Fálkinn


Fálkinn - 30.04.1932, Blaðsíða 3

Fálkinn - 30.04.1932, Blaðsíða 3
F Á L K I N N 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmdastj.: Sravar Hjaltested. Aðalskrifstofa: Bankastræti 3, Reykjavík. Simi 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7. Skrifstofa í Oslo: Anton Schjöthsgade 14. Biaðið kemur út hvern iaugardag. Askriftarverð er kr. 1.70 á mánuði; kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftir greiðist fyrirfram. Auglýsingaverð: 20 aura millimeter Herbertsprent, Bankastræti 3. Skraddaraþankar. Síðastliðinn sumardagurinn fyrsti var helgaður börnunum, eins og nokkur undanfarin ár, en fjársöfnun til fyrirtækja þeirra, sem frumkvöðl- ar barnaverndarinnar starfækja, var stórum minni nú en árin á undan. Er ])etta sennilega að kenna krepp- nnni, sem kemur víða við, en þó helst þar, sem hún ætti síst að koma. Annars hefur lengi verið kreppa í því, sem forráða menn Reykjavík- ur hafa gert fyrir börnin. Það er eins og þeim sje ekki enn farið að skiljast, að eins og nú er, þá stefnir í beinan voða fyrir uppvaxandi kyn- slóð Reykjavíkur, þeirri kynslóð, sem á sínum tíina á að byggja þenn- an bæ og auka hróður hans. Börnin í Reykjavík eru í rauninni ófriðhelg. Þeim er enginn staður ætlaður nema gatan og mölin, þar sem þau í raun- inni eru í stöðugri lífshættu, bæði bráðri, vegna umferðarinnar og svo hinni, sem jafnvel er verri, heilsu- spillinum, sem þessi „leikvöllur" hefir i i'ör með sjer. Leikvöllurinn er mettaður hrákum þeirna, sem um ganga og hvort ungum börnum sje heilsusamlegt að soga rykið af þeim inn i lungun, er atriði, sem enginn efast um. Enda sýna verkin merkin. Heilbrigðisástand barnanna í Reykjavik er bágborið, og það þýð- ir ekkert að kenna húsakynnunum einum um það. Útiveran, sem á að þroska og hressa börnin, verður þeiin oft og einatt lind sjúkdóma. Læknarnir geta borið vitni um það. Og andlegu áhrifin eru ekki betri, því að ekki þarf nema einn gikkinn í hverri veiðistöðinni, einn frakkan strák eða stelpu, til þess að kenna tylftinni illan niunnsöfnuð og ó- luiytti. Kennararnir geta borið um það. Útlendingar, sem hingað koma laka eftir fáu meira, en barnagrúan- um, sem hefst við á götunúm, án for- sjár fullorðinna, smábörnum, sem fara ein síns liðs á fjölförnustu göt- um eða velta sjer i rykinu á miðri akbrautinni í hinum fáfarnari. Þeir skilja ekkert í þessu, því að jafnvel í fátækrahverfum stórborganna er ástandið betra í þessu efni, en hjer i hinni fámennu höfuðborg íslands. Hvenær verður hafist handa að bæta úr þessu? Hvenær verður börnunum sjeð fyrir víðlendum grasvelli,, þar sem þau geta veit sjer og leikið sjer á sumrum, í stað þess að vera á götunni eða á hinum svo- kölluðu „leikvöllum" bæjarins, sem ekki eru annað en hart moldarflag? Hans Kragh viðgerðarstjóri Bæj- arsímans verður sjötugur á morgun. Steinn Sigurðsson rithöfundur i Hafnarfirði varð sextugur 2-,i. apríl. Tryggvi Jónatansson bygginga- meistari á Akureyri varð fertug- ur 15. apríl. Þektur kvenlæknir á Englandi, Elísabeth Chester gat þess nýlega í fyrirlestri sem hún flutti i London, að besta ráðið til þess að koma i veg fyrú' hjónaskilnað, væri að gera unga fólkinu unt að giflast ungu, þ. e. a. s. innan tvitugs aldurs. „Við verðum að hjálpa sonum vorum og dærum til að giftasl fyr en venjulegt ei- nú“, sagði hún. „Látum þau fá sitt eigið heimili og eignast börn meðan þau eru nógu ung — og það mun ktíma í ljós, að hjónaskilnaðir verða færri. Lofum þeim að njóta lífsins meðan þau eru ung“. Þessi orð stinga nokkuð í stúf við það sem aðrir haida fram, nfj. að aukning hjónaskilnaðanna komi mest af því, að fólk giftist of ungt, að það ani úl í hjónabandið án þess að vita hvað það vill. Leikhúsið: Töfraflautan. Leikfjelagið hefir nýlega tek- ið lil leiks æfintýraleik fyrir börn og unglinga, sem heitir „Töfraflautan“ og er eftir Ósk- ar Kjartansson. Er leikurinn sýndur síðdegis og hefir fengið und. Þessi leikur er prýðisvel fallinn lit barnasýninga og höf- undi til mesta sóma. Hann er lmittinn og skemtilegur, efnið liugnæmt, og futt af tilbreyting- um, söng og dans. Söngvarnir eru eftir Árna Björnsson í Hafn- arf. Leikurinn fór vel úr hendi og er sjerstaklega vert að minn- ast 7 áraperlu (Dóru Haralds- dóttur), Tobíasar rauðnefs (Helga S. Jónssonar) og Gunn- hinar bestu viðtökur. Þetta mun vera í fyrsta skifti, sem Leikfje- lagið efnir til sýninga fyrir ars förusveins (Alfr. Andrjes- sonar) . Ennfremur má nefna Konginn i Thule (Valdemar Helgason), Fjólu kongsdóttur (Hönnu Friðfinnsdóttur) og Starkaður. Myndirnar sem hjer fylgja sýna Fjólu kongsdóttur, sömu og Gunnar förusvein, Konginn í Thule og Tobías rauðnef. — Þó að leikur þessi sje einkum ætlaður börnum og unglingum er það víst, að marg- ur fullorðinn hefir gaman af að sjá hann og heyra, ekki sist fyr- ir það, ad hann er íslenskur. Leikurinn verður sýndur næst á morgun. börn, en áður hafa aðrir gerl það„ og hefir m. a. verið sýnd- m annar leikur eftir sama höf- Múönrmál vort, islenskan. uiu pao efni ætl- ar Sigurð- ur Skúla- son mag- ister að flytja er- indi í Gamla Bíó kl. 3 síðd. á morgun. Hann hef- ir nýlega skrifað tvær all- miklar greinar i dagblaðið Vísi og gert þar athuga- semdir við nýyrðastefnuna og staf- setningarreglugerðina frá 1929. Hafa þessar greinar vakið athygli og sætt nokkurum mótmælum. Er líklegt að skólafólk og þeir, sem unna íslensku máli fjölmenni í Gamla Bíó til að heyra, hvað Sigurður hefir fram að færa,

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.