Fálkinn - 20.05.1933, Síða 3
F Á L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
fíitstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framlcvæmdastj.: Svavar Hjáltested.
Aðalskrifstofa:
BanKastræti 3, Reykjavík. Sími 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa í Oslo:
A n l o n S c li j ö t h s g a d e 14.
Blaðið kemur út hvern laugardag.
Askriflarverð er kr. 1.70 á mánuði;
kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
AUar áskriftanir greiðist fyrirfram.
Anglúsingaverð: 20 aura millimeter
Herbertsprent, Bankastræti 3.
Skraddaraþankar.
Skólarnir eru farnir að tiðka það
á síðari árum sumir hverjir, að
gera nemendum sínum kost á ódýr-
um skemtiferðum í aðra lands-
fjórðunga ti:l þess að kynnast þeim.
Mun þetta hafa byrjað í Menta-
skólanum hjer fyrir nokkrum árum
og nú hafa fleiri skólar lekið það
upp. Þannig eru nokkrir nemend-
ui' Austurbæjarbarnaskólans nýlega
lcomnir úr skemtiferð, sem eigi var
í ánnan landsfjórðung, heldur aila
leið til Færeyja.
Svona ferðir eru hin þarfasta
tiJslofnun og einmitt námsárin eru
sá tíminn, sem hentugastur er til
slíkra ferða. Þegar einstaklingur-
inn er farinn að stunda lífsstarf
sitt getur vel svo farið, að starfið
bindi hann svo í báða skó að hon-
um veitist aldrei tækifæri til ferða-
lagsins. Hinsvegar er efnahagur
námsfólks að jafnaði svo, að fæstir
hafa ráð á því að verja miklu til
skemtiferða einmitt þessi árin sem
mest gagn er hægt að hafa af ferð-
unum.
Með öflugri hreyfingu mættj þó
eflaust koma talsverðu tii Ieiðar í
liessa átt. Ef skólafólk hefði það
hugfast, að engin skemtun er betri
nje hoiiari en ferðalag og legði
þessvegna til hliðar og safnaði þeim
krónum, sem fljótar eru að fara í
aðrar skemtanir og hefði þær fyr-
irliggjandi að vorinu, þá gæti það
orðið talsverl álitlegur skildingur.
Ætti þá þá að afráða ferðirnar að
haustinu og safna í þær allan vet-
nrinn.
En svo er annað. Fjöldi skipa
siglir með ströndum landsins með
lóm farþegarými — vegna þess að
þau eru of dýr. Fargjöldin milli
íslenzkra hafna eru svo há, að það
ferðast ekki aðrir en þeir sem
þurfa að ferðast og hafa góð aura-
ráð. Það væri ekki úr vegi, að
þessi skip hefði ódýr fargjöld fyr-
ir skólafójk og legðu áætlun sina
nokkrar ferðir að sumrinu þannig,
að sem mest gagn mætti hafa af
ferðinni. Mundi þetta verða vel þeg-
ið og engin hælta á, að skipafje-
lögin hefðu tap á því. Þetta er al-
siða í ýmsum öðrum löndum og
jafnvel eru gerðar út ódýrar ferð-
ir fyrir hvern sem hafa vill, lil þess
að láta skipin hafa eitthvað að gera.
Hafa fargjöld í skemtferðum aidrei
verið eins iág eins og í sumar.
Þannig er boðið tiJ skemtiferðar
suður i Afríku með vandaðasta
skipi Svia, „Drottningholm“
20 daga ferð fyrir 350 krónur að
meðreiknuðu fæði. Og nefna mætti
fleiri dæmi þessu lík. Mætti ekki
hjóða hálft fargjald með skipunum
hjerna, svo að skólafóíkið fái að
fcrðast?
LEIKHÚSIÐ:
Þrettá n da k vö I d.
Árið 1027 var sjónleiknr sá, sem
Leikfjelag fíeykjavikur sýnir nú
jjessa dagana, „Þrettándákvöld“
eftir William Shakespeare sýndur i
fyrsta sinn hér á landi. Þá hafði
hr. Indriði Waage leikstjórn á lxendi
en í J)etta sinn er j>að hr. Brynj-
ólfur Jóhannesson. — Báðir þessir
leikarar fara nú með sin gömln
góðu hlutverk. Indriði leikur „Mal-
vólíó“ en Brynjólfur leikur ,,Herra
Andrés Bleiknef".
Um gjörvallan heim á leikur
þessi tök á þeim, sem góða list
vilja sjá, og þvi væri liklegt, að
honum yrði tekið með afhrigðum
vel lijer á landi lika. — Meðferð-
in er góð og allur útbúnaður
sömuleiðis. — Búninga hefir Kon-
unglegaleikhúsið í Kaupmánnahöfn
verð svo vingjarnlegt að lána fje-
laginu og eru þeir mjög fallegir.
— Hljómsveit frá tónlistaskólanum
leikur undir söngvana, sem sungn-
ir eru af Kristjáni Kristjánssyni
söngvara. — Hjer að ofan eru mynd-
ir af þessum leikendum: lifsla
myndin frá v. Kristján Kristjánsson
söngvari sem fíflið, Tobias hiksti
(Har. A. Sigurðsson) og Andrjes
Bleiknefur (Br. Jóhannesson). —
(Næsta mynd að neðan i 1. dálki
Sebaslian (Geir Borg) og Víola
(Þóra Borg). Næst Brynj. Jóhann-
esson í hinu fjölbreytta hlutverki
sínu og loks Malvolius (Indriði
Waage) og Olivia (Emil Borg). —
Það er nýlunda að sjá jafn vel
farið með meistaraverk og þenn-
an leik og þessvegna mun engan
iðra að horfa á liann.
Nýjar gleraugnaumgerðir eru
komnar; einnig vaskaskinn, sem
nauðsynleg eru til að fægja með
gleraugu. Allsk. viðgerðir á gler-
augum, t. d. lóðningar — fáið jijer
best og ódýrast í
Gleraugnabiiðinni, Laugaveg 2.
Sigurður Gunnarsson fyf».
próf.. verður 85 ára 25. j>. m.
Hálfdán Guðjönsson vígslu-
biskup, verður 70 ára 23. />. m.
Sjera Friðrik Friðriksson, K. F.
F. M., verður 05 ára 25. þ. m.
Páll Einarsson hæstarjettar-
dómari, verður 65 ára 25. þ. m.
% • •H.-O "0..-• •n..-•-•«..■• •■%.••
Drekkiö Egils-öl