Fálkinn - 20.02.1932, Blaðsíða 15
F Á L K l N N
15
Frh. af bls. 2.
George Alexander, seni or'ðinn er
einn af allra vinsælnstn söngmynda-
leikurum og nýtúr hann sin að l'ulln
í þessu hlutverki. Á móti honum
leikur Martha Eggertli, falleg stúlka
með ágæta söngrödd. Er myndin öll
hin fjörugasta og gefur áhorfandan-
um gott tækifæri til að hlæja. Mynd-
in er með þýskum texta. Hún verð-
ur sýnd á Nýja Bió um helgina.
NAPOLEON ER Þegar M. Worms
SKULDLAUS. — Baretta opnáði
—--------------- litla gestgjafahús-
ið sitt i Avignon árið 1793, var það
heldur íburðarlitið, svona fyrstu
árin. Skömmu eftir að það haíði
verið opnað konui frönsku liðsveit-
irnar til bæjarins til þess að bæla
niður uppreisnina á Suður-Frakk-
landi.
Litla gestgjafahúsið var samkomu-
staður hermannanna og ineðal
þeirra var Napoleon Honaparte, sem
var laulinant við -t. stórskotaliðs-
sveitina. Hann kom Ii 1 Baretta, en
illa gekk honum að borga..
Oftnst sat hann einn út i liorn-
inu án þess að neyta mikils. Starði
hann út í bláinn, hljóður og hugs-
’andi. Mikið skyldi hann gera, þegar
tiann yrði slór og mikill maður. En
oflast varð hann að fá bjórinn sinn
,,upp á krít" hjá Baretta.
Þegar hann yfirgaf Avignon skuld-
aði hann Baretta 60 franka.
Svo fór Napoleon að ganga hetur,
en hann gleymdi hreinl og beint
skuldinni. En það gerði aftur á móti
Baretla ekki. Áður en liann dó gaf
hann syni sínum rjett til skuldakröf-
unnar á Napoleon. En barnabarna-
barn Baretta gamla hefur nú loksins
fengið skuldina greidda. Því að
leikkonan Worms Baretta hefur
l'engið kross heiðursfylkingarinnar
frönsku. Þá orðu stofnaði Napoleon.
Nú eru þvi jafnir reikningar ætl-
apna Bonaparte og Baretta. En ekki
vitum vjer hvort leikkonan hefur
gefið kvittun fyrir frankaupphæð-
inni, eðiir eigi.
KERLINGIN Árið 1907 fluttist göm-
FALDI SIG. ul kona, Ida Wood að
------------ nafni á Herald Square
gistihúsið i New York, sem er cil
af þeim dýrustu i borginni. Með
henni var systir liennar ásamt dótt-
ur sinni. Hún krafðist þess af gisti-
hússtjórninni, að enginn skyldi segja
lil hennar þó sþurt væri eftir henni,
en gerði að öðru leyti engar kröfur.
Árin liðu og enginn spurði eftir
l'rú Wood. Systir hennar dó og
skömmu sxðar l'ylgdi dóttiriii henni
í gröfina. En frú Wood hjelt áfram
að búa á gistihúsinu i tveimur lill-
um herbergjum, sem öljum var
bannaður aðgangur að. Ilerbergis-
þernurnar máttu ekki einu sinni
koma inn. Og frú Wood hafði ekki
umgengni við nokkurn mann.
Hún fór sjaldan úl, máske einu
sinni á hverjum tveimur árum og
var þá jafnan klædd snjáðum svört-
um fötum og með hatt, sem áreið-
anlega var kominn á þrítugsaldur.
Aldrei kom liún i veitingasat gisti-
hússins, en lifði á brauði og.niður-
soðinni mjólk, sem hún ljet færa sjer
l'rá ódýrri brauðsölubúð i Brook-
lyn. Húsaleigiina greiddi hún ávalt
stundvíslega og nam ekki þjórfjeð
við nögl sjer.
Enginn gaf þessari görnlu konu
gauxn þangað til núna nýlega, að
það vilnaðist, að hún hafði undir
iiöndum miljón dollara, sem hún
hafði sumpart saumað inn í fötin
sín og sumpart falið í rúminu sínu.
Frændi hennar, Otis Wood hafði
leitað hennar árangurslaust síðan
hún livarf árið 1907. Hún hafði á
yngri árum verið annáluð fyrir feg-
urð og hlotið þann lxeiður að daxxsa
Norsku vetraríþróttamennirnir í Lake Placid.
Vetraríþróttir Ólympsleikja þessa árs hafa farið fram undanfarna daga i Lalce Placid, en þar
Ixafði nefndin setl upþ skautabraul með sætum fyrir um 50.000 manns og braut fyrir skíðastökk.
