Fálkinn


Fálkinn - 03.02.1934, Blaðsíða 5

Fálkinn - 03.02.1934, Blaðsíða 5
F Á L K I N N 5 móa og saí’naði þjóðsögum Eski- móa og gerði athuganir á þjóð- írú og forneskju, með svo góð- um árangri, að heimildir lians vörpuðu alveg nýju ljósi .yfir menningu þjóðarinnar. Hann Iiafði eftir veruna í Thuli, skor- að á dönsku stjórnina að stofna selslöð í Thule, sem væri i senn aðstoð norðurfara og verslunar- stöð ])ólar-eskimóanna, en því var ekki sint og fjekk því Ras- mussen sjálfur lijeraðið að ljeni hjá Dönum og rak þar verslun síðan, seldi veiðimömium vörur og keypti skinn. Árið 1912 gerði hann ásamt Freuchen út leið- angur lil Pearylands norður yfir jökulinn og til baka aftur. Tókst sú för ágætlega, þó að útþúnað- m allur væri eigi fullkomnari en sá, sem eskimóar hafa á slík- um ferðum. Var ferð þessi nefnd 1. Thuleleiðangurinn. Annan Tlndeleiðangurinn fór dr. Ras- mussen 1916, var liann fjölmenn ari og meðal þátttakenda voru dr. Lauge Kocli, sem nú er orð- inn frægur maður fyrir rann- sóknir sinar á Grændlandi og Svíinn dr. W,ulff, sem var hjer á ferðimn 1911 ásamt Albert Engström. Þessi ferð var farin með endilangri norðurströnd Grænlands og varð mesta glæfra- för. Þeir fjelagarnir sultu lieilt sumar og dr. Wull’f dó úr hungri. Höfðu þeir ætltð sjer að vera 5 mánuði í ferðinni en voru 25. Og eiginlega var þessi leiðangur fyrir utan verksvið Rasmussens. Hann var fyrst og fremst mann- fræðingur og menningarsögu- fræðingur, hann vildi kynnast sem flestum greinum Eskimóa og stöðum þeim, sem þeir höfðu áður lifað á, til þess að fá gögn lii yfirlits um flutning þeirra og menningu á ýmsum tímum, en hrein landkönnunarferö eins og norðurferðin 1916—T8 var hon- um allsendis óþörf. ög eftir þetta eru það ekki landfræðisrannsóknir heldur verkefnið: þjóðfræði Eskimóa, sem allur hugur lians lieinist að. Hann skoðaði fornleifar þeirra, hann safnar vísum og sögum og lögum, hann heimsækir liverja hygð og talar við alla. Hann inn- lifast eskimóum, þeir elska hann cins og goð og dáðst að honum, og enginn maður hefir verið jafn vinsæll í Grænlandi og liann fyr eða siðar. En honum er ekki nóg að lcynnast Eskimóunum í Græn- landi. Verkefnið var vaxið upp i heildarrannsókn á Eskimóum livar scm er í lieiminum og þess- vegna gerir liann út leiðangur þann lúnn mikla, sem liann varð frægastur fyrir: Sleðáferðina ve‘ iur yfir nyrstu jaðra Canada alt vcstur til Alaska, ogheimsæk- ir í þeirri ferð nálega alla núlif- andi Eskimóaflokka þar. Þessa ferð fer hann á árunum 1921— ’24 og hún varð til þess að afla homun heimsfrægðar. Eftir hana cr dr. Rasmussen jafnan talinn í fJokki helstu landkönmiða Dr. Knud Basmussen á banabeði heimsins. Hefir ítarleg bók í þremur binduin komið út um þá ferð, og ennþá er ekki lokið útgáfu vísindaritsins um ferðina, sem er afar yfirgripsmikið verk. Eftir þessa ferð dvaldi dr. Ras- mussen meira heima en áður og vann úr dagbókum sínum og söfnumfráCanadaferðiinnásamt fjélaga sínum dr. Therkel Math- iasen, Dvaldi hann þá lögum úti í sveit í litlu húsi er hanu :!ii þar, til þess að liafa sem best næði. En Grænland kallaði. Sein- ustu ár æfi sinnar var dr. Ras- nussen i Grænlandi á hverju sumri og vann aðallega að rann- sóknum á fornum bústöðum eskimóabygða, sem nú eru fyr- ir löngu komnar í eyði. Af þess- um rannsóknum ætlaði hann að komast að niðurstöðu um ferðir Eskimóa og þjóðflutninga, fyrst og fremst í Grænlandi, ef verða mætti, að af því mætti fá svar við hinni vandasömu spurningu um, livaðan Eskimóar sjeu i raun og veru komnir, svo og skyldleika þeirra við mongólska kynþáttinn. Jafnfram starfaði hann að kvikmyndatöku, sumar- ið 1932 með dr. Fanck er hann var að taka myndina „Grænland kallar!