Fálkinn


Fálkinn - 06.02.1932, Side 6

Fálkinn - 06.02.1932, Side 6
G F Á L K I N N Sunnudags hugleiðing. Textinn: Lúkas 15, 11—24. Textinn, sem vitnað er til hjer að ofan, segir frá syninum, sem liafði farið í fjarlæg lönd úr heimahúsum, vel búinn að efn- um, en sóaði þar fje sínu og lenti i eymd. Og sonurinn ákvað að fara heim til föður síns aft- ur og beiðast þess að fá að verða einn af daglaunamönn- um hans. Og svo er sagt frá viðtökunum, sem hann fjekk hjá föður sínum og' gleði föð- ursins yfir því, að sá sem týnd- ur hafði verið var fundinn. Hversu margir eru þeir, sem ekki eiga við lík kjör að búa í andlegri merkingu, og glataði sonurinn átti. Hversu margir eru ekki þeir, sem þrá að hverfa heim til föðurhúsanna aftur? En þeir hafa ekki kjark til þess að gera það, ekki kjark til þess að hiðja fyrirgefningar, þó að þeir viti, að hún verður veitt þeim. Þeir þrá að mega varpa sjer fyrir fætur föðursins, en slá því á frest, vegna þess að þeim finst synd þeirra svo mik- il, að þeir geti það ekki. Þeir treysta því ekki, að gæska og mildi föðursins sje svo mikil, að hann fyrirgefi þeim, jafnvel þó að þeir viti, að hann fyrir- gefur liinum mesta syndara. í dæmisögunni hefir Jesús Kristur brýnt það fyrir syndug- um mönnum, að synd þeirra er aldrei svo stór, að hún verði þeim ekki fyrirgefin. Þessi boðun fyrirgefningarinnar geng- ur eins og rauður þráður gegn- um alla kenningu hans: að menn iðrist og snúi sjer til Guðs. Því að Guð vill ekki dauða syndugs manns, heldur að hann snúi sjer og lifi. En það eru ekki aðeins þeir, sem standa í sporum glataða sonarins, sem þurfa að snúa sjer til föðursins og biðja um gæsku hans og mildi. Allir þarfnast þess, því að án þess getur enginn kristinn maður lifað gæfusömu lífi hjer á jörð. Jarðlífið yrði raunaleg barátta manns, sem aldrei kæmist að markinu. Enginn þarfnast Guðs fremur en einmitt þeir, sem finst að þeir ekki þarfnist hans. Þeir sem láta sjer nægja líkam- lega velliðan og hugsa aldrei um föðurhúsin eða glötunina. Einmitt þeir menn þarfnast föð- uraugans, sem aldrei missir sjónar á þeim og föðurhjartans, sem aldrei þreytist á því að elska og laða, eins og svo yndis- lega er sagt í einum fegursta sálminum í sálmabók okkar: „Fyrst boðar Guð sitt blessað náðarorðið“. Guð hjálpi oss öllum til, að „bregðast ei því boði“ heldur leita til föðursins miskunn- sama og góða meðan tími er til. Því að þá munum vjer reyna það sama og glataði sonurinn gerði: að faðmur föðursins stendur opinn og að það er gleði yfir heimkomu vorri. Landsímastöðin nýja. Skrifstofa landsímastjóra, ViS borffið situr tí. J. Hlíðdal landssimastjóri. Landsíminn hefir fengið veglega afmœlisgjöf. A 25 ára afmæli hans i haust sem leið, var hinu nýja stór- hýsi hans við Austurvöll, milli Reykjavíkur Apóteks hins gamla og húss H. Benediktssonar & Co. (þar sem áður var Kvennaskólinn), skil- að svo langt áfram, að skömmu síð- ar var farið að flytja í húsið. Nú er kominn þangað skrifstofa bæjar- símans, stöðvarstjórans i Reykjavík, Aðalskrifstofa landssímans, útvarp- ið, verkstæði símanna og verkfræð- ingastofur, auk tveggja leigjenda, vitamálaskrifstofunnar og veður- stofunnar. Að vísu má segja, að landsíminn hafi gefið sjer þessa gjöf sjálfur. Þótt merkilegt megi heita, hefir hann jafnan gefið arð og endurbygt sig og aukið að nokkru leyti þrátt fyrir hinar erfiðu aðstæður, sem eru hjer á landi til þess að reka sima. Því var spáð í öndverðu, að siminn mundi verða drápsbaggi á rikis- sjóðnum og spámennirnir höfðu vit- aniega mikið til síns máls. En þetta fór á annan veg. Og