Fálkinn


Fálkinn - 08.08.1936, Qupperneq 4

Fálkinn - 08.08.1936, Qupperneq 4
4 i F Á L K I N N Olympíu- leikarnir í Berlín. Hálfu ári eftir að vetrarleikunum i Garmisch-Partenkirchen lauk, hinu glæsilegasta vetraríþróttamóti, sem sögur fara af, hefjast nu í Berlin Olympíuleikar í næstum því öllum íþróttagreinum — olympíuleikar árs- ins 1936. Á laugardaginh var klukkan fjögur kom síoasti hlauparinn úr hinu stórfenglega hoShlaupi, sem hyrjaði í borginni Olympía í Grikk- landi og náði yfir sjö lönd í Evrópu, inn á Olympíuleikvöllinn fyrir vest- an Berlín. MeS hlysi sínu tendraði hann Olympíueldinn, sem nú á að loga í sextán daga til merkis um að nú sameinisl úrvalsíþróttamenn frá 53 þjóðum, til þess að keppa í harðri, en þó heiðarlegri og bróðurlegri sam- kepni um sigurinn í hinum ýmsu olympísku íþróttagreinum. Þá var Olympíuklukkunni hringt í fyrsta sinn. Hún hangir i 76 metra háum turni, en efst á honum logar Olympíueldurinn. kasti, kúluvarpi, sleggjukasti og tug- þraut. Konur keppa i 100 mtr. lilaupi 80 mtr. grindahlaupi, liástökki, kringlukasti og spjótkasti. Ennfrem- ur keppa karlmenn í 4 x 100 mtr. og 4 x 400 mtr. boðhlaupi og konur í 4x100 mtr. boðhlaupi. ,,Haus des deutschen Sports“ á ríkisíþróttavéilinum, aðalsetur Olympíu nefndar og íþróttaleifftoga Þjóðverja. Þá gengu allir þátttakendur í fylkt- um liðum inn á leikvöllinn, hver þjóð fyrir sig með fánabera i broddi fylkingar. Heiðurskotum var skotið og Olympíufáninn dreginn á stöng. For- maður Olumpípnefndar þessa árs reis úr sæti og bað Adolf Hitler að setja mótið. Þegar því var lokið voru jmsundir bréfdúfna látnar fljúga, til þess að bera boðskap um byrjun ltikanna um alla Evrópu. Olympíu- ltátíðasöngur var leikinn og sunginn. Þá unnu allir keppendur hin'i Olympíska eið, sem hljóðar þannig: „Vér strengjum þess heit, að vera heiðarlegir keppendur í hinum olympisku leikum og gæta allra íþróttalaga og reglna. Vér tökum þátt í leikunum í sönnum íþrótta- anda, þjóðum vorum til heiðurs og iþróttunum til frama“. Á sunnudaginn var, 2. ágúst, hófst samkepnin, sem fer fram á Olympíu- Itikvellinum (,,Reichssportfeld“). Karimenn keppa í eftirfarandi iþróttagreinum: 100, 200, 400, 800, 1500, 5.000, 10.000 mtr. hlaupi og maraþonhlaupi, í 3000 mtr. hindrun- arhlaupi, í 110 og 400 mtr. grinda- lilaupi og 50 km. göngu, ennfremur í hástökki, langstökki, þrístökki, stangarstökki, spjótkasti, kringlu- Söniú dagana ög kept er í frjáls- um íþróttum á OÍympíuléikvellinum, fer fram glíma i íþróttahöllinni (,DeutschlandhalIe“) og fimtarþraut fyrir liðsforingja á ýmsum íþrótta- völlum þýzka hersins. í þessari fimtarþraut verður nú kept í þriðja sinn, og nær hún yfir hlaup, sund, skammbyssuskotfimi og tvennskonar kappreiðar. í vikuni 2.—8. ágúst hófst einn- ig kepni í eftirfarandi íþróttagrein- um: skylmingar (í leikfimissölum Olympíuleikvangsins), hockey (á Olympíuleikvanginum), lyftingar og hnefaleikar (i „Deutsclilandhalle), knattspyrna og handbolti (á ýmsum leikv' 'um Berlínar og Olympíuleik- veJlii n), byssuskotfimi (í Wannsee hjá Pctsdam), kappreiðar á reiðhjól- um (á sérstakri braut), sund, dýf- ingar og sundknattleikur (i Schwimmstadion Olympíuleikvallar- ins). í næstu viku byrjar leikfimi (á Dietrich-Eckart leiksviði við Olympíuleikvöllinn). Frá 2.—9. ágúst er kept til úrslita í frjálsum íþróttum, glimu, fimtar- þraut liðsforingja, lyftingum, polo, skotfimi og kappreiðum á reiðhjól- uni. Úrslitakeppnir í öllum öðrum íþróttagreinum eru háðar í annari viku leikanna, frá 10.—16. ágúst. í öllum íþróttagreinum, sem að ofan getur, er kept á Olympíuleik- véllinum „Reichssportfeld“ eða í nánd við hann. Ennfremur ber að geta kappróðranna sem fara fram hjá Griinau fyrir austan Berlín á Nokkur hluti áhorfendasvæðisins. ánni Spree, og kappsiglinganna sem fara fram á Kielar-firðinum. Kapp- siglingarnar og kappróðrarnir ná yfir báðar vikurnar. Öllum samkepnunum í Berlin verð- ur hagað þannig, að hinar mikilvæg- ustu falli aldrei á sama dag eða tuna. Sjerstaklega gildir þetta þó fyrir lokasamkepnirnar í aðalíþróttar greinunum, eins og t. d. frjálsum íþróttum, knattspyrnu, handbolta og sundi. Samkepnum í öllum greinum verður lokið fyrir hádegi sunnudag- inn 16. ágúst en klukkan 3. þann dag fer fram lokahátiðin á Olympiu- leikvellinum. Verða þá vinningarnir afhentir, eldurinn slöktur og Olympiufáninn dreginn niður og fenginn í hendur þeirrar þjóðar, sem á að sjá um næstu leika árið 1940. Auk þeirra samkepna, sem nú hefir verið talað um, rná finna i leikskrá Olympíuleikanna fjölda ann- arra atriða, m. a. svifflug á flugvell- inum „Tempelhof“, leikfimis-, dans-, og listaverkasýningar og hátíðarleik, sem var sýndur 1. ágúst kl. 9 um kvöldið. í þessum Olyinpípleik tóku þátt um 12.000 fullorðnir og börn. Hann á að sýna — samkvæmt hugmynd- um de Caubertin barón, sem endur- vakti Olyinpiuleikana árið 1896 — leiki barna og íþröttakepni karla og kvenna. Leiknum er skifl í sex T. v. Þátttakandi i leikfimi: Sandrock, heimsmeistari stúdenta. — T. h. „Olympiuhöfnin“ í Kiel, byrjun og mark kappsiglanna i Kielarfirffinum.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.