Fálkinn


Fálkinn - 03.04.1937, Qupperneq 11

Fálkinn - 03.04.1937, Qupperneq 11
F Á L K I N N 11 VNCS/ftf LES&HbtfRHIR S ; '//> I |§. • /j , - * \ í ' -. - '' Fappírsfuglinn sem flýgur. 1 þennan „fugl“ notið þið pappírs- l)lað ferliyrnt, ekki mjög þunt en sterkt, og á það að vera um 15 senti- metrar á livern veg. Pappírinn er brotinn eins og sýnt er á mynd 1, með punktalínunum, fyrst þvert yfir, sitt á livað og síðan milli hornanna. Það ijettir fyrir síðar, ef þið brjótið pappírinn undir eins til beggja liliða, því að eflir á eiga geirarnir að beygj- ast í ýmsar áttir. Litlu geirarnir út við brúnirnar, sem eru skástrykaðar á mynd 1 eiga að brjótast eins og sýnt er á mynd 2: hvert horn er lagt tvöfalt, þannig að brúnin fylgi horna- línunni og brotið vel, en þó ekki lengra en að örinni, sem sýnd er við B á mynd 2. Þessi brot eru líka gerð til beggja liliða, og þegar þið hafið brotið hornið alt í kring verður miðbik pappirsins stjörnumyndað, eins og sýnt er með strikunum á mynd 1. — Brjótið nú pappírinn sam an eftir miðlinunni A á mynd 1 og brjótið um leið skástrikuðu geirana inn, þannig að pappírinn verði eins og sýnt er á mynd 3. Honum svipar iil umslags, sem iokið vantar á. Opnið svo umslagið dálítið að ofan, svo að geirarnir B, sem sýndir eru með skástrikum á mynd 3, geti orð- ið brotnir inn á við hvor á móti öðrum, og takið isvo með fingrunum i neðri hornin á umslaginu og beygið þá upp, eins og örvarnar á mynd 3 sýna. Þá kemur fram mynd 4. Nú beygið þið flipann A niður (brjótið hann um línuna x—x), en flipann á móti b beygið þið á sama hátt í mót- setta átt og verða brotin þá einsog sýnt er á mynd 5. Efri helmingurinn eru tveir þríhyrndir flipar, sem verða vængir á fuglinum en neð’’i belmingurinn tveir aðskildir flipar — A og B — sem eiga að mynda kroppinn. Þessir flipar eru beygðir sinn til hvorrar handar, svo að þeir liggi eins og punktalinurnar á mynd 5 sýna. Maður beygir flipann A inn. svo að hann liggi nákvæmlega á injili vængjaflatanna — bak við merkið x og flipann B beygir maður á sama hátt en i mótsetta átt. Sjeu öii brotin gerð rjett þá lítur fuglinn út eins og sýnt er á mynd 0. Oddurinn á A er beygður út á við, svo að hann myndi liaus og svo eru máluð augu, munnur og nef á fugl- inn og svo fjaðrir. Það er besl að gera þetta með iitbiýant Ef maður nú tekur í nefið og stjelið á fuglin- um. þá baðar hann vængjunum al- veg eins og hann væri að fljúga. SkemíilEg Eðlisíræðistilraun. Ef þið bafið tvær mjóar glerpípur: það er reyndar hægl að komast at með „makkaroni“-pipur og stóra flösku með tappa, þá getið þið gert skemtilega eðlisfræðitilraun. Tvö göt eru gerð á tappann og pípunum stungið gegnum þau og verða götin að vera svo mjó að ekki leki utan með pípunum. Önnur píp- an á að vera um það bil hélmingi lengri en hin. Áður en tappinn er settur í flöskuna er hún barmafylt með valni. Svo hvolfið þið flöskunni og haldið henni yfir bolla eða þvotta- skál og stingið styttri pípunni ofan i botn á fuliu vatnsglasi. Vitanlega fer vatnið undireins að renna úr flösk- unni út um lengri pipuna undir eins og búð er að hvolfa henn. En áður en flaskan tæmist kemur nokkuð skrít- ið fyrir: Vatnið úr glasinu fer að renna beint upp i móti og inn í flöskuna og þaðan aftur gegnum löngu pipuna niðnr í balann! Ástæð- an lil þessa er sú, að um leið og vatnið liefir runnið úr flöskunni hefir myndast lofttómt rúm inni í henni. En loftið þrýstir á yfirborð;ð á vatninu í glasinu svo að það leitar þangað sem minni þrýstingurinn er: upp i flöskuna. ----x---- Lukkuspil úr gömlum grammúíún-nálum. Þið getið haft þetta spil stórt eða lítið eftir því sem þið viþð og eftir því sem þið eigið mikið af gömlum grammófónnálum. Þið takið sljetta fjöl — lielst krossvið og neglið grammófónnálarnar í hana, þannig að allsstaðar sje jafnt bil á milli (sjá teikningu 1). MiUibilin eiga að vera svo stór, að steinvalan eða járnkúl- an, sem þið notið, geti aðeins oltið milli nálanna í annan endann á fjölinni gerið þið marga ,,vasa“ í röð, sem kúlurnar komast ekki í gegnum og merkið tölu við hvern vasa, mismunandi háa, eins og sýnt er á myndinni. Á rendur fjalarinn- ar neglið þið lista eða þykkan pappa, svo að kúlan renni ekki útaf fiölinni. Fremst á fjölina límið þið ræmu úr klæði, svo að kúlan hrökki ekki upp, þegar þið kastið lienni á fjölina. Og í sama enda neglið þið lista að neðanverðu, svo að fjöl- inni halli inn og kúlan geti runnið í áttina að markinu. ---x---- Hvað Er Pjetur gamall □g íaðir hans? Pjetur segir: Hjerna er bann faðir minn og jeg. Faðir ininn er þrefalt eldri en jeg, en eftir tiu ár verður bann helmingi eldri en jeg verð þá. Hvað erum við gamlir núna? Spreytið l>ið ykkur á þessu. Báðningin kemur á laugardaginn. Tóta frænka. f Betbei í Alaska kostar það einn fisk að koma i Bíó. Bethel er ekk: beinlínis tískustaður, en kvikmynda- bús er þar þó til samt. íbúarnir eru flestir eskimóar og sjá sjaldan per.- ir.ga. En bíóstjórinn tók þá upp á því, að byggja fisklijall við kvik- myndahúsið og selja inngangseyrinn i fiskum og það gefst ágætlega. SKÁTAR í LOTINU. í Playmouth í Englandi hefir ný- lega verið stofnuð fyrsta flugsveit skáta í lieiminum. Er skátunum kent að flújga. Á myndinni sjást skátar með flugvjelalikingar, sem þeir hafa smíðað sjálfir. GRETA GARBO hefir nýlega leikið aðalhlutverkið i „Kamelíufrúnni" eftir Dumas. Hún segist aldrei hafa verið leiðari á lif- inu en nú, og hafi hún kvalist er hún ljek hlutverk Kamelíufrúarinnar, vegna þess að það sje svo raunal,egl. Greta Garbo kveðst staðráðin í að bætta að kvikmynda í vor, og er talið víst, að hún muni flytjast til Sví])jóðar, en þar befir hún keypt stóra jörð. KVENNAFLOKKUR FRÁ BIPMA. var nýlega i sýningarför i London, og ein konan eignaðist þar barn. En ekki tók hún af sjer hálsprýðina þó hún legðist á sæng.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.