Fálkinn - 09.12.1933, Qupperneq 8
8
F Á L K I N N
Þrátt fyrir það þó að vegakerfi Þýska-
lands sje með þeim bestn og full-
komnustu i heiminum — enda er
landið þjettbýlt og yfirleitt vel fall-
ið til vegagerða — þykir nit nauð-
syn á að ráðast í stórfeldar vegabæt-
ur þar í landi. Þessi þörf er fram
komin við það, að bifreiðaferðir
hafa á síðusu árum færst þar mjög
í vöxt og bifreiðarnar unnið á í sam-
kepninni við járnbrautirnar og eru
þær þó mjög fullkomnar og jáirn-
brantanetin þjettriðin. í haust var
byrjað að leggja breiðaii og fullkom-
inn bifreiðaveg yfir landið endilangt,
meðfram lil þess að útvega mönnum
atvinnu. Mgndrn er fj'á Frankfurt
am Main og sýnir fyrstu sjö hundr-
uð vegavinnumennina leggja af stað
til vinnunnar með verkfæri sín.
Suzanne Lenglen, franska stúlkan sem í mörg ár hefir verið
heimsfræg fyrir lcunnáttu sína í tennis, hefir tekið að sjer að
sýna stúlkunum hvernig best sje að halda sjer grönnum.
í Berlín halda menn hátíðlegan „hjólreiðamannadaginn“ og
eru þá leiknar ýmsar listir á reiðhjólum. Myndin hjer að of-
an sýnir menn í „reiðhjóladansi" á Uhter den Linden.
liliilllllil
illli
i ‘Æ i .
ijjjShm Vv| ' llP ||Íf .
Fuglamerkingar fara nú mjög i vöxl
meðat flestra þjóða og þykja örugg
aðferð til þess að komast að ferðum
farfuglanna. Er það danskur maður,
sem mest hefir stutt að fuglamerk-
ingum á Norðurlöndum og nýlega
hefir Náttúrufræðifjelagið lijer haf-
ist handa handa um, að koma á
fuglamerkingum og hefir þegar hlot-
ist talsverður árangur af þeim. Hafa
ýmsir áhugasamir ungir menn, eink-
um skótapiltar lag drjúgan skerf tit
þessara mála, en Magnús Björnsson
náttúrufræðingur í Reykjavík hefir
á hendi skýrslusöfnunfna um þau
merki sem finnast. Fuglarnir eru
merktir með málmhring um annan
fótinn. Hjer á myndinni sjest hópur
af storkaungum, sem verið er að
merkja áður en hann leggur upp í
vetrarför sína suður í lönd.
r
1
1