Fálkinn


Fálkinn - 02.01.1937, Síða 12

Fálkinn - 02.01.1937, Síða 12
12 F Á L K 1 N N DASHIELL HAMMET: Granni maðurinn. Leynilögreglusaga. liann vilji halda leyndu — og seinna fær hann staðfest af Júlíu Wolf, að þetta er rjett — og hann álítur að W.ynaríd hafi fal- ið sig einhversstaðar upp i Adirondaek-fjöll- unum. En síðar þegar hann spyr hana á nýj- an Ieik, segist hún ekki vita deili á þessu fremur en sjálfur hann“. „Vissi hún hvað þessi uppgötvun gekk út á ?“ Guild hristi höfuðið. „Ekki eftir því sem Macaulay segir, nema að sennilega þurfi vjelar til að starfa að þessari uppgötvun, eða eitlhvað annað, sem kosti peninga. Því að þella þóttist Macaulay geta markað af þeim ráðstöfunum, sem Wynand gerði áður en hann fór. Hann gerði sem sje ráðstafan- ir lil þess, að Macaulay hefði aðgang að hlutabrjefum hans og skuldahrjefum og öðrum verðbrjefum óg gæti komið þeim í peninga, þegar þess væri þörf; ennfremur fól hann Macaulay umsjón með hankavið- skiftum sínum og gaf lionum umboð til þess, að gera alt í sínu nafni“. „Þjer eigið við: lögmætt fullnaðarumboð?“ „Einmitt. Og þegar Wynand vildi fá pen- inga, áttu þeir að sendast í reiðu fje“. „Hann hefir altaf verið mesti kenjakopp- ur“, sagði jeg. „Já, það segja allir, sem hafa þekt hann. í þessu tilfelli virðist tilgangur hans hafa verið sá, að enginn þarna upp frá, sem hann var, skyldi geta rakið slóð lians á ávisun- um, og að enginn á þeim sama stað, sem hann hjelt sig á, gæti vitað, að hann væri Wynand. Þessvegna var það lika, sem hann tók ckki stúlkuna með sjer — hánn sagði henni ekki einu sinni hvar hann yrði, ef hún hefir þá sagt satt — og hann ljet skegg- ið vaxa“. Guild strauk ósýnilega skeggið sitt með vinstri hendinni. „Þarna uppfrá“, át jeg eftir honum, „Þjcr vilið þá, að hann var uppi í Adirondack- fjöllum?" Guild ypti öxlum. „Jeg kemsl svo að orði, vegna þess að jeg finn það á mjer. Við telj- um hann hafa verið upp í fjöllum, en skilj- anlega vitum við það ekki. Ilann gæti vit- anlega hafa farið til Ástralíu“. „Og hvað vildi Wynand fá mikla ])eninga i reiðu fje?“ „Það get jeg ekki sagt með vissu“. Ilann tók hrúgu af skítugum og velktum snepl- um með hundseyrum upp úr vasa sínum, fann umslag sem var sinu skítugra og stakk svo hinu í vasann. „Daginn eftir að hann hafði talað við Macaulay, tók hann sjálfur 5000 í peningum út úr hankanum. Hinn 28. — þetta er í október, skiljið þjer — varð Macaulay að taka út önnur 5000 lianda hon- um, og 2500 þann 6. nóvember og 1000 þann fimtánda og 7500 þann þrítugasta og 1500 þann sjötta — það hlýtfjr að vera desember -— og þúsund þann átjáanda og 5000 þann 22. — en það er dagurinn áður en liún var myrt“............................... „Þetta verða nærri því 30.000 dollarar“, sagði jeg, „hann hlýtur að hafa átt laglega inneign i bankanum“. „28.500 svo að maður sje nákvæmur“. Guild stakk umslaginu i vasa sinn aftur. „En þjer skiljið, að þetla var ekki alt til í bankanum. Eftir fyrstu úttektina varð Mac- aulay í sifellu að selja verðbrjef til þess að afla peninga". Hann leitaði aftur í vasan- um. „Jeg liefi skrá yfir verðbrjefin, sem hann seldi, ef yður langar lil að sjá hana“. „Jeg sagði að það skifti engu máli. „En hvernig sendi liann Wynand iieningana?11 „Wynand skrifaði stúlkunni þegar hann þurfti peninga, og liún fjekk þá lijá Macau- lay. Hann hefir kvittanir frá lienni“. „Og livernig kom liún þeim til Wynand?“ Guild liristi höfuðið. Hún sagði Macaulay, að hún hitti hann á ákveðnum stöðum, en liann lieldur, að hún liafi vitað hvar liann hjelt sig, þó að hún þrætti altaf fyrir það“. „Og máske hefir hún haft þessi 5000 á sjer þegar hún var myrt?“ „Þá væri hjer um ránmorð að ræða, nema því aðeins að —“ Guild hafði pírt gráu augunum, svo að varla sást i þau — „hann hafi drepið liana, þegar hann kom að sækja peningana“. „Eða því aðeins“, sagði jeg, „að einhver alt annar maður, sem drap hana af all öðr- um ástæðum, liafi fundið peningana lijá henni og þótt eins hyggilegt, að hirða þá í sömu ferðinni“. „Auðvitað“, sagði Guild, „annað eins hel’ir nú heyrst. Það hefir komið fyrir, að sá fyrsli 'sem kemur að líki, stingur hinu eða þessu á sig, áður en hann gerir aðvart“. Hann hóf hnefann á loft. „Auðvitað, livað frú Jorgen- sen snerlir — fullkomna hefðarkonu — jeg vona,að yður detti ekki i hug, að jeg —“ „Hún var auk þess ekki ein — var það?