Fálkinn - 15.07.1933, Síða 1
28.
Reykjavík, laugardagínn 15. júlí 1933
VI.
HELGA ÁRIÐ í RÓM
Róm er einna mesta ferðámannaborg í heimi, en þó þykir óvenjulega gestlcvæmt þar i sumar, jafnvel svo, að fóllc er í vand-
ræðum með að fá inni. Ein aðalorsökin til þessa er heilaga árið, sem hófsi á páskum i vor. Vegna þess ferðast fjöldi sann-
trúaðra kaþólskra manna til Rómaborgar í pílagrímsferð, en eigi er þar með húið. Aðrir ferðamenn fjölmenna lika lil
Rómaborgar í ár vegna helga ársins, því að í ár verður hægt að sjá og skoða ýmislpgt og vera viðstaddur ýms hátíðahöld, sem
eigi er kostur á ella, — / þeim löndum, sem kaþólskir eru fámennir, svo sem á norðurlöndum hafa þeir slegið sjer saman
i hóp og er tekið á móti þeim sjerstaklega og landi þeirra lielgaðir þeir dagar er þeir standa við. Annar.s eru suðurgöngur
orðnar með öðru móti en þær voru í gamla daga, er hópar pílagrímanna fóru fótgangandi dag eftir dag og viku eftir viku
til að sjá páfann og hinn lieilaga stað og bæta fyrir sjer horfurnar á eilífri sáluhjálp. Nú ferðast þeir í járnbrautum og hafa
þægindi nútímans. — Hjer á myndinni að ofan sjest páfinn í hásæti sínu í Pjeturskirkjunni i Róm, viðstaddur fyrstu hátíðar-
athöfnina í tilefni af helga árinu, en alt í kringum hann sjást kardínádarnir.