Fálkinn


Fálkinn - 06.03.1937, Qupperneq 3

Fálkinn - 06.03.1937, Qupperneq 3
F Á L K I N N 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested. Aðalskrifstofa: Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—6. Skrifstofa í Oslo: Anton Schjöthsgade 14. Blaðið kemur út hvern laugardag. Vskriftarverð er kr. 1.50 á mánuði; kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftanir greiðist fyrirfram. 1 uglýsingaverð: 20 aura millimeter. Herbertsprent prentaði. Skraddaraþaikar. Fyrir þrjátíu árum var hljómlista- ínent íslendinga ekki lengra komin en svo, að einstaka „fín“ stúlka kunni sæmilega að leika á píanó, en snögg- soðnir organistar fálmuðu einhvers- staðar nálægt sálmalaginu i meiri hlutanum af kirkjum landsins. Og svo söng fólk með sínu nefi en sumir spiluðú á harmoniku. Fiðlan þektist varla og því síður önnur strokhljó- færi. En Iúðrablástur lieyrðist við hátíðleg tækifæri í höfuðstaðnum. En þetta liefir mikið breyst á síð- :ista mannsaldri. Nú á Reykjavik vis- ir til orkesturs og ýmsa góða ein- leikara, og í nokkur ár hefir tón- listarskóli starfað í Reykjavík og orðið stórkostlega vel ágengt. Það er i rauninni mesti músikviðburður ársins, að lilusta á nemendahljóm- leika tónlistarskólans, þvi að þar eru jafnan einhver efni, sem skera fram úr. Og það er gleðilegt að vita til þess, að þetta unga fólk skuli hafa haft tækifæri til þess, að ná þeim listþroska hjer, án þess að þurfa að fara til útlanda.í Kennar- arnir eru að vísu útlendir, sumir hverjir, en það gerir minna til, tón- listin er alþjóðlegust allra lista hvort sem er. En þrátt fyrir það mikla starf, sem liggur eftir frömuði þessa máls, lilýtur starfsemin altaf að standa höllum fæti, vegna læss hve landið er fjarri alþjóðavegi. Það er of mikl- um kostnaði bundið að fá hingað frægar hljómsveitir til að hlusta á og jafnvel einleikarar og einsöngvar- ar eiga á hættu, að fara úr íslands- heimsókn fátækari en þeir komu. Þar ræður óþroskaður almenningssmekk- ur, sem kýs fremur harmonikuna og slaghörþuna. í stærri bæjum erlendis en Reykja- vík er, hafa einstaklingar orðið til þess að hjálpa þessu við. Utan um liljómsveit bæjarins hafa þeir mynd- að sterkan fjelagsskap með því mark- miði, að fá við og við fræga útlenda gesti, hljómsveitarstjóra, einleikára og söngvara, til þess að láta til sín heyra og til þess að læra af. Það hefir ekki verið kostnaðarsamt að vera í þessum fjelagsskap, aðalatrið- ið hefir verið það, að fjelagsmenn skuldbindu sig til að sækja ákveðna hljómleikatölu á ári og greiddu fyrir aðsókn að þeim meðal annara. í Reykjavík er þegar myndaður svo stór liópur tónlistariðkenda og tónlistarunnenda, að það ætti að vera i lófa lagið, að stofna slíkan fjelags- skap, með því markmiði að fá valda útlenda gesti til þess að sækja oss heim. Sú fjelagsstofnun er málefni, sem unnendur tónlistarinnar ættu að taka til íhugunar. Iþróttafjelao Rejrkjavíkur þrjátíu ára. Jón Kaldal. Þór. Arnórsson M. Þorgeirsson. lón Jóhannesson. tíuðm. Sveinsson. Þeir sem nú eru hálföldungar, og muna hver áhugi manna var fyrir íþróttum, um og eftir síðustu alda- mót, og ennþá fylgjast með, leggja ltið sína upp að Selfjalli eða Hengli einn sólbjartan vetrardag, þó hörku- frost sje, og líta þar yfir stóra hópa af yngri og eldri er með lífi og sál tr.ka ])átt í skíðafeðum, geta ekki ann- að en dáðst að framförunum. Fyrir þrjátíu árum var hjer