Fálkinn


Fálkinn - 02.01.1937, Page 14

Fálkinn - 02.01.1937, Page 14
14 F Á L K I N N Undirbúningur undir brúðkaup Júlíönu Hollandsprinsessu er nú i fullum gangi í Haag. Brúðhjónin eiga að aka til kirkjunnar í hinum fræga „gullvagni", sem annars er ekki not- aður af neinum öðrum en Vilhelmínu drotningu, þegar hún ekur á þing- fundi. Önnur mynd: Alkunnur rúmenskur glæpamaður, Coroui að nafni, sem liefir óteljandi glæpi á samviskunni, sjest hjer á- samt nokkurum samsekum fjelögum sinum, þar sem verið er að flytja þá til rjettarsalsins í Bacau. Þorpararn- ir eru fjötraðir á höndum og fótum. Þriðja mynd: Þolinmóður Englendingur, H. E. Offord, sem efast ekki um það, að krýningarhátíðin muni haldin á sumri komanda, hefir búið til mynd af krýningarskrúðgöngunni, eins og hann hugsar sjer hana. í baksýn sjest Westminster Abbey. María ekkjudrotning ásamt hertoga- frúnni af York og litlu dóttur henn- ar, Margrete Rose. Myndin er tekin er þær eru úti að aka í London. Frú Tlielma Furness, sem varð til þess að kynna þau Játvarð Bretakon- ung og frú Simpson, er komin ti) Englands frá New York og sjest hún lijer á myndinni er hún stígur á land úr skipinu „Queen Mary“.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.