Fálkinn - 06.03.1937, Blaðsíða 1
Hekla með hettu.
Hekla getur verið ertin við gesti sína. Margir liafa þá sögu að segja, að hafa farið austur að Galtalæk í þeim erindum að ganga
á Heklu, en þá hefir hún steypt yfir sig „hettunni" — þokuhettunni alræmdu, niður á herðar, svo að ferðin hefði orðið fyrir
gíg. Því að það er ekkert gaman að standa „á tindi Heklu hám“ og sjá ekki nema nokkrar lengdir sínar fyrir þoku. Hjer á
myndinni er ekki þoka nema rjett á kollinum. Beint upp af herðakambinum á hestinum sem næstur er, sjer á dökkan díl
upp við þokuna á toppinum. Það er Sprengibrekka, sem er erfiðasti áfanginn á göngunni upp á tindinn. — Myndin er tekin
J'rá Galtalæk af Kr. Jánssyni.