Fálkinn


Fálkinn - 16.06.1934, Page 3

Fálkinn - 16.06.1934, Page 3
F Á L K I N N 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmdastj.: SvavarHjaltested. AÖalskrifstofa: Bannastræti 3, Reykjavík. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7. Skrifstofa i Oslo: Anton Schjöthsgade 14. Blaðið kemur út hvern laugardag. Askriftarverð er kr. 1.70 á mánuði; kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftanir greiðist fyrirfram. AughjsingaverÖ: 20 aura millimeter Herbertsprent, Bankastræti 3. Skraddaraþankar. Furða og undrun, það er það sem jeg vil; ekki þekking og viðburð- ir — ekki það vissa; áhættuna — ekki ávinninginn. Öll þráum við það rómantiska hvort við erum ung eða gömul. Viðgangurinn (succes) hjer í heimi er raunalegur. Flestir sem hlotið hafa viðgang eru „þreyttir menn“. Þeir eru búnir. Þeir eru út- brunnir í fortíðinni. Það er aðeins í þeim dálítið af nútíð en ekkerl af framtíð. Eftirtektarverðu mennirnir eru þessir bjarteygu sein berjast. Þeir lil'a! Og áhugamálið rnikla hjer í heimi er að lifa. Þeir eru þrungnir af framtíð og manni finst þeir gefa fyrirheit. Og á hverurn degi gerist eitthvað óvænt. Hætta! Gott —■ menn yfirgefa liús og heimili til þess að leita uppi hættuna, ráðast á ísauðnir norður- pólsins og suðurpólsins, frumskóga Afriku og tinda Himalaya. Ilættan er eilift, lokkandi æfintýr. Það heillandi við skipið er, að það getur sokkið. Ilið ókunna er heimur sálarinnar, Hið kunna er leiðinlegt — þur staður. Við gríþum dagblaðið til þess að sjá hvað hefir gerst í gær. Á þeim skorpna skika sem við erum, hefir auðvitað ekki gerst neitt. Á hverj- um morgni spyrjum við: ,Hvað skeður næst?“ íþrótt tilverunnar er sú að lifa — bara að maður kunni leikregl- urnar. „Alt er undir því komið hvernig þú byrjar en ekki hvernig þú end- ar“, segir Robert Louis Stevenson, „það er ekki vissan eða árangurinn sem gefur okkur gæfutilfinninguna". Ef við eigum að deyja, þá lát- um oss deyja unga. Ekki úr clli heldur unga. Verið eins og börn. Varðveitið barnslundina. Guð orði okkur frá gamla og ráðsetla heiminum. Vertu barn og vertu altaf með í leikn- um. Ef ekki þá ertu glataður fyrir fult og alt. Því — án þess að þjer verðið eins og börn munuð þjer ekki koma í himnariki. Nei, gefið mjer það rómantiska. Jeg hata realisma! Erfikenningin er auðugri en sagan, því að sagan segir aðeins það sem gerðist en erfikenningin hvað hefði átt að gerast. Gefðu mjer rómantikina. Góða og þykka bók, einsog „Greifan af Monte Christo“, eða einhverja álíka Jarðskjálftarnir í Eyjafirði. Utsýni gfir kauptúnið i Dalvík. Laugardagurinn 2. júní 1934 verður dagur, seni lengi mun minst á Norðurlandi, einkum við Eyjafjörð miðjan, á sama hátl og Sunnlendingar austan fjalls muna 26. ágúst og 5. sept- ember 1896. Þó að jarðskjálft- inn, sem varð fyrir rjettum hálfum mánuði, sje að vísu lít- ill i samanburði við' jarðskjálft- ana 1896, þá er tjónið af honum þó svo tilfinnanlegt, að margir eiga um sárt að Itinda eftir, og sú geigvænlega tilfinning, sem greip fólkið á Dalvík og í Hrís- ey þegar kippurinn mikli kom