“ og í sumar að kvilc- myndinni „Bolos Bryllup“ sem hann tók fyrir þýskt fjelag. En cigi er nema hálfsögð saga, þó sagt sje ferðum dr. Rasmus- sens. Hann var eigi aðeins vís- indamaður lieldur einnig skáld og merkur rithöfundur. Fyrstu bækur Iians voru „Nye Menne- sker“, „Under Nordenvindens vöbe“ og „The People of the Polar North“ (um Eskimóana i Thule). Árið 1915 gaf liann út .Min Rejsedagbog" og „Foran Dagens Öje“. Frá ferðinni 1916 ’18 segir hann í „Grönland langs Polhavet“ og árangur af jóðsögusöfnun sinni birtir hann i „Mytlier og Sagn fra Grönland“ l>á koma hinar miklu bækur hans frá Ganadaferðinni o. fl. o. fl. Hann hefir skrifað fjölda if smásögum og lýsa þær eink- um lífi og húgsunarhætti Eski- móa. Nokkrar þeirra hafa birst í þessu blaði. Einnig hafa komið nokkrar bækur út eftir hann á grænlensku, en það mál skrifaði hann og lalaði til fulnustu. Ivnud ’asmussen segir aðdáanlega vel frá, sögur hans eru þrungnar af nnsýni og samúð og málið Ijetl og leikandi. Og eflaust yerður jiess langt að bíða, að nokkur rithöfundur kunni jafngóð skil á þvi, að lýsa Bskimóum eins og hann. Knud Rasmussen kom cins og áður er sagt til Islands sumarið sem hann varð stúdent og' má vera að hann hafi komið lijer áður, er liann fluttist sem ung- lingur til Danmerkur. Nokkrum Isinnum kom hann við hjer á landi á ferðum sínum, en vorið 1929 dvaldi hann lijer -í Reykja- vík í fyrirlestrarerindum við há- skólann, sendur af liáskóla Iíaup- mannahafnar. Var hann hjer þá nokkrar vikur. Fyrsti fyrirlest- urinn var haldinn hjer í Kaup- þingsalnum, en það kom á dag- inn, að þau húsakynni reyndust 3Í‘ lítil. Fólkið stóð í lmapp úti á gangi, því að allir vildu sjá Kuud Rasmussen, þennan fræga mann, sem liafði farið fyrir norðan alt Grænland og norðan alt Canada. Og fyrirlestrarnir voru fluttir í Nýja Bíó. En þeir sem í fyrsta skifti komu til að sjá manninn komu aftur til að heyra hann. Því að visu var gaman að sjá dr. Knud Rasmussen, þennan lág- vaxna, síkvikandi og iðandi inann, með hrafnsvarta hárið, hvassa nefið og snöru augun, en jiað var þó ennþá meira gaman að lieyra hann tala. Um manninn Knud Rasmus- sen mætti skrifa langt mál, því að þó að hann væri frægur sem ferðamaður og sem mesti eski- móa-þekkjandi heimsins um sína daga, þá var persónuleiki hans eigi síðri. Alþýðlegri mann getur ekki, meiri fjörkálfur var ekki til, og alúðlegri manni mun leit- un á. Það var ekki þur og þótta- legur vísindamaður, drembinn af heimsfrægðinni, sem liittist und- ir nafninu dr. Knud Rasmussen. Það var ungur maður sem virtist vera 15 árum yngri en hann var — iðandí af fjöri og ljómandi af vitsmunum og alúð. Enginn maður sem hefir upplif- að að tala við liann gleymir hon- um. Og allir bera lilýjan lmg til lians. Mjer er til efs að hann liafi áttl nokkurn óvin á æfi sinni. Hann kom sem snöggvast við hjer í Reykjavík á síðustu för sinni vestur síðastliðið sumar. ilafði komið með leiðangurs- skipi sínu „Nordstjernen“ hing- að en skifti hjer um skip og hjell áfram á báti sínum „Kivioq“ vestur til Angmagsalik, jiví að hann bjóst við að honum yrði greiðari leið gegnum ísinn en stærra skipinu. Það var sjáan- legt, að honum hafði farið aftur þau fjögur ár er liðin voru síð- an liann dvaldi hjer, enda hafði hann átt við veikindi að stríða á þvi tímahili. En samur var eld- móðurinn og fjörið eins og fyr. Hann kom hjer snemma dags. en sigldi nóttina eftir hraðbyri til Grænlands. Danska þjóðin er fálækari eft- ir fráfall dr. Knud Rásmussen því að slíkir menn sem liann fæðast sjaldnar en ei'nu sinni á öld. Hans verður ávalt minst sem hins mcrkasta Grænlands- postula sem uppi hefir verið, þvi að það er hann, sem áþreifanleg- ast hefir látið heiminn vita, að Grænland er lil og að Eskimóar eru til. Og livað þcir eru.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.