“ „Jú, aðeins augnablik. Síminn í ibúðinni var bilaður og lyftudrengurinn fór ofan með umsjónarmanninn, svo að hann gæti hringt af skrifstofunni. En þjer verðið að skilja, að það er fjarri mjer að staðhæfa, að frú Jorg- ensen hafi aðliafst nokkuð það sem ólöglegt var. Það er óliugsandi að dæma eins og hún 44 „Hvað var þá að simanum?" spurði jeg. „Ja“, sagði Guild, „jeg veit ekki hVað segja skal. „Síminn hafði . .. .“ Hann þagnaði er þjónninn kom inn í sama bili til þess að dúka borðið. „Hvað símann snerti“, sagði Guild, þegar við höfðum sest að snæðingi, „þá var ekki gott að átta sig á honum. Það hafði farið kúla gegnum heyrnarlólið“. „Af tilviljun — eða —?“ „Já, það get jeg auðvitað spurt um. Kúlan var auðvitað úr sömu skammbyssunni og hinar fjórar, sem liöfðu hitt hana; en hvort simtólið hefir verið hitt með vilja, skal jeg ekki segja. Mjer finst það vera nokkuð liá- vaðasöm aðferð til þess að fá síma til að þegja“. „Vel á minst“, sagði jeg, „heyrði enginn jjessa skothríð? Kal. 32 er að vísu ekki veiði- hyssa, en samt finst mjer að einhver hefði átt að geta heyrt hyellina". „Já, auðvitað“, sagði hann fyrirlitlega, „húsið er troðfult af fólki sein heldur núna eftir á, að það hafi heyrt allan skrambann, en þá ljet það sig þetla ekki neinu skifta, og því fer fjarri, að því heri saman um það, sem það þykist hafa heyrt“. „Svona er það“. Ilann hámaði í sig mai inn. „Hvað var jeg nú að tala um? Jú, já, það.var Wynand. Hann sagði upp íhúðinni þegar hann fór og kom innbúinu sínu fyrir til geymslu. Við höfum grannskoðað það alt, innbúið meina jeg, en ekki fundið snefil sem henti á hvert liann fór, eða hvað hann ætl- aði að sýsla, en af því hefðum við getað haft einhvern stuðning. Ekki gekk okkuc betur í raimsóknarstofunni lians ó 1. Averiue. Hún hefir verið læst síðan hann fór, að öðru leyti en því, að liann var þar einn lil tvo tíma fáum sinnum í viku, til þess að lesa hrjef og svara, og því um líkt. Síðan liöfum við nú tekið við hrjefum hans, en siðan hún var skotin hefir ekkert verið á þeim að græða“. Hann brosti til Noru. „Yður hlýtur að leiðasl þetta raus, frú Cliarles". „Leiðast?“ sagði hún forviða. „Jeg er eins og á nólum“. „Kvenfólkið er vant að vilja heyra meira af viðhurðum" , sagði hann ög hóstaði. „Svona eitthvað sem bragð er að. Jæja en útkoman er sú, að við fundum ekkert, sem benti til, hvar hann væri niðurkominn. Við höfum aðeins komist að því, að hanrí hringdi til Macaulay á föstudaginn og mælti sjer mót við hanrí á almenningnum á Hotel Plaza. Macaulay var ekki á skrifstofunni, svo að liann ljet liggja boð til hans“. „Macaulay var hjerna þá“, sagði jeg, „að borða hádegisverð“. „Hann liefir sagt mjer það. Nú, Macaulay komst ekki á Hotel Plaza fyr en klukkan undir þrjú, og þar var þá enginn Wynand, og Wynand átli ekki heima á gistihúsinu. Hann reyndi að lýsa útliti hans, hæði með skegg. og skegglausum, en enginn af heima- fólkinu á Hotel Plaza mintist þess að hafa sjeð hann. Hann hringdi á skrifstofu sína, en Wynand liafði ekki hringt þangað aftur. Svo hringdi hann til Júlíu Wiolf, og hún sagðist ekki liafa hugmynd um, að Wyn- and væri í bænum, en það heldur hann að sje lygi, því að liann hafði afhent henni 5000 dollara handa Wynand daginn áður og gekk að því vísu, að Wynand hefði farið til hennar að sækja þá, en svo sagði liann, að það kæmi i sama stað niður og hringdi af og l'ór að eiga við málið“. „Hvaða mól var það?“ Guild hælti að tyggja stóran bita, sem hann hafði nýlega innbyrt. „Ja, það væri fróðlegt að vita það. Jeg reyni að komasl að því. Það lá ekkert fyrir, sem gæti benl á hann, svo að við skiftum okkur ekkert af því, en það skaðar aldrei að fá að vita hverjir hafa fjarverusönnun og hverir ekki“. „Jeg hristi höfuðið til svars þeirri spurn- ingu, sem hann liafði alls ekki borið upp. „Jeg gat lieldur ekki komið auga á neitt, nema það eitt, að hann er málaflutnings- maður Wynands og veit líklega meira en hann segir“. „Auðvitað, það er augljóst. Það er nú einu sinni það, sem fólkið notar lögfræðingana til. En svo er það stúlkan sjálf. Þegar öll kurl koma til grafar getur vel verið, að hún hafi elcki lieitið .Túlía Wolf. Við höfum ekki komist fyrir það ennþá, en svo mikið liöfum við sannfrjett um liana, að hún lief- ír eigi verið kvenmaður, sem liægt væri að búast við, að nokkur maður tryði fyrir pen- ingum — ef hann hefir þá vitað deili á henni.“ „Hefir hún sætt refsingu?“

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.