Fálkinn - 06.03.1937, Blaðsíða 14
14
F Á L K I N N
MUSSOLINI ÞAKKAÐ. ar, á fundi i Rom, Mussolini fyrir búnaðinum í Abessiníu.
Höfðingi einn frá Abessiníu þakk- aðsioð þá, er hann hefir veitt land-
BETTLARAR ERU
fjölmennari í Indlandi en i nokkru
öðru landi veraldar. Myndin sýnir
einn þeirra, sem þessa atvinnu stunda
á götunum í Matras. Hann hefir
klukkuspil í annari hendinni en sjóð-
inn í hinni. Betlurunum gefst lítið
því að þeir eru ,svo margir, en þeir
þurfa heldur ekki mikið til þess að
draga fram Iífið, því að hrísgrjónin
eru ódýr, 'og á þeim lifa þeir mest.
stór hlustunaráhöld, sem notuð eru
til að heyra, hvort flugvjelar óvin
Fyrir nokkru flutti 17 ára gamall
enskur sjómaður fyrirlestur um
ferðalag, sem hann hafði farið kring-
um hnöttinn á enska seglskipinu
„Joseph Conrad“. Var hann tvö ár í
ferðinni. Þeir komu til Malessa á
eyjunni Tawi Tawi, sem er ein af
Filippseyjunum og gengu þar í land
og voru svo hepnir að komast þar á
dansleik, sem hinn innfæddi höfð-
ingi þar á eyjunni hjelt. Pilturinn
fór um borð um kvöldið og sofnaði,
en morguninn eftir kom höfðinginn
um borð og gerði boð fyrir sjómann-
inn. Krafðist hann þess í fullri al-
vöru að sjómaðurinn gengi að eiga
dóttur hans 13 ára gamla prinsessu.
Hafði höfðingjanum litist svo vel á
piltinn, að hann vildi fá hann fyrir
tengdason hvað sem það kostaði.
„EYRA HERSINS".
Herstjórnin i Japan skoðar geisi-
Lögreglan i Saloniki hefir tekið
fastan mann einn að nafni Peter
Sakis, sem hefir haft fje af 130 ung-
um stúlkum, sem hann hafði „trú-
lofast“. í rjettinum lagði Sakis fram
spjaldskrá yfir allar stúlkurnar.
----o----
Síðasta nýjungin i kvenfatatískunni
héitir „half and half“. Kjóllinn á að
vera með tveimur gagnstæðum litum
og er mest notað svart og hvítt. Kjóll-
inn er t. d. hafður svartur að fram-
an og hvítur að aftan, eða svartur
að ofan og hvítur að neðan.
-----x----
Enski prófessorinn Hill Kennedy
liefir látið í ljós þá skoðun sína, að
þess muni verða skamt að bíða, að
menn geti flogið með 1200 km. hraða
á klukkustund.
anna sjeu í nánd.
En sjómaðurinn kunni ekki gotl að
þiggja og hafnaði boðinu.
---x----
í Wlodzimiera Wolynski í austan-
verðu Póllandi voru nýlega gefin
saman lijón, Liya Golder og Fishel
Huger. Brúðurin er tólf ára og brúð-
guminn fjórtán. Daginn eftir fóru
þau í skólann eins og vant er og þar
eyða þau hveitibrauðsdögunum. Brúð-
guminn hefir sagt frá því, að liann
hafi helst viljað gifta sig í fyrra, en
þá hafi Liya verið of ung. „Jeg álít
að það sje rjett að giftast ungur“,
sagði liann. „Faðir minn gifti sig
þegar hann var fjórtán ára, og eins
geri jeg“.
——o-----
SARA CHURCHILL
heitir jiessi unga mær og maðurinn
sem hjá lienni stendur heitir Vic
Oliver og er leikari Sara er dóttir
hins víðfræga stjórnmálamanns Win-
ston Churchill, sem frá barnæsku
hefir þótt baldinn og óst^ýrilátur og
gerði oftast jiað sem honum datt i
hug. Hann strauk t. d. að heiman
þegar hann var á fermingaraldri og
gerðist vikadrengur á skipi og síðan
upplifði hann ýms æfintýri í Cuba-
stríðinu, Búastríðinu og viðar, og
jjótti lítt eftirlátur foreldrum sínum.
Sara dóttir hans hefir erft eitthvað
af þessu. Hún varð ástfangin af
Oliver sinum, en Churchill vildi ekki
heyra það nefnt, að hún giftist hon-
um. En livað gerði telpan. Hún strauk
á eftir honum til Ameríku og giftist
honum þar í trássi við guð og menn
og án þess að spyrja um leyfi. Hjer
á myndinni sjást brúðhjónin um borð
á skipinu, sem flutti þau til Eng-
lands aftur. — Hvert á barninu að
bregða nema beint í ættina?
Alll með Islenskmn skrpum1