Fálkinn


Fálkinn - 03.04.1937, Blaðsíða 14

Fálkinn - 03.04.1937, Blaðsíða 14
14 F Á L Ií I N N Sundlaugarsalurinn i hinni nýju Sundhöll Reykjavíkur. A myndinni sest fram eftir salnum. — 'Myndina tók Vigfús Sigurgeirssoii Ijósm. SUNDHÖLLIN. Frh. af bls. 3. sótthreinsunarefnum, sem á- valt lialda vatninu hreinu og fyrirbyggja alla smitunarhættu, auk ]>ess sem vatnið endurnýj- ast stöðugt í lauginni með að- rensli á nýju, heitu vatni. Við sundhöllina starfa alls 21 menn, en forstjóri hallarinn- ar er herra Ólafur Þorvarðar- son. Einn af lielslu íþróttal'römuð- um landsins, Sigurjón Pjeturs- son á Álafossi, sem mikið hefir unnið fyrir sundment lands- manna og sjálfur hefir oft hlot- ið nafnbótina „sundkonungur íslands“, hefir senl blaðinu eft- irfarandi grein um þessa iil- komumiklu iþróttahöll. Það Er Ekki nEinn hjegnmi - heldur íagur uEruIziki. Sundhöllin í Reykjavík er opnuð til afnota öllum, sem ])angað vilja koma, og eftir að liafa skoðað sig um og sjeð hús- ið, alt liátt og lágt þá duttu mjer i hug þessi orð: Það er ekki neinn hjegómi heldur íagur veruleiki. 1 mörg ár liafa íþróttamenn þessa bæjar dreymt um það að komast inn i þetta hús og fá að nota það, og þeir hafa spurt hverir aðra hvernig verður húsið að innan? Og sjá — við komum inn í hús- ið - og mjer finst það vera að innan eins og ,,Aladdinshöll“ — með aðstoð og með valdi raf- orkunnar, hveravatnsins, og með hjálp hinnar fullkomnu lækni mannsandans, komum við inn í nýja og nýja sali, hvern fullkomnari, fegurri og hetri uppljómaða og funlieita, og siðast í sjálfa sundlaugina, sem er þeirra stærstur, fínast- ur og bestur. Slíka dýrð, slíka fegurð, hefur íslenska iþrótta- menn varla getað dreymt um — fyrir nokkrum árum síðan — og alls ekki, þegar líkamleg þjálfun hófst hjer í þessum bæ fyrir rúmum 30 árum síðan. Þá voru þeir varla álitnir með öllu viti, sem altaf voru að hlaupa, ganga, róa og synda —. Menn sögðu, að það væri ógur- lega vitlaust að eyða kröftum og tíma í þennan óþarfa. Þekk- ing mannanna náði þá ekki lengra en það, að þeir vissu ekki — að stæling á vöðva á landi og í vatni var til lieilsu- bóta og þroska. Og jafnvel í þá daga þóttust menn miklir af þvi að tyggja mikið skraató- bak og að geta spýtt mó- rauðu nógu langt — og tekið mikið í nefið — og drukkið svo og svo mikið brennivin eða svo og svo marga bjóra. En tímarnir hafa breysl — l)etur fer til annars lifs — hetra lifs — fullkomnara lifs. Þá vissu menn ekki að þeir voru að eyðileggja það dýrmætasta, sem þeir áttu likama sinn - líkamleg og andleg líðan var í voða. Þeir voru með framferði sínu að ganga yfir lögmál lieil- brigðarinnar og huðu nátt- úrunni í þá glímu, sem varð þeim að falli — fyrr eða síðar. En nú vita menn, að tóbak og áfengi skemmir manninn — og nú er mikið gert til þess að auka líkamlega hreysti og likamlega fegurð. Líkamleg menning hefir sigr- að — og sá stærsti sigur fyrir likamlega menningu er þetta volduga og fína hús — sem er að mínu áliti sá fullkomnasti og fegursti hyrningarsteinn, sem enn hefir verið reistnr hjer á landi lil eflingar líkamlegri hrevsti og' menningu. Heill sje ykkur öllum, sem hafa staðið fyrir hyggingu ]æssarar Aladdins- hallar. Heill sje ykkur borgar- stjóri — bæjarstjórn bæjar- húar ríkisstjórn og Alþingi. Heill sje ykkur fyrir það að