Fjöldamargar þjóðir sendix sldða- og skautamenn til mótsins, þar á meðal Norðmenn og var þó
deilt um, hvort þjóðin skyldi taka þátt í þessu vetrarnxóti vegna óhagstæðra tima í Noregi. Þó
fór svo, að fjölmennur hópur helstu úrvals íþróttamanna þjóðarinnar var sendur, en hefðu
Norðmenn vitað um úrslitiix mundu þeir hafa sparað sjer ferðakostnáðinn og setið heima. Því
að Norðmönnum vegnaði alls ekki eins vel og búast hefði mátt við. Áð vísu fjekk hin ósigrandi
Sonja Henie fyrstu yerðlaun fyrir listhlaup á skaulum, en aðrir skautamenn þeirra biðu ósig-
ur, þó ekki íxiunaði miklu og skíðamennirnir sömuleiðis. Iijer sjást skiðakapparnir, sem Norð-
menn sendu. Er myndin tekin um borð á þýska skipinu „Europa", sem flutli þá vestur.
við Jxáverandi prins af Wales, sið-
ar Játvarð 7. þegar hann kom lil
Bandarikjanna. Var hún þá kölluð
hin fagra l'rá New York“ i þá daga.
En þegar hún misti manninn hafði
luin tekið aleigu sína úr bankanum
og horfið ásamt systur sinni og syst-
urdóttur. Hjeldu flestir að þær hefðu
farið til Evrópu og var hennar leit-
að um alt þar. En hún hafði selið
á einu af stærsta gistihúsumnum, i
hjarta New Yorkborgar allan tim-
ann.
En nú eru ættingjarnir komnir
yfir hana eins og gammar. Fjölda
margir Wood-ar kréfjast arfsins, og
lióta að gera kérlinguna ómynduga.
Hún er orðin 94 ára gömul, en
heldur enn fullum sönsum. Erfingj-
arnir hafa leigl sjer málafærslu-
menn, leynilögregluspæjara og fleira
fólk sjer lil aðstoðar og varið miklu
fje til þess að ná í arfinn. Þeir geta
huggað sig við, að liklega fer æfi
gönxlu konunnar að stytast úr |xessu.
IIVALREKI í í ofviðri, sem nýlega
CORNWALL gekk yfir Cornvall
----------- skeði sú nýlunda,
að átta hvali rak á land. Var búist
við að þeir kæmust á flol aftur með
næsta flóði en það varð ekki .Ilval-
irnir voru „strandaðir" og sáluðust
þeir allir þarna í fjörunni, við inni-
lega liluttekning fjölda fólks, sem
hafði ferðast á strandstaðinn til þess
að skoða þessi ferlíki. En Englend-
ingar eni ekki hræddir við að jeta
sjálfdauða hvali og veitingahúsin
þar í grend l'uixdu það snjallræði,
að fara að búa til allskonar í-jetti
úr hvalaketinu. Þyrptisl fólk nú
þangað, til þess að smakka þessa ný-
lundu en gestgjafarnir rökuðu sam-
an fje. En þó mikil væri aðsóknin
sá litl á kjötbirgðununx og áður en
fyrsli hvalurinn var hálfnaður voru
hinir farnir að úldna. Lagði nú af
þeirn sterkjuna langar leiðir, svo að
yfirvöldin Ijetu að lokum brenna þá
lil agna í sinu cigin lýsi.
-----------♦ iii ♦ ------—:
í Ilamilton (Bernxuda) var fyrir
skömmu 18 ára gömul slúlka, Bea-
Irice liobinson að nafni, dæmd til
dauða fyrir að hafa myrt unnusta
sinn, Aubrey Trotl. Þau höfðxi orð-
ið ósátt, því að imnustinn lxafði orð-
i'ð afbrýðisamur gagnvart öðrum
manni. Hún bar l'yrir rjelti, að hún
hafi myrt Trott af því að hún hafi
ált lif sill að verja. Fjöldi ferða-
nianna var staddur lxarna á eynni.
Þótti þeim Jxella eini skugginn sem
á gleði Jxeirra fjell á Jxví ágæta ferða-
lagi lil þessarar l'ögru eyjar. Á eynni
hefir engri konu fy-r verið dæmd
dauðarefsing og þetta fjekk svo á
dómarann, að hann grjet, er hann
las upp dauðádóminn, En engin
sviplxrigði voru sje'ð á stúlkunni.
Odýr búsát Þrátt fyrii' hækkandii iðld. verð á
vöntm, get jeg enn þá selt
meö eftirfarandi verði:
4 bollapör • 1,50
Diskar með blárri rönd 0,60
Vatnsglös . 0,50
Email. fötur . 2,50
,3 sápustykki .... • 1,00
3 klósettrúllur .... . 1,00
Vatnsföt, emaill. . . . 1,25
Olíuvjelar (fáar eftir) 12,00
Bónkústar 9,00
Þvottavindur . 35,00
Siguröur Kjartanssoo.
Lauflavefli 20 B. — Simi: 830.
HERBERTSPMENT
BANKASTRÆTI 3 REYKJAVÍK SÍMI 635
PRENTSTOFA
HEFTISTOFA
leysir hvaða prentun sem er fljótt og vel af hendi.
HÖFUM ALLSKONAR SKRIF- PRENT- OG LÍMPAPPlR, KARTON, NAFN-
SPJÖLD (HANDGERÐ OG VENJULEG) i MISM. STÆRÐUM OG GERÐUM.