nú er síminn orðið svo mikið stórveldi, að hann leyfir eiginlega ekki miklu af þess- ari höll sinni, þegar útvarpið, sem er skylt fyrirtæki, er tekið með. Byggingin er vitanlega við vöxt, en hver veit hve lengi hún verður nægi- lega stór? A dögunum gerði Fálkinn sjer ferð niður í höllina og náði tali af stöðv- arstjóranum, ólafi Kvaran, sem góð- fúslega sýndi oss liúsið, hátt og lágt. Verður sagt hjer ágrip af þeirri ferðasögu, en ítarlegt verður það ekki, því efnið er mikið. í kjallaranum eru enn smiðir að vinnu i sumum herbergjunum, en vjelar þær, sem þar eiga að vera, eru komnar á sinn slað. Þar eru í kjallara aðalhússins miðstöðvar- katlar bygingarinnar, tveir risar, sem gleypa alt að hálfri smálest af koksi á sólarhring. Þar er i klefa sjer rafhreyfill sá, sem dregur lyft- una upp og niður. Og i vesturálmu eru raforkuvjelar símans og rafhlöð. Geymsla er þar og fyrir áhöld, vjel- ar og því um líkt. Á fyrstu hæð aðalbyggingarinnar er afgreiðslusalurinn til vinstri þeg- ar inn er komið frá aðaldyrunum, sem eru nyrst á húsinu (lengst t. h. á myndinni. Er það stór salur, en ekki fullger ennþá og er afgreiðsla fyrir simtöl og simskeyti þar. Jafn- ltliða honum vestanmegin i húsinu er ritsímasalurinn, en milli af- greiðsluborðanna og ritsímaborð- anna er „loftbraut", sem flytur skeytin frá afgreiðslunni til símrit- aranna og aðkomin skeyti frá þeim til útsendingarstofunnar.sem er að vestanverðu, sunnan við ritsímasal- inn. í jDeim sal er einnig klefi til að taka á móti símskeytum, sem símuð eru til stöðvarinnar og frá. En fyrir sunnan afgreiðslusalinn er skrifstofa stöðvarinnar og þá í austurhorni hússins skrifstofa bæjarsímans. Er sjerstakur inngangur þangað, á suð- austurhorni hússins. Loks er í suð- vesturhorninu skrifstofa stöðvar- stjórans. f vesturálmunni er á fyrstu og annari hæð hin nýja, sjálfvirka mið- stöð; Þar verður fyrst fyrir á neðri hæðinni verkstæði og línutengistöð; það er einskonar forstofa síma- þráðanna, sem þeir verða að fara um, áður en þeir koma inn í mið- stöðina. Þar er öryggi á hverjum þræði, til þess að varna því, að þrumur og eldingar eða aðrir óboðn- ir straumar, stelist inn í miðstöðina og brjóti þar og bramli hin dýru galdraáhöld, sem nú eiga að taka við störfum blessaðra stúlknanna á miðstöðinni, sem öllum er svo vel við, þó stundum renni mönnum i skajt við þær. Er nú eftir að sjá hvorl símanotendum þykja skiftin lil böta. Þarna hittum vjer verkfræðinga frá hinu sæiiska firma L. M. Ericsson, sem smíðað hefir hinar nýju „síma- meyjar“ úr stáli, kopar og áragrúa af þráðum og tenglum, og reynir einn Jteirra að koma oss í skilning um ganginn í þessari undravjel, sem ekki getur heyrt lægri tölu en þús- und og þessvegna verður hún lægsta núnterið í Jjessti nýja kerfi. Er gang- urinn í stuttu máli sá, að þegar sim- notandi, segjum nr. 2345 tekur heyrnartólið af áhaldi sínu, Jvá heyr- ist þar suða undir eins og „veljar- inn“ (eða kjósandinn!) er lilttúinn að svara. Veljarinn er skífa með hreyfanlégum vísi, sem gengur inn á milli aragrúa af þráðíim og stiliist hann sjálfkrafa á Jjann ]>ráð, sem heyrir til númeri J)ess, sem tekið hefir upp heyrnartólið sitt. Um hringingu er ekki að ræða, hjá þeim sem biður um samtalið. Þegar suð- an heyrist er það mérki um, að nú sje veljarinn kominn á sinn stað. Því næst biður símnotandi um núm- erið sem hann vill tala við, segjum 4(il(i, J)annig að hann drepur fingr- Úr affalskrifstofum landssímans. Til vinstri bókhaldsskrifstofan en til hægri skrifstófa gjaldkera.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.