Fálkinn - 05.11.1932, Blaðsíða 1
16 siðnr 40 anra
Reykjavík, laugardaginn 5. nóv. 1932
MINNING GUSTAFS ADOLFS.
1 ár hafa viðsvegar um Þýskaland verið haldnar minningarhátíðir, vegna þess að 6. nóvember eru 300 ár liðin síðan
Gustav 11. Adolf fjell í orustunni við Liitzen. Gustav Adolf var mesti herkonungur sinnar tíðar og er hann hafði snú-
ist gegn Rússum og Pólverjum og tekið af þeim lönd rjeðst hann í að fara með Ixer manns suður í Þýskaland til þess
að veita protestöntum lið gegn keisaranum. Fór hann með her sinn suður í júní 1630 og lagði fljótlega undir sig Pomm-
ern, kúgaði Brandenburg til sambands við sig og rjeðst inn í Saxland og vann sigur á Tilly hershöfðingja við Breiten-
feldt 7. september 1631. Hann hjelt liði sínu alla leið suður i Bayern og lagði Miínchen undir sig. En meðan þessu fór
fram hafði keisarinn eflt her sinn á ný undir forustu Wallensteins og eftir nokkrar skærur í nágrenni við Niirnberg
varð úrslita orusta við Lútzen í Saxlandi 6. nóvember 1632. \Unnu Sviar orustuna en Gustaf Adolf fjell og lifir minning
hans síðan meðal mótmælenda, enda var hann mikilhæfur stjórnandi i fleiru en hernaði. — Hjer á myndinni sjest minn-
ingarathöfn í Dinkelbúhl í Þýskalandi i sumar, og var þá afhjúpuð tafla til minningar um fall Gustav Adolfs. Til
hægri sjest sænski prófessorinn Runestam vera að halda minningarræðuna.