Fálkinn - 02.09.1933, Side 3
F A I. K I N N
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Vith. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkvsrmdástj.: Sravar Iljaltested.
Aðatskrifstofa:
líanKaslræli 3, Reykjavik. Simi 2210.
'Ipin virka dagá kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa í Oslo:
Anton Schjöthsgade 14.
Ulaöið kemur út hvern laugardag.
Vskriflarverð er lcr. 1.70 á mánuði;
vr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Yllar áskriftanir greiðist fyrirfram.
[uglýsinyaverð: 20 aura millimeter
Herbertsprent, Bankastræti 3.
Skraddaraþankar.
Reiði.
hjer stoðar vitanlega ekkert að
segja, að þú skulir aldrei reiðast.
hað er árangurslaust að segja slíkt
við gagnnýtan mann. Því að
gremjan er eðlilegur logi, sem bloss-
ar upp við sum tækifæri og spring-
ur eins og bensín, sem logandi
eldspíta kemur að.
Þá er aðeins eitt ráð: að bíða!
Aðhafstu ekki neitt meðan reiði-
loginn er blossandi. Segðu ekkert
og dæmdu ekki fyr en blossinn er
sloknaður. Því að reiði er að jafn-
aði erting særðrar fordildar.
Við setjum okkar eigin meiningu
hátt og þegar einhver fyrirlítur
hana finst okkur eins og kastað
sje skarni á hvít föt. Við finnuni
mjög til þess, að aðrir eigi að hera
virðingu fyrir oss og þegar farið
er með okkur eins og við værum
einskisvirði, þá erum við reiðu-
búnir til alls til að halda okkur
uppi. Við reiðumst þegar stærilæti
okkar er misboðið. Reiðin er sjálfs-
þótti, sem kviknað hefir í.
Látum logann blossa upp ef
þörf er á, ragnið og brjótið ef ykk-
ur hægir við það. En farðu inn
og vertu einn á meðan þú nýtur
þessarar skemtunar. Lokaðu hurð-
inni á meðan á þvi stendur.
Skrifaðu aidrei brjef í reiði. Eða
ef þú mátt til, þá sendu það að
ininsta kosti ekki. Eftir nokkra
daga áttu miklu hægra með að ná
þjer niður á þeim, sem móðgaði
þig.
Gerðu ekki viðskifti þegar þú
ert reiður, því að þá er það særð-
ur sjálfsþótti sem ræður, og særð-
ur sjálfsþótti ræður jafnan illa.
Bíddu í nokkra daga og láttu vit-
ið en ekki tilfinningarnar ráða.
Sjertu reiður þá gefst best að
segja ekki eitt orð. Segir þú ekk-
ert þá veit hinn ekkert hvar hanii
hefir þig, og sá rólegi er ávalt bet-
ur settur en sá æsti. Jafnvel þó þú
ætlir að berja mann, er betra að
vera rólegur. Reiðin gerir höggin
sterkari, en rólegur maður hittir
betur.
Það sem þú hugsar í æsingi verð-
ur þú að borga með auðmýkt þeg-
ar þú stillist. Fátt gott er gert í
reiði, en allskonar afbrot, áflog,
morð og stríð, sem er summa allra
glæpa, eru gerð í reiði.
Fyrsti og stærsti lærdómurinn
er sá, að hafa vald yfir skapsmun-
um sínum. Og sje ljett að særa þig
þá mundu: að gera ekki neitt fyr
skapið er komið i samt lag.
Frank Crane.
Vegna þess hve trúmálahreyfing-
in „Christian Science" hefir fengið
öran vöxt i Bandaríkjunum, hefir
miðstöð þessarar hreyfingár i
Boston orðið of lítil, hvað húsa-
kynni snertir og er nú í ráði að
reisa nýja stórbyggingu fyrir skrif-
stofur og útgáfustarfsemi fjelagsskap
tirins, undir eins og auðið verður.
Myndin hjer að ofan er af þessari
áformuðu byggingu. Var þetta á-
kveðið nýlega á fundi fjelaganna
er að þessari hreyfingu standa. —-
Þar verða prentsmiðjur og skrif-
stofur blaðanna „The Christian
Science Monitor“, „The Christian
Science JournaI“ og „The Chrisian
Science Sentinel“ en auk þessara
blaða verða prentuð á þessum stað
öll þau smárit og bækur, sem fje-
lagsskapurinn gefur út.
Þessi nýja stórlbygging, sem verð-
ur með stærstu útgáfubyggingum
heimsins tekur yfir nálægt 58.000
ferfet og er áætlað að hún muni
kosta um 3 miljónir dollara. Er
slaðurinn fyrir bygginguna ákveð-
inn og yfirvöldin gera sitt til að
flýta fyrir framkvæmd hennar, m.
a. til þess að bæta úr atvinnuleysi-
inu.
Eins og sjá má af inyndinm
verður bygging þessi mishá. A þann
veginn, sem liggur út að aðalgöt-
unni verður húsið níu hæðir og
verða þar skrifstofur, en annars
verður húsið 4—5 hæða hátt. Bygg-
ingu hússins verður hagað þannig,
að ])að geti orðið samræmdur lið-
ur úr stórri heildbyggingu, sem
fjelagsskapurinn þarfnast fyrir að
byggja á komandi tið. Er þá gert
ráð fyrir að byggingarnar myndi
hvyrfingu, en í miðju verði hentugl
lúm fyrir kirkju. Byggingin er gerð
í itölskum renaissancestíl og neðsta
hæðin úr graníti, en þær efri úr
kalksteini.
Margar nýjungar í byggingarlisl
verða notaðar í þessu húsi, m. a.
hvað upphitun snertir. Maðurinn
sem gerl hefir teikningar að þessu
stórhýsi heitir Chester Lindsay
Churchll en verkfræðingafjelagið
Lookwood-Green í Boston byggir
það. — Núverandi húsakynni Chris-
tian Science, sem reist voru 1908
verða framvegis notuð sem skrif-
stofubygging fyrir söfnuð fjelagsins.
Frú Sigríður Bergþórsdóttir,
Marargötu 7, varð 50 ára 25.
f. m.
Tómas Jónsson, kaupmaður,
verður 50 ára 7. þ. m.
ÓKYRÐ í ESTLANDl.
Það hefir kvisast að stjórnin í
Estlandi væri í þann veginn að
lýsa landið í umsátursástandi. Er
sagt að nú þegar hafi verið fyrir-
skipuð ritskoðun á öllu prentuðu
ináli og að strangt eftirlit sje með
öllum fundarhöldum. Lögreglunni
er heimilt að hleypa upp fundum,
ef
ið að æsa till andúðar gegn stjórn-
inni. Ennfremur hefir fjelagsskap-
ur ung-socialista og tvö önnur fje-
lög, sem liafa tekið upp einkennis-
búning fyrir meðlimi sína, verið
bannað og sömuleiðis nokkur dag-
blöð. Myndin hjer að ofan er úr
sænsku götunni í höfuðstaðnmu
Reval, sem nú heitir Tallin.
í SVIFFLUGU YFIIl EYRARSUND.
Þann 12. f. m. lókst sænsk-aust-
urríska verkfræðingnum Spahr-
mann að komast á svifflugu yfir
sundið milli Malmö og Amager og
til baka aftur til Malmö eftir dá-
litla viðstöðu. Ljet. hann flugvjel
draga sig upp í 250 metra hæð en
sveif siðan sjálfur á hreyfillaus-
um vængjunum yfir sundið og gekk
prýðilega. Hjer er mynd af verk-
fræðingnum- i svifflugu sinni.
i