Fálkinn - 06.02.1932, Blaðsíða 2
2
F Á L Ií I N N
------ GAMLA BIO ------------
Vika i Paradis.
Skemtileg og velleikin talmynd'
í 8 þóttum samkvæmt skáldsögu
Dnna Burnett.
Aðalhlutverk leika:
Nancy Carall
Phillips Holmes.
S'ýnd bráðleyu.
MALTEXTRAKT,
PILSNER,
BJÓR,
BAYER,
HVÍTÖL. - ^
ölgerðin
EGILL SKALLAGRÍMSSON.
Nú er tíminn til
að kaupa
SKÓHLÍFAR
og SN J ÓHLÍFAR,
meðan lága verðið
helst.
Mikið og fallegt úrval,
Lárus G. Lúðvígsson, skóverslun
----- NÝJA BÍO ---------
BORGARLJÓSIN.
(CITY I.IGHTS)
Síðasta ogóviðjafnanlegasta mynd
CHARLIE CHAPLIN
Önnur hlutverk:
Virginia Cherill og
Harry Miers
Þessa stórmerku mynd verða
allir að sjá.
Sýnd um helgina.
■*■■*■■■■■■■■■■■*■■■»■■* ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
i i
ÍSOFFÍUBÚÐI
■
■ S. Jóhannesdóttir
■ ■
• Austurstræti 14 Reykjavik ■
beint á móti Landsbankanum,
í og á ísafirði við Silfurtorg. «
s s
S Mesta úrval af FATNAÐI fyrir [
S konur, karla, unglinga og hörn. S
■
Álnavara bæði til fatnaðar og
heimilisþarfa.
j !
■
Reykvíkingar og Hafnfirðingar
kaupa þar þarfir sínar.
3
3 Fólk utan af landi biður kunningja
3 sína í Reykjavík að velja fyrir sig
■ vörur í SOFFÍUBÚÐ og láta senda
þær gegn póstkröfu.
s s
■ Allir sem einu sinni reyna verða *
stöðugir viðskiftavinir í
SOFFÍUBÚÐ
■
■ Reykjavíkur símar 1887 og 2347. *
[ ísafjarðar simar 21 42.
Hljóm- og
VIKA í Mary er ung stúlka fædd
I’ARADÍS. í smábæ, en hefir flutst
-------til New York til þess að
vinna þar fyrir sjer. Hún hefir gerst
dansmær á næt-
urslcemtistað en
mist atvinnuna og
veit nú engin ráð
til að borða sig
sadda. — Hins-
vegar er Joe, ung-
ur maður sem vill
komast áfram.
Hann hefir unnið
á stórri útvarps-
tækjamiðju, en
svo kom atvinnu-
leysið og hann
stendur uppi á
gaddinum. í ör-
væntingu sinni á-
kveður hann að
gera innbrot i
verksmiðjuna og |
ræna fje. Nætur-
vörðurinn sjer
hann og skýtur á
hann, en Joe
kemst undan með
þýfið, en særður
á höfði og reikar |
eins og drukkinn J
maður eftir áfall-
ið. Þá mætir hann
Mary og hún kem
ur honum undan,
inn á herbergið
sitt og bindur um
sár hans. Hann jafnar sig og segir
Mary frá innbrotinu. Þá heyrist til
lögreglunnar i stiganum. Joe grípur
til skammbyssunnar og ætlar að
verjast, en Mary fær hann ofan af
því. Hún verður fyrir svörum og
talmyndir.
henni tekst að leiða af honum grun-
inn. Joe vill gefa henni part af þeim
20.000 dollurum sem hann hefir
stolið, en hún vill ekki taka við
þeim, en þeim kemur saman um að
njóta þeirra í sameiningu og fara
til Florida og skemta sjer. Þau setj-
ast að i einu gistihúsinu í Palm
Beach og kynnast þar ýmsu ríkis-
fólki, j). á. m. piparsveininum Steve.
Hann verður ástfanginn af Mary,
en hún lítur ekki á aðra en Joe,
sem liún hefir orðið ástfangin af
eftir stutta viðkynning.
Þau lifa í vellystingum og brátt
fer buddan að ljettast og þau ganga
þess ekki dulin, að brá'ðum verða
þau að skilja. í örvæntingu sinni á-
kveður Mary að spila fjárhættuspil
fyrir síðustu 1000 dollarana. Steve
grunar strax hver ástæðan muni
vera og býðst til að spila fyrir
liana. Hann telur henni trú um, að
hann hafi grætt fyrir hana 5000
dollara, en hún segir að það sje svo
lítið, hún verði að græða 25.00 doll-
ara. Þetta kemur flatt upp á
hann; hann hafði haldið að Mary
væri saklaus stúlka en engin hýena.
Spyr hann hana þá hvort liún vilji
koma með sjer í skemtiferð til
Havana, ef hún græði peningana,
og í örvæntingu sinni lofar Mary
því. Skömmu síðar kemur hann með
peningana, en á síðustu stundu
verður ástin til Joe yfirsterkari og
hún flýr til hans.
Mary segir honum, að hún hafi
unnið 25.000 dollara og þau ákveða
að senda stolnu peningana til út-
varpstækjasmiðjunnar aftur og
byrja nýtt líf. En þegar þau eru að
ganga frá brjefinu kemur lögreglan
og tekur þau föst. Þau eru fest sam-
an með handjárnum, en til þess að
kunningjarnir sjái ekki hvernig
komið er, ganga þau arm í arm út
og hafa ferðateppi ofan á járnun-
um, svo að þau sjáist ekki. Á leið-
inni út fleygir Mary peningunum
út í veður og vind. Allir fara að
tína þá upp og alt kemst á ringul-
reið. Þeim tekst að flýja til Steve
og hann ætlar að koma þeim und-
an á skemtiskipi sínu. En á síðustu
stundu taka þau þann kostinn að
ofurselja sig lögreglunni og þola
hegningu, því að þá muni ást þeirra
best borgið.
Nancy Caroll leikur Mary en Joe
er leikinn af Phillipp Holmes og
Steve af Louis Calhern. Nancy Car-
oll leikur hlutverlc sitt ágætlega og
svo vel er með efnið farið, að þessi
ungu hjú, sem bæði hafa lent á glap-
stigum, verða hugþekk áhorfendan-
um, þrátt fyrir alt. Skemtilegar eru
sýningar frá Palm Beach og gefa
góða hugmynd um skemtilíf amerí-
könsku auðkýfinganna á hinum un-
aðslega baðstað í Florida.
Myndin verður sýnd bráðlega í
Gamla Bíó. Hún er tekin af Para-
mount og gerð eftir alkunnri skáld-
sögu eftir Dana Burnett.
BORGAR- Núna um helgina má bú-
LJÓSIN - ast við, að margir vilji
-------- koma í NÝJA BÍÓ. Því
að á sýningarskránni er liin fræga
mynd Chaplins, „City Ligths“,
myndin sem mest umtal hefir vakið
i heiminum síðasta árið. Fyrsta
hljómmynd Chaplins.
Almenningi kemur saman um, að
Chaplin sje mesta „geni“, sem kvik-
myndin hefir alið. Og er þá mikið
Frumh. á bls. 15.