ekki mikið um íþróttir. Hjer var til Skautafjelag, glimufjelag og eitt knattspyrnufjelag, um aðrar íþróttir var ekki að tala nema fimleika í barnaskólanum og Latinuskólanum. Þegar úr skólanum kom var ekki í neitt hús að venda. Þannig var hjer ástatt þegar íþróttafjelag Reykjavíkur var stofn- að 11 mars 1907. Aðalhvatamaður að stofnun þess var A. J. Bartelsen heildsali, er einnig var fyrsti for- maður þess og kennari. Fjelagið var í byrjun aðeins fyrir karlmenn, en 1910 voru stofnaðar deildir fyrir kvenfólk og um sama leyti einnig fyrir drengi og stúlkur. Það sýndi sig brátt, að þeir ungu menn- er stóðu að stofnun fjelagsins, ljetu ekki sitja við orðin tóm, því brátt efldist það að meðlimum og fjekk ýms áhugamál, en það er ekki hægt að rekja það mál í stuttri blaðagrein. Þau þrjátíu ár, sem nú eru liðin frá stofnun í. R. hefir starfsemi fjelagsins legið sem rauður þráður gegnum íþróttahreyfingu þessa bæj- ar og landsins í heild, og varla hefir nokkru atriði í þvi máli, verið hrund- ið af stað án þess að það hafi lagt þar góðan skerf til, eða beitt sjer fyrir þvi upp á eigin spítur, af eig- in ramleik. Og eins og altaf vill verða, mæðir mest á stjórn fjel. með allar fram- kvæmdir. Það hefir því komið sjer vel, að fjelagið hefir ávalt haft at- orku- og liugsjónamenn til þess að skipa í þau sæti. í stjórn fjelagsins eru nú: Jón Kaldal ljósm., formaður, Þórarinn Arnórsson, Magnús Þor- geirsson, Guðm. Sveinsson og Jón Jóhannesson. Fjelagið iðkar nú auk fimleika — sem lengst af hefir verið aðalstarf — útiíþróttir, Lawn Tennis. Badmunton, sund og skíðaferðir. Fjelagið heldur liátíðlegt afmæli sitt að Hotel Borg laúgardaginn 13. þ. m. Þar verður gott að vera, því því það er þrjátíu ára reynsla fyrir því að í. R. dansleikir eru bestu dansleikir ársins. Bystander. Hljómsveitarstjórinn Fr. Sclmedler Petersen, sem liefir stjórnað hljóm- sveitinni í Konsertsalnum i Tivoli í Kaupmannahöfn frá 1909—35, og sem svo margir íslendingar kannast við, varð 70 ára síðast í febrúar. Sjest hann hjer i samsæti er stjórn Tivoli hjelt honum á afmælisdaginn. WESTMINSTER ABBEY frægasta kirkja i London, sjest hjer á myndinni. Hún verður lokuð í all- an vetur, vegna undirbúnings undir krýningu George VI. þann 12. mai. Þegar ítölsku þátttakcndurnir í Olympsleikjunum í sumar sem leið komu heim aftur hjelt Mussolini skammarræðu yfir þeim og ságði að sjer þætti skítur til koma um frammistöðuna. Og nú vígbúast ítal- ir undir leikina 1940 og hyggja gott Halldór Arnórsson gerfilimasm. Grettisg. 2, verður 50 ára 10. þ. m. Kristján Eggertsson, Grettisgötu 56 A, verður 65 ára 10. þ. m. Þorsteinn Þorsteinsson, Beru- stöðum, verður 80 ára 15. þ. m. til liðsauka frá nýlendu sinni Erit- reu. Askarímenn, sem þar búa eru einkar þolnir hlauparar, þó þeir hafi ekki fengið þjálfun og nú ætlar Mussolini að etja þeim á móti negr- unum frá Bandaríkjunum. Kyntust ítalir þoli þessara manna í Abess- iníuófriðnum. Þar var m. a. maður, sem hljóp 16 kílómetra leið yfir mjög torfært land á minna en 50 minútum. Sendisveinn Biroli liers- höfðingja hljóp 200 m. yfir þýft graslendi á 25 sek. berfættur — sömu vegalengd á harðri hlaupa braut hljóp Jesse Ovens á 21.6 sek. Sex manna flokkur hljóp 113 km. undir fullum vopnum á tæpum 14 tímum, yfir svo ógreiðfært land, að það var talð ófært hvitum mi nnuni. ---x----

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.