eins og þrmna úr heiðskíru lofti, og gerði á svipstundu óbyggi- leg híbýli nær 50 fjölskyldna, mun hafa rist svo djúpt, að eigi firnist yfir hana i bráð. Jarðskjálftinn gerði ekki boð á undan sjer með smákippum eða hræringum. Fvrsti kippur- Hjer hefir gafl sprungið frá húsinu. inn sem reið vfir var sá sterk- asti, sem komið hefir í ölluum þessum hræringum, enda urðu áhrif hans svo mikil, að hús- næði meira en 300 majnna er ekki talið byggilegt el'tir. Og þó að víða liafi hrunið og laskast mannvirki í liinum síðari kipp- um næstu sólarliringa á cftir, þá mun J)að hafa verið stóri kipp- urinn l'yrsti, sem vcikti mót- stöðuafl húsanna og skenidi þau þó að þær skemdir kæniu ekki í ljós þegar í stað. Þessi fyrsta hræring reið yfir um miðjan dag, kl. þrjú kortjer yfir eilt. Dynur og drunur, eins og sambland brimorgs og þrumugnýs fvlti loftið, jörðin ljek á reiðskjálfi og hreyfing hennar var hvorttveggja i senn, cins og alda riði undir og að bylmingsliögg væri látið ríða að þunnu gólfi undir fótum manns. Og sú ósjálfráða eðlishvöt, sem vitlausa og öfgafulla, — góðan stól, og jeg skal segja: hvað gelur verið fullkomnara? Getur maður farið vit- laust að með undursamlegra móti? I'rank Crane. jafnvel er til líjá þeim, sem aldrei liafa heyrt jarðskjálfta getið, hvað þá reynt hann, rjeði gerðum fólksins. Allra hugsun var sú sama: að komast sem fljótast út — út undir himin- hvolfið, sem aldrei hrynur, hvað sem á gengur. — Það má heita hin mesta mildi, að jarðskjálft- inn varð að degi til, því að sennilegt er, að ef hann hefði orðið að nóttu til, mundi sú harmsaga hafa fyígt þessum at- burði sem verri er nokkru fjár- munatjóni: líftjón og limlest- ing fjölda fólks. Það er í raun og veru undravert, þegar mað- ur íhugar spellvirki þau, sem reginöflin gerðu á mannaverk- unum nvrðra fyrir hálfum mán- uði, að þar skyldi ekkert manns- Iíf týnast og aðeins ein mann- eskja slasast, að þvj er frjett er. Hið eiginlega jarðskjálfta- svæði, þar sem hræringarnar náðu bolmagni til að sprengja sundur og fella mannvirki, var mjög lítið um sig, í samanburði við það, sem títt er um hina meiri jarðskjálfta lijer á landi. Það nær aðeins um neðanverð- an Svarfaðardal og Árskóga- strönd yfir fjörðinn og út eftir honum og austur yfir hann til Grenivíkur. Það er þessi spilda, sem harðast hefir verið leikinn. En vitanlega varð „útvarp“ jarðskjálftans margfalt umfangs meira. Tilfinnanlegar hræringar urðu meðfram öllum Eyjafirði og langar leiðir austur og vesl- ur. A Siglufirði kvað jarðskjálft- inn hafa verið allsnarpur og mun meiri en t. d. á Akureyri og luisaskemdir urðu á bæjum með norðanverðum firðinum að austan, alt frá Grenivík, en þar varð allmikið tjón, þó eigi jafn- aðist það við Ilrisey eða Dalvik. Snörp hreyfing varð alla leið vestur að Húnaflóa, án þess að tjón yrði á þeim slóðum, og austur á bóginn voru hræringar svo sterkar, að bær fjell á Breiðumýri. Utan þessa stærra svæðis fundust hreyfingar á Mikið skemt hús. Gaflinn hruninn, hliðin sprungin svo að hún rjett hangir uppi.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.