta storkana. — Dag-
inn áður hafði kona hans fætt ]m-
bura I
——x-----
Frægur málari, Sesser Ory að
nafni, dó i Berlin fyrir skömmu.
Það var ekki annað sjeð, en að hann
dæi bláfátækur. Nú er það komið
upp úr kafinu að hann var miljóna-
mæringur.