hafa bvgt þetta hús fyrir æsku- lýð þessa bæjar og fyrir unga fólkið, fvrir alla — unga og gamla —. Allir sem koma i laugina og baða sig menn finna að þar er gott að koma, og að þar er gott að Vera,þeir munu finna að það er unaður að dvelja í lauginni og þeir munu koma aftur og aftur I sundhöllina munu menn sækja heilbrigði, hreinleik og velliðan. Hinn voldugi skapari vor, sem alt gefur okkur gott hefir gefið okkur hveravatn málulega heitt til þess að synda i og sólargeislana til þess að haða i — svo að við getum notið hvildarinnar og svefnsins, enn hetur en áður, því hvíld og svefn er sá lífgjafi, sem við menn getum ekki verið án —. Munið það íþróttamenn og íþróttavinir, að þessi fagra „Aladinshöll er bygð til þess að auka likamlega heilbrigði ykk- ar, og gera líf ykkar bjartara, fegurra og fullkomnara, þið eigið þar að auka og endur- hæta lífsorku ykkar — því þeg- ar heilbrigðin og hreystin hverf- ur og lasleikinn kemur i stað- inn, þá koma leiðindin, vilja- leysið, kæruleysið og vonleysið og menn vantar svo marga sjálfstraust —. En alla þessa galla á mönnunum á þessi fagra sundhöll að hjálpa til að lag- færa og endurbæta. Hún á að endurskapa likamlega og and- lega líðan sinna gesta. Hún á að endurbæta mennina, gera þá viljasterka — líkamlega hreiiia og þolna —. Við áreynsluna í lauginni mun hver maður verða endurnærður — með nýrri orku og nýjum viljakrafti. í gegnum æðar hans streymir hreint, nær- ingarríkt blóð, fult af orku og heilnæmi — Allur maðurinn þroskast og verður færari lil þess að up])- fylla sínar skyldur sem sannur borgari í þjóðfjelaginu. Þetta er starf þessarar fögru Sundhallar. Og jeg vona að hún uppfylli allar þessar ósldr og kröfur okkar íþróttamanna. - Ef sundhöllin getur fengið fólkið til þess að hætta að skemma líkama sinn með tó- haki, áfengi, málningu og fl. eitri en í þess stað að njóla lifsins og unaðarins i vatninu og sólinni, þá gerir sundhöllin mikið gagn . Við íþróttamenn segjum burt með óregluna og viljalevsið upp með lieil- brigðina, hrevstina -— fram- takssemina,. starfið. Vinnan - athafnirnar sjálfsbjargarvið- leitnin eru ljós mannanna — sem við viljum efla og þroska. Komandi tímar munu leiða ])að í Ijós, að hjer hefir verið gert gotl verk, og úti við liafs- brún blikar fvrir nýjum degi i islenskri líkamsmenningn. Hann er friðarboðinn — hann er þetta hulda afl í hinni ungu mannssál, sem kemur lienni til að hlusta — eftir einhverju, sem hún gerir sjer ekki grein fyrir en sem hefir haldið henni vakandi og haldið einmitt harnssálinni vakandi og opna fyrir því, sem er dýr- mætast af öllu — en það er að hafa hreinan, fínan og fagran líkama. Þá munum við lifa þann glaða dag — að það verð- ur mikil breyting til batnaðar i íslensku þjóðlífi. Þá mun is- lenska þjóðin lifa aftur upp ís- lenska líkamshreysti í enn feg- urri mynd en nokkuru sinni fyr. Og þá munu íslendingar standa saman í baráttu lífsins sem ein heild, brynjaðir orku úr náttúrunni sem er hinn full- komnasli verndari þessa lífs meðan við lifum á þessari jörð. íslensk likamsmenning er liinn rjetti grnndvöllur. Ekkert er of gert fyrir þann veruleika. Sigurjón Pjetursson Álafossi. Sundlaugarsalurinn í hinni nýju Sundhötl Reykjavíkur. A myndinni sjest inn eftir salnum.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.