Fálkinn - 09.11.1935, Blaðsíða 11
F Á L K I N N
11
VMO/VV
U/fiHbURMIR
Töfrabrögð með Ijósmyndavjel.
Þau ykkar, sem oft hafa komið
á kvikmyndahús, hafið eflaust sjeð
myndir, þar sem sama persónan
sjest samtímis á tjaldinu í tveimur
hlutverkum. Nú skulum við reyna
að leika sömu listina með algengri
ljósmyndavjel, og sjá hvernig okk-
ur tekst. Til þess að geta gert þetta
þurfum við að búa okkur til
hálflok til þess að hafa fyrir ljós-
opinu á vjelinni svo að við getum
tekið tvær myndir á sömu plötuna.
En þið hafið sjálfsagt reynt, að þeg-
ar maður tekur í ágáti tvær myndir
á sömu plöluna þá fær maður tvær
myndir hvora ofan í aðra, svo að
það verður hvorki fugl eða fiskur.
Hvernig lokifi er gert og sett á.
Við klippum ræmu úr þunnum
pappa, um það bil 5 millimetra
breiða og limum hana saman í end-
ana í hring, sem á að falla utan
um málmhringinn á ljósopinu. Á
þennan pappahring límum við svo
hálfmánaskifu úr pappa, þannig að
hún byrgi fyrir dálítið meira en
hálft opið á hringnum, eða að
punktalínunni, sem sýnd er á (1). Á
(II) er sýnt hvernig ljósbyrgisskífan
er klipt út„ með þremur tökkum, sem
beygðir eru aftur og límdir á pappa-
hringinn, svo að skifan setji föst.
Sldfubrúnin á að ná rjett út fyrir
hringinn, og verður vel að gæta
þess, að enginn birta komist inn i
ijósopið meðfram hringnum. Þetta
lok er málað svart með teiknibleki,
bæði að utan og innan og siðan er
útbúnaðurinn festur í ljósopið, þann-
ig að ekki komist birta nema á
hálfa plötuna, þegar lokarinn er
opnaður.
Áður en myndirnar eru teknar
verður nákvæmlega að reikna út
allar afstöður. Svæðinu, sem mynd-
in tekur yfir, er skift í tvo reiti og
þeir, sem taka skal myndina af,
verða að vita hvar markalínan er
milli þeirra. Og svo verður að stilla
vjelina á ákveðnum stað, þannig að
hún sje ekki hreyfð milli þess, að
fyrri og seinni myndin er tekin.
Persónan, sem ætlar að láta taka
myndirnar af sjer, verður að standa
svo langt til hliðar, að myndin komi
út á þeim hluta plötunnar, sem fyrst
er lýstur. Þegar þvi er lokið, er
skífunni snúið í hálfhring, þannig
ag þegar lokarinn er opnaður næst.
falli birtan á hinn helming plötunn-
ar. Og nú flytur persónan sig hinu-
megin á „leiksviðið" og maður lýsir
myndina á ný.
Þið getið t. d. reynt að ljósmynda
fjelaga ykkar, sem er að aka sjálf-
um sjer á hjólbörum. Á fyrri mynd-
inni stendur hann boginn og held-
ur um kjálkana á hjólbörunum, en
á síðari upptökunni hefir hann sest
í hjólbörurnar, sem vitanlega ekki
má hreyfa á milli þess að myndirn-
ar eru teknar. — Það er líklegt, að
ykkur mistakist fyrstu tilraunirnar.
En smámsaman lærið þið galdurinn
og þá spái jeg að þið hafið gaman
af myndunum.
Flugmennirnir Smith og Piel
leggja upp frá Róm í flug kringum
jörðina, hvor í sinni flugvjel og
flýgur annar í austur og hinn i
vestur. Þeir hafa veðjað um hvor
þeirra komist fyrstur hringinn, og
Smith, sem flýgur til vesturs, þykist
viss um að vinna, því að honum
honum hefir reiknast svo, að hann
græði 24 tíma á sinni leið, en að
Piel tapi 24 tímum, því að hann
fljúgi á móti sólarganginum. En sú
verður raunin á, að vjelarnar, sem
fljúga með sama hraða, koma að
kaila sarntímis til Róm.
Smith hafði nefnilega, þrátt fyrir
alla greindina, gleymt að taka tillit
til dagsetningarlínunnar, sem þeir
urðu báðir að fara yfir á hálfnuaðri
leið. Og við hana tapaði Smith sól-
arhringnum en Piel vann hann.
Dagsetningarlínan gengur meðfram
180, lengdarbaug að mestu leyti.
LEIKUR í FJÖRUNNI.
Ef þið hafið fótlcnött og nokkurra
metra langt svæði, getið þið farið
í skemtilegan leik i fjörusandinum.
Þið bindið annan enda snærisins í
eitt af reimargötunum á fótknettin-
um. Gerið svo hring í sandinn jafn-
stóran því, sem hringferill boltans
hringnum og sveiflar honum í hring,
verður. Einn stendur í miðjum
en hinir standa innan hringsins og
verða að gæta þess, að hoppa upp í
hvert skifti sem knötturinn nálgast,
því að annars hittir snærið lappirn-
ar. Sá sem lengst getur varist snær-
inu vinnur.
■oúitnx:v::v
- KRéiW^;
'ÍRKA
1&UFT
'fWmmíW
Notið
til að hreinsa
potta og pönnur.
Vim gerir óhrein eldhúsáhöld
eins og ný aftur —gljáandi og
fögur. Vim hefir tvöfaldan kraft,
að því leyti, að það ekki ein-
ungis losar óhreinindin, heldur
tekur þau einnig af. Vim hreins-
ar eki einungis eldliúsáliöld,
heldur er það ákjósanlegt á trje,
málningu, stein og járnverkfæri.
Ekki þarf anna ðen nudda hlut- V '^Ss^^vat
ina vel með rakri tusku með
Vim í, þá verður yfirborðið
blettalaust og hreint. Látið Vim
hjálpa yður við liúsverkin.
Þetta eru hin
ar ágætu nýju
umbúðir nm
Vim. Gæfii
þess breijtast
aldrei —
sama vara í öllum dósunum. Vim hefir regnst ákjósanlegast efni
til að hreisna hvað sem er i húsinu. Varið yður á eftirlíkingum
M<39I-3QIC
UVER BROTHERS UMITEP, PORT SUNÚGHT, ENCUND
BWB1:
S«*“i
wvfiie i
HIUL£R'
TEDY OG FREDDY.
1. Teddy liggur í varp
anum og les blað-
ið sitt.
4. Vinirnir urðu ang-
urværir yfir því
því, hvernig komið
var.
2. Eu Freddy er hnar-
reistur að klippa
varpann.
5. Freddy huggar Ted-
dy, eins vel og hann
getur.
3. Æ, Æ, Æ! Nú lenti
sláttuvjelin í loð-
feldinum hans Ted-
dy.
6'. Þeir ná i hvítu vetr
arkápnna og Teddy
er orðinn ísbjörn.
Á VEGAMÓTUM. Frh. af bls. 7.
þig eins og þú ert. Jeg skal aldrei
verða óánægð framar. Jeg skal var-
ast að þrá það, sem jeg get ekki
fengið“.
„Já, en þú skalt fá það! David ók
bílnum út á vegbrúnina og dró upp
úr vasa sínum umslagið með farmið-
unum og rjetti lienni sigurhrósandi.
„Líttu á hvað er þarna“.
Milly leit á innihaldið og stundi
hátt.
„Við förum á mánudaginn. svo að
þú verður að hafa hraðan á“.
Milly horfði á hann og gleðin
ljómaði úr augum hennar. Og liann
vissi ekki hvort hljóðið sein hún
gaf frá sjer var gleðióp eða grátur,
■ svo mikið er víst að hún fleygði
sjer um hálsinn á honum.
Kirkjuklukka i grendinni byrjaði
að slá. David taldi slögin. Klukkan
var tólf á miðnætti. Nýr dagur var
byrjaður. David horfði vongóður
inn i framtíðina. Nýr dagur, þús-
undir af nýjum dögum. Og hann var
viðbúinn að taka